Fréttir

true

Mark á lokamínútunni réði úrslitum

Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Víkingsliðið kom mun ákveðnara til leiks og réði ferðinni í upphafi, án þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri. Eftir því sem leið á komst Þróttur betur inn í leikinn og það voru þær sem áttu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Breiðabliki

Í Kópavogi á sunnudag kepptu lið Breiðabliks og Víkings Ólafsvíkur í fimmtu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og þá sérstaklega í ljósi þess að Milos Milojevic, nýráðinn þjálfari Breiðabliks, stýrði liðinu í fyrsta sinn í leiknum en hann hóf tímabilið sem þjálfari Víkings Reykjavíkur. Það var slæmur kafli í fyrri…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Vestmannaeyja

Um síðustu helgi var leikin fimmta umferð í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í Vestmannaeyjum fór fram leikur ÍBV og ÍA. Fyrir leikinn voru Eyjamenn með sjö stig en Skagamenn sátu stigalausir á botni deildarinnar. Skagamenn voru því í erfiðri stöðu fyrir leikinn og ræddu knattspyrnuspekingar það fyrir leikinn að Skagamenn yrðu að sigra ætluðu þeir…Lesa meira

true

Naumt tap í stórleik umferðarinnar

ÍA tók á móti HK/Víkingi í stórleik 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag, en því var spáð fyrir tímabilið að bæði lið yrðu í toppbaráttu í deildinni í sumar. Þrátt fyrir að gestirnir hafi verið meira með boltann í upphafi leiks voru Skagakonur sprækari á upphafsmínútunum. Mátti engu muna að þær kæmust yfir strax…Lesa meira

true

Hundaeigandi sviptur dýrum sínum

Matvælastofnun hefur tekið tvo hunda og átta hvolpa úr vörslu eiganda. Ástæða vörslusviptingar er óviðunandi aðbúnaður og umhirða, sinnuleysi og vanþekking til að halda dýr. Umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar á Suðvesturlandi barst í vor ábending um tík á lausagangi. Hún var örmagna og við það að gjóta. Haft var upp á eiganda tíkurinnar sem hafði ekki gert…Lesa meira

true

Varp í hættu vegna hækkunar vatnsborðs Skorradalsvatns

Síðustu daga hefur vatnshæð Skorradalsvatns verið að hækka. Á þremur dögum, frá föstudegi til sunnudags, hefur vatnsyfirborðið hækkað um sex sentimetra og var á sunnudagsköld samkvæmt mæli Veðurstofunnar við úthlaup vatnsins 62,12 cm. Orka náttúrunnar hefur gefið það út að vatnsstaðan skuli ekki vera hærri en 62,18 cm. Í raun er Skorradalsvatn vatnsmiðlun fyrir Andakílsárvirkjun…Lesa meira

true

Skagamenn eru Vesturlandsmeistrar í boccia

Árlegt Vesturlandsmót félags eldri borgara í boccia fór fram í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Þetta mun vera í ellefta skipti sem mótið er haldið en a.m.k. sex sveitarfélög hafa skipst á að hýsa það. Til leiks mættu að þessu sinni 16 sveitir; fjórar frá Akranesi, Borgarbyggð og Stykkishólmi og tvær sveitir frá Snæfellsbæ og Húnaþingi vestra.…Lesa meira

true

Drógu til baka umsókn um framkvæmdaleyfi 10. apríl

Orka náttúrunnar, sem á og rekur Andakílsárvirkjun, skrifaði 10. apríl í vor forsvarsmönnum sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps bréf þar sem tilkynnt er að fyrirtækið dragi til baka fyrri umsókn sína um framkvæmdaleyfi til að hreinsa úr miðlunarlóni virkjunarinnar. Eins og komið hefur fram í fréttum fóru nokkur þúsund rúmmetrar af aur úr botni lónsins dagana…Lesa meira

true

Laxveiðitímabilið hefst á laugardaginn

„Við munum opna Norðurá formlega á laugardaginn næsta. Laxinn er kominn en við sáum laxa á Brotinu um helgina,“ sagði Einar Sigfússon sölustjóri árinnar í samtali við Skessuhorn. Nýtt veiðihús verður jafnframt vígt sama dag við ána en framkvæmdir hafa staðið yfir frá því veiðitímabilinu lauk í fyrrahaust. Hafa þær gengið vel og stækkunin sómir…Lesa meira

true

Oddfellow færði Brákarhlíð nuddstól að gjöf

Brákarhlíð í Borgarnesi fékk á uppstigningardag góða gjöf þegar Oddfellow reglan Rebekkustúka nr. 5 – Ásgerður færði heimilinu nuddstól. Hann mun nýtast bæði heimilisfólki sem og starfsmönnum Brákarhlíðar. Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri Brákarhlíðar vill koma á framfæri kæru þakklæti fyrir höfðinglega gjöf þeirra Oddfellowkvenna.Lesa meira