Fréttir

true

Veitingastaður við Hraunfossa verður opnaður á næstu dögum

Eins og greint var frá í Skessuhorni fyrr á þessu ári hafa undanfarið staðið yfir framkvæmdir við nýjan veitingastað við Hraunfossa í Borgarfirði. Verður hann á vegum fjölskyldufyrirtækisins Hraunfossar-Barnafoss ehf., en það er í eigu Snorra Jóhannessonar og Jóhönnu Björnsdóttur á Augastöðum, Kristrúnar dóttur þeirra og Arnar Eyfjörð Arnarsonar manns hennar. Reistur hefur verið 160…Lesa meira

true

Settist á skólabekk eftir vinnuslys

Eftir að hafa lent í vinnuslysi fyrir þremur árum stóð fyrrum sjómaðurinn Elí Þór Þórisson á krossgötum. Hann hafði starfað sem sjómaður í 17 ár þegar slysið varð en fljótlega varð honum ljóst að sjómannsferlinum var lokið. Með aðstoð Virk komst Elí í gegnum áfallið og í dag er hann í iðnnámi, líkar það vel…Lesa meira

true

Álfurinn fyrir unga fólkið

Árleg Álfasala SÁÁ hefst í dag, miðvikudaginn 10. maí, og stendur fram á sunnudaginn 14. maí.  Hún er nú haldin í 28. skipti. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert.  Allur ágóði af sölunni rennur til að greiða fyrir þjónustu SÁÁ við ungt fólk, bæði afeitrun og meðferð, sálfræðiþjónustu barna eða aðra þjónustu við fjölskyldur…Lesa meira

true

Varað við veðri í dag

Versnandi veður er víða á landinu í dag. Versta hríðarveðrið verður þó á Vestfjörðum þar sem verður mjög blint í 20-25 m/s vindi, einkum á Gemlufallsheiði, Steingrímsfjarðarheiði, á Klettshálsi og Þröskuldum. Dregur úr ofankomu seinnipartinn en lægir ekki að ráði fyrr en í nótt. Dálítið snjófjúk verður á öðrum fjallvegum og norðaustan 13-18 m/s.  Í…Lesa meira

true

Brjóstabollur til styrktar krabbameinsrannsóknum

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara bjóða nú til sölu brjóstakollur í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 11.-14. maí. Salan á bollunum er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman, en félagið styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Sala á brjóstabollum er orðinn árviss viðburður í bakaríum um mæðradagshelgina og eru bakarí …Lesa meira

true

Njóta í stað þess að þjóta í Stykkishólmi

Á dögunum opnuðu frænkurnar Mæsa og Theó agnarsmátt kaffihús í húsnæði Harbour Hostel í Stykkishólmi, Slowly kaffi. Þar hyggjast þær bjóða upp á gæðakaffi og smávægilegt meðlæti fyrir kaffiþyrsta Hólmara og aðra gesti. Kaffihúsið verður opið frá því klukkan átta á morgnana á virkum dögum og fram eftir degi, eftir því sem hægt er fyrir…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að úða gegn birkikembu í maí

Reynir Sigurðsson er einn af þeim sem býður upp á úðun garða og sumarhúsalóða og er starfssvæði hans Borgarbyggð, Akranes og svæðið sunnan Skarðsheiðar. Reynir er Hafnfirðingur að uppruna en býr nú í sumarhúsi skammt frá Borgarnesi og ferðast um með pallbíl sín og efni og tekur að sér garðaúðun. Hann er gamalreyndur í þessum…Lesa meira

true

Jeratún afhendir gjafir

Jeratún ehf. er einkahlutafélag í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar en félagið á og rekur húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þriðjudaginn 9. maí komu fulltrúar félagsins í heimsókn í skólann. Þegar Fjölbrautaskóli Snæfellinga var tíu ára árið 2014 færði félagið skólanum einar milljón króna að gjöf. Nú hefur sá peningur verið notaður til að kaupa nýtt…Lesa meira

true

Færð getur spillst og fjallvegir orðið ófærir

Slysavarnafélagið Landsbjörg vekur athygli á slæmri veðurspá næstu daga og líklegt er muni hafa áhrif á ferðir fólks víða um land. Í fyrramálið fer að hvessa og snjóa á Vestfjörðum og má reikna með að færð spillist á heiðar- og fjallvegum og reikna má með að áhrif veðursins gæti á Ströndum og jafnvel suður að…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir nýjum peysum

Unglingadeildin Drekinn tók í notkun nýjar peysur á afmæli Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar á laugardaginn. Nýju peysurnar eru glæsilegar og voru krakkarnir að vonum ánægðir með þær. Krakkarnir í deildinni eru búnir að vera að safna fyrir peysunum í nokkur ár en peysurnar sem þau áttu áður voru orðnar gamlar og þreyttar. Peysurnar nota krakkarnir þegar þau…Lesa meira