Fréttir

true

Hafa stofnað söfnunarreikning vegna tjóns Færeyinga

Búið er að stofna söfnunarreikning þar sem Íslendingar geta lagt frændum sínum Færeyingum lið eftir tjón sem varð í hamfaraveðri um jólin. Facebooksíða söfnunarinnar heitir: „Færeyingar og Íslendingar eru frændur.“ Þá hefur verið opnaður söfnunarreikningur í Sparisjóði Strandamanna fyrir landssöfnunina (sjá mynd með upplýsingum). Búið er að hafa samband við færeyska ræðismanninn hér á landi…Lesa meira

true

Heiðursborgari jarðsettur í dag

Í dag verður borinn til grafar í Stykkishólmi Ágúst Guðmundur Bjartmars heiðursborgari Stykkishólmsbæjar. Ágúst var fæddur í Stykkishólmi 13. janúar 1924 og bjó þar alla tíð. Hann lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi 17. desember sl. þar sem hann dvaldi síðustu æviár sín. Ágúst var húsasmiður að mennt, var kvæntur Maggý Lárentsínusdóttur og eignuðust þau…Lesa meira

true

Sýslumaður hefur gefið tíu brennuleyfi á Vesturlandi

Samkvæmt upplýsingavef sýslumannsembætta landsins hefur Sýslumaðurinn á Vesturlandi nú úthlutað tíu brennuleyfum í landshlutanum fyrir áramótin 2016/2017. Þar af eru þrjú í Borgarbyggð og Snæfellsbæ, en eitt í sveitarfélögunum Akranesi, Grundarfirði, Stykkishólmi og Dölum. Gera má ráð fyrir því að eftir sé að sækja um fleiri leyfi, einkum vegna þrettándafagnaða. Útgefin brennuleyfi eru þessi (leyfishafi…Lesa meira

true

Atvinnutekjur á Vesturlandi nánast staðið í stað frá 2008

Atvinnutekjur á árinu 2015 námu rúmlega 980 milljörðum króna og voru að raunvirði ríflega einu prósenti hærri en árið 2008. Á sama tímabili fjölgaði íbúum landsins um rúm fimm prósent. Þessar upplýsingar er að finna í skýrslu sem Byggðastofnun hefur tekið saman um atvinnutekjur 2008-2015 eftir atvinnugreinum og landssvæðum. Mest hækkuðu atvinnutekjur á Suðurnesjum og…Lesa meira

true

Nýr safnstjóri Landbúnaðarsafnsins

Nú um áramótin verður sú breyting að Bjarni Guðmundsson lætur af daglegri stjórn Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri og við tekur Ragnhildur Helga Jónsdóttir frá Ausu. Bjarni hefur verið verkefnisstjóri safnsins frá upphafi og þar áður yfir Búvélasafninu, undanfara þess. Ragnhildur Helga hefur sömuleiðis starfað að safninu um nokkurra ára skeið, einkum við móttöku gesta og…Lesa meira

true

Leiðsöguhundadagatal Blindrafélagsins komið út

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2017 með myndum af leiðsöguhundum. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðasöguhunda fyrir blint fólk. „Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað…Lesa meira

true

Rúta með 45 manns valt á hliðina

Rúta með 43 ferðamönnum, auk fararstjóra og bílstjóra, valt á Snæfellsnesvegi skammt frá Urriðaá á Mýrum um klukkan 17 í dag. Flestir sem í rútunni voru sluppu án meiðsla. Þrír voru þó fluttir til læknisskoðunar, flestir með mar og tognun, en hugsanlega voru þó einhver beinbrot. Enginn var alvarlega slasaður að sögn lögreglu. Rauði krossinn…Lesa meira

true

Stóru skipin létu illa í höfninni

Í suðvestan skítabrælu í gær gaf hressilega yfir hafnargarðinn á Akranesi. Stóru skipin sem lágu þá við stóru bryggjuna tóku vel á sig og þrátt fyrir að vera rígbundin við bryggju var talsverður veltingur á þeim og slógust þau við bryggjukantinn. Mannskapur var um borð í þremur skipum sem lágu við bryggju; Venusi NK, Bjarna…Lesa meira

true

Héldu jólatónleika sína á Kanarí að þessu sinni

Hin söngelska fjölskylda úr Borgarnesi; Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson ásamt dætrum sínum þeim Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu, brugðu út af vananum að þessu sinni og héldu árlega jólatónleika sína á Kanaríeyjum. Eins og lesendur Skessuhorns þekkja hafa þau á undanförnum árum boðið upp á tónleika í Borgarneskirkju í aðdraganda jóla. Troðfyllt kirkjuna…Lesa meira