Fréttir

true

Sumargjöf í minningu Björns Guðmundssonar

Alþjóða safnadagurinn var í liðinni viku. Hann hófu fulltrúar starfsmanna Safnahúss Borgfirðinga á fundi með byggðarráði Borgarbyggðar þar sem þeir afhentu sumargjöf hússins til sveitarstjórnar á afmælisári Borgarness. Það er veggspjaldi um Björn Guðmundsson höfund Bjössaróló. Veggspjaldið hefur verið í smíðum um nokkurt skeið og er hugsunin að baki því að minna á hugsjónir Björns…Lesa meira

true

30 ára bæjarafmæli Stykkishólms í dag

Þann 22. maí 1987 var merkisdagur í Stykkishólmi. Þá tók Sverrir Hermannsson, þáverandi menntamálaráðherra, fyrstu skóflustunguna að nýrri íþróttamiðstöð í bænum. Sama dag staðfesti svo Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra tilskipun um bæjarréttindi Stykkishólmshrepps sem varð upp frá þeim degi Stykkishólmsbær. Í raun var tilviljun sem réði því að þessir atburðir gerðust sama daginn. Bæjarstjórn Stykkishólms hélt…Lesa meira

true

Rannsaka áhrif aurflóðs í Andakílsá

Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar í veiðimálum eru nú staddir við Andakílsá í Borgarfirði til að meta hvort set sem barst í ána úr inntakslóni Andakílsárvirkjunar hafi haft áhrif á lífríkið í ánni. Niðurstöðu þeirra er að vænta á næstu dögum og ráðlegginga um skynsamleg viðbrögð við aurburðinum. Í síðustu viku var hleypt niður úr inntakslóninu. Það er…Lesa meira

true

Bílvelta við Akrafjallsveg

Betur fór en á horfðist þegar bílvelta varð við Akrafjallsveg laust fyrir klukkan 17 síðdegis í gær. Tveir voru í bílnum, ökumaður og farþegi. Ökumaður missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af, yfir troðning sem liggur þar meðfram veginum og hafnaði á hvolfi úti í skurði. Vegfarandi sem varð vitni…Lesa meira

true

Víkingskonur lágu fyrir Selfossi

Víkingur Ó. mætti liði Selfoss í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og máttu heimakonur sætta sig við tap, 0-4. Gestirnir frá Selfossi áttu algjöra draumabyrjun í leiknum. Þær komust yfir strax á 11. mínútu með marki frá Barbáru Sól Gísladóttur og aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Karitas…Lesa meira

true

Baráttusigur ÍA í Breiðholtinu

ÍA sigraði ÍR með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudag. Leikið var í Breiðholtinu í Reykjavík. Um mikinn baráttuleik var að ræða. Heimaliðið mætti ákveðið til leiks og beitti góðri hápressu. Náðu þær á köflum að neyða Skagakonur til að beita löngum spyrnum og…Lesa meira

true

Biðla til almennings og fyrirtækja um stuðning við afrekssjóð sundfólks

Sundfélag Akraness biðlar til fyrirtækja og velunnara félagsins um stuðning til kostnaðarsams uppbyggingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið bæði í sundskóla félagsins og einnig í starfsemi yngri hópanna. Í elstu aldurshópunum er sundfólk sem keppir fyrir hönd félagsins en þar á meðal er afreksfólk sem keppir fyrir Íslands hönd á mörgum mótum, bæði hér á landi…Lesa meira

true

Ferðablaðið Travel West Iceland komið út

Nú í byrjun mánaðarins kom hið árlega ferðablað um Vesturland út. Útgefandi er Skessuhorn. Það nefnist „Travel West Iceland 2017-2018 – Ferðast um Vesturland“ og er gefið út á ensku og íslensku. Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlisstöðum prýða blaðið og eru auglýsendur í hverjum efniskafla staðsettir á kort eftir númerum. Blaðið er…Lesa meira

true

Eyjamenn sigruðu Víking í Ólafsvík

Fjórða umferð Pepsideildar karla hófst í gær í Ólafsvík með leik Víkings og Eyjamanna. Fyrir leikinn höfðu bæði lið aðeins unnið einn leik það sem af er móti. Leikurinn var bragðdaufur og fátt var um fína drætti en baráttan þó mikil. Leiknum lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Eyjamanna sem með sigrinum lyftu sér upp…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana rækjubát

Um klukkan 7:30 í gærmorgun barst björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ útkall þar sem beðið var um að sækja togbátinn Dag SK-17 sem gerður er út á rækju á Breiðarfirði af Dögun á Sauðárkróki. Dagur er 363 brúttótonna skip og var hann staðsettur níu sjómílur norðvestur af Rifi þegar hann varð vélarvana. Veður var með besta…Lesa meira