Fréttir

true

Björgunarsveitir til aðstoðar húseigendum

Björgunarsveitir á vestanverðu landinu hafa á undanförnum sólarhring verið kallaðar út til aðstoðar vegna óveðurs og foks. Meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi á Akranesi. Þá voru félagar í Björgunarfélagi Akraness að aðstoða nokkra húseigendur. Meðal annars voru þakplötur farnar að losna á húsi við Suðurgötu og pússning á húsi við Höfðabraut. Á þriðju hæði…Lesa meira

true

Búið að loka Holtavörðuheiði og Bröttubrekku

Nú er búið að loka veginum um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Vegagerðin bendir á að hægt er að aka hjáleið um Heydal og Laxárdalsheiði. Að öðru leyti eru vegir á vestanverðu landinu færir en settir hálkublettum á láglendi. Snjókoma eða éljagangur er nokkuð víða og hvasst. Spáð er leiðindaveðri um landið vestan- og norðvestanvert í meira…Lesa meira

true

Líður að kjöri á Íþróttamanni Akraness 2016

Nú líður að kjöri á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2016 og afhendingu á Friðþjófsbikarnum í 26. skipti, en 15 íþróttamenn eru tilefndir að þessu sinni. Valið fer fram með þeim hætti að níu manna nefnd greiðir atkvæði í kjörinu en auk þeirra er eitt atkvæði sem gefið er í almennri kosningu á vef Akraneskaupstaðar. Geta…Lesa meira

true

Engey væntanleg til landsins seinni part janúar

HB Grandi mun að óbreyttu taka á móti Engey RE 91 í Tyrklandi 6. janúar næstkomandi. Afhending hefur dregist nokkuð en skipið er það fyrsta af þremur togurum sem félagið er með í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Celiktrans. Seinni skipin tvö verða afhent síðar á næsta ári, það fyrra í vor og það seinna næsta haust.…Lesa meira

true

Hált og hvasst en víða er þó fært

Á vegum á Vesturlandi er nú víða éljagangur og hvasst, en þó er víða autt á vegum eða hálkublettir. Stórhríð er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku og hálka. Þá er hálka á Svínadal en snjóþekja á Laxárdalsheiði. Fólk er áfram hvatt til að fylgjast með veðurspám og fréttum af færð. Þær má m.a. finna hér neðar…Lesa meira

true

Nýjar björgunarklippur til Grundarfjarðar

Slökkvilið Grundarfjarðar fékk á dögunum afhentar nýjar björgunarklippur sem leysa eldri búnað af hólmi. Björgunarklippurnar sem liðið var með áður voru orðnar úreltar og þörfnuðust viðhalds sem hefði kostað mikið. Því var ráðist í að fjárfesta í nýjum klippum af gerðinni Holmatro. Þessar klippur eru rafhlöðuknúnar og því þarf sá sem þeim beitir ekki að…Lesa meira

true

Kennarasambandið stefnir íslenska ríkinu

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur samþykkt að stefna íslenska ríkinu vegna breytinga á lögum um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Frumvarpið sem Alþingi samþykkti skömmu fyrir jól var ekki í samræmi við það samkomulag sem gert var við forystu opinberu stéttarfélaganna og því telur Kennarasambandið samkomulag ekkert gildi hafa þegar Alþingi fjallaði um málið. „Þeir þingmenn sem fullyrtu…Lesa meira

true

Notuðum frímerkjum safnað til hjálparstarfs

Samband íslenskra kristniboðsfélaga í samstarfi við Póstinn, hefur söfnun á notuðum frímerkjum frá og með 27. desember. Heiti verkefnis er: „Hendum ekki verðmætum!“ Söfnunin stendur til 31. janúar 2017 og er tekið við frímerkjum og umslögum á pósthúsum um land allt. Skorað er á einstaklinga og fyrirtæki að skila notuðum frímerkjum í safnkassa sem eru…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir á Snæfellsnesi

Rafmagn fór af Stykkishólmi kl. 20:16 í kvöld þegar 66 kV flutningslínan frá Vegamótum í Vogaskeið leysti út vegna bilunar í flutningskerfi Landsnets. Í tilkynningu frá bilanavakt Rarik kemur fram að rafmagn komst aftur á stuttu síðar eða um kl. 20:30. Þá segir í annarri tilkynningu að raforkunotendur í Grundarfirði og nágrenni megi búast við…Lesa meira

true

Lægðin á morgun dýpri en í fyrstu var áætlað

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill koma á framfæri viðvörun vegna veðurútlits á morgun, miðvikudag: “Áfram er búist við slæmu veðri en í kvöld og nótt kólnar talsvert með skúrum eða éljum. Morgundagurinn verður sömuleiðis stormasamur og svalur með éljagangi, einkum á vestanverðu landinu. Viðbúið er að færð spillist þá fyrir norðan og vestan. Þessi lægð verður aðeins…Lesa meira