Fréttir

true

Jafntefli í fyrsta leik Víkings

Víkingur Ólafsvík hóf keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu síðasta laugardag. Víkingskonur ferðuðust norður yfir heiðar og mættu liði Hamranna í Boganum á Akureyri. Nokkuð jafnræði var með liðunum allan leikinn sem lauk með markalausu jafntefli. Bæði lið náðu að skapa sér ágætis marktækifæri þó hvorugu hafi tekist að skora. Víkingskonur voru heldur skæðari…Lesa meira

true

Skagakonur hófu mótið með látum

Keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu hófst á föstudagskvöld þegar ÍA tók á móti Tindastóli. Leikurinn fór fram í Akraneshöll, en dómari leiksins taldi veður ekki vænlegt til knattspyrnuiðkunar og færði leikinn því undir þak. ÍA var miklu betra liðið allan tímann og leikurinn fór að mestu leyti fram á vallarhelmingi gestanna. Skagakonur byrjuðu…Lesa meira

true

Umfangsmiklar tölvuárásir um allan heim

Bylgja gagnagíslatökuárása (e. ransomware) gengur nú yfir heiminn. Árásin er gríðarlega umfangsmikil; hundruð þúsunda tölva eru sýktar út um allan heim. Þetta lýsir sér þannig að tölvur eru sýktar með óværu sem dulritar gögnin á tölvunni og kemur þannig í veg fyrir að notandinn komist í gögn sín. Hann er síðan krafinn um lausnargjald, með…Lesa meira

true

Kalla eftir sátt í stað sundrungar

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarútvegsráðherra, um að skipa þverpólitíska nefnd til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni til framtíðar. Þessi ákvörðun segir SAF að sé í samræmi við eðlilega starfshætti ríkisstjórnar á því herrans ári 2017.…Lesa meira

true

Útskriftarefni á ferð og flugi

Nemendur sem hyggja á útskrift úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga voru á ferðinni föstudaginn 12. maí síðastliðinn þegar þeir dimmiteruðu um ganga skólans. Þá voru fluttar vísur og heilræði fyrir samnemendur og kennara áður en þeir þáðu vöfflukaffi á kennarastofunni eins og venja er. Búningarnir að þessu sinni voru að fyrirmyng Sölmundar úr Disney kvikmyndinni Monster inc.Lesa meira

true

Þingflokkur Pírata fordæmir fjöldauppsögn HB Granda

Þingflokkur Pírata fordæmir þá ákvörðun HB Granda að segja upp hátt í níutíu starfsmönnum og færa alla bolfiskvinnslu frá Akranesi til Reykjavíkur. „Með þessu setur fyrirtækið ekki aðeins framfærslu þessa fólks í uppnám heldur skilur heilt bæjarfélag eftir í sárum. Stærsti hluti þeirra sem HB Grandi segir nú upp eru harðduglegar konur, meðal annars einstæðar…Lesa meira

true

“Þeir greiði sem geta og þeir fái sem þurfa”

Aðalfundar kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi var haldinn 7. maí síðastliðinn á Akranesi. Þar var ályktað að verkefni stjórnmálanna sé að endurreisa velferðarkerfið, tryggja samfélagslegan arð af auðlindum landsins og endurvekja traust í samfélaginu eftir áföll í efnahags- og stjórnmálalífi frá efnahagshruninu 2008 og fram á þennan dag. „Jafnaðarmenn í Norðvesturkjördæmi telja að það sé grunnstef…Lesa meira

true

Svifnökkvi frumsýndur á stórsýningu í Brákarey

Nýjasta farartækið í flóru landsmanna er á meðfylgjandi mynd, sveipað dúk og dulúð, en á kerru. Þetta er svifnökkvi sem Arinbjörn Kúld eigandi Íslandsnökkva fékk til landsins frá Bretlandi nú í vikunni. Arinbjörn er nú á leiðinni frá Akureyri og í Borgarnes þar sem nökkvinn verður frumsýndur á morgun á stórsýningu Raftanna og Fornbílafjelags Borgarfjarðar.…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í kvöld

ÍA leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni. Upphaflega stóð til að leikurinn færi fram á Akranesvelli en vegna slæmrar veðurspár var hann færður undir þak. Rætist hins vegar úr veðrinu getur dómari leiksins tekið ákvörðun um að færa leikinn út að nýju.…Lesa meira