Fréttir

true

Vélsleðafólkið fannst heilt á húfi

Parið sem björgunarsveitir Landsbjargar leitaði að í gær við sunnanverðan Langjökul fannst upp úr klukkan hálf níu í gærkvöldi. Voru þau bæði heil á húfi en orðin köld þegar þau fundust skammt frá Skálpanesi. Var þeim komið í hlýjan björgunarsveitarbíl þar sem heitir drykkir biðu þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu.…Lesa meira

true

Hefja gjaldtöku í Akranesvita

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í desember að hefja gjaldtöku af gestum í Akranesvita, en fram til þessa hefur ekki verið innheimtur aðgangseyrir. Áfram verður þó ókeypis fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja, sem og skólahópa í fylgd með kennurum. Aðgangseyri verður þó stillt í hóf en almennt gjald verður 300 krónur og byrjaði innheimta…Lesa meira

true

Leiðsöguhundadagatal Blindrafélagsins komið út

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2017 með myndum af leiðsöguhundum. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðasöguhunda fyrir blint fólk. „Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað…Lesa meira

true

Vélsleðafólks leitað á Langjökli

Björgunarsveitarfólk af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út til að leita að tveimur einstaklingum á vélsleða á Langjökli. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að fólkið hafi verið í skipulagðri vélsleðaferð frá Skálpanesi en orðið viðskila við hópinn og ekki skilað sér af jöklinum. „Gert er ráð fyrir að fyrstu björgunarsveitarmennirnir verði komnir á leitarsvæðið…Lesa meira

true

Lesbókin Café opnuð á morgun

Lesbókin Café, nýtt kaffihús við Akratorg á Akranesi, verður opnað fyrsta sinni fyrir gestum og gangandi kl. 11:30 á morgun, föstudaginn 6. janúar. Að rekstri kaffihússins standa Christel Björg Rudolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson. Um miðjan desembermánuð keyptu þau rekstur Skökkin Café, sem áður var rekið í sama húsnæði, af Hafdísi Bergsdóttur og Hildi…Lesa meira

true

Sjómannaverkfallið kemur illa við sjávarplássin

Sem kunnugt er stendur nú yfir verkfall sjómanna fiskiskipaflotans og hefur staðið yfir síðan 14. desember. Miðað við fregnir síðustu daga virðist viðræðum sjómanna við SFS, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, miða lítið áfram og enn vera langt á milli deiluaðila. Á meðan verkfallið varir eru smábátasjómenn þeir einu sem róa til fiskjar. Sást það glögglega…Lesa meira

true

Skólp flæddi inn í Samkomuhúsið á Arnarstapa

„Það er ljóst að Samkomuhúsið á Arnarstapa verður ekki opnað á næstunni. Í gær hafði flætt upp um öll niðurföll á báðum hæðum og upp úr starfsmannasalerni í kjallara. Í dag hafði aftur tekið að flæða og þegar ég fór úr húsinu í kvöld var stríður straumur vatns sem flæddi upp úr niðurfalli sturtubotns í…Lesa meira

true

Reykhólahreppur fær styrk vegna hleðslustöðvar

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra staðfesti á föstudag tillögur ráðgjafanefndar Orkusjóðs um veitingu styrkja til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla á landsvísu til að tryggja aðgengi sem flestra landsmanna að loftslagsvænum samgöngumáta. Er verkefnið hluti af sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum, sem sett var fram í tengslum við 21. fund aðildarríkja lofslagssamningsins í París. Til ráðstöfunar úr Orkusjóði voru…Lesa meira

true

Nýr doktor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst

Auður H. Ingólfsdóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst, varði doktorsritgerð sína Climate Change and Security in the Arctic. Analysis of Norms and Values Shaping Climate Policy in Iceland í Háskólanum í Lapplandi 16. desember síðastliðinn. Um er að ræða sameiginlega doktorsgráðu frá Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Félagsvísindasviði Háskólans í Lapplandi. Þar með eru allir…Lesa meira

true

Sýnir dansverkið FUBAR í Hjálmakletti

Dansarinn og danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir setur upp dansleikhúsið FUBAR í Hjálmakletti um næstu helgi. Sýningarnar í Borgarnesi verða tvær, önnur er ætluð almenningi en hin verður sérsýning fyrir nemendur Grunnskólans í Borgarnesi. Sigríður Soffía er fædd í Borgarnesi og segist lengi hafa haft það á stefnuskránni að sýna þar. Verkið sem hún mun sýna…Lesa meira