Fréttir

true

Olía lak af vöruflutningabíl

Vegurinn milli Rifs og Ólafsvíkur var um tíma lokaður í morgun vegna olíuleka frá vöruflutningabíl með aftanívagni. Óhapp þetta varð við afleggjarann í Neðra-Rif. Báðir bílar Slökkviliðs Snæfellsbæjar voru kallaðir út um tíuleytið. Að sögn sjónarvotta var um töluvert mikinn leka að ræða og olíubrák á veginum sem þurfti að hreinsa upp áður en umferð…Lesa meira

true

Sýndu úr hverju þær eru gerðar á lokamínútunum

Síðustu leikir Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik fyrir jólafrí voru leiknir á laugardaginn var. Snæfell tók á móti Grindavík í Hólminum og höfðu Íslandsmeistararnir þriggja stiga sigur, 75-72, eftir spennandi lokamínútur. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en gestirnir komust yfir fyrir miðjan leikhlutann og leiddu að honum loknum, 19-23. Þá hertu Snæfellskonur varnarleikinn…Lesa meira

true

Kalli og Bjarni spiluðu til sigurs

Briddsfélag Akraness hefur spilað á hverju fimmtudagskvöldi frá 29. september í haust og þar til síðastliðinn fimmtudag, eða samtals 12 kvöld. Gekk á ýmsu eins og gengur en alltaf var spilaður eins kvölds tvímenningur. Hlutskarpastir í mótaröðinni urðu Karl Alfreðsson og Bjarni Guðmundsson sem spiluðu á tíu kvöldum og sóttu fjóra sigra, fengu þeir fyrir…Lesa meira

true

Háskólar landsins eru í fordæmalausri stöðu

„Ljóst er að þær fjárhæðir sem háskólum landsins eru ætlaðar samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi standa ekki undir því mikilvæga starfi sem skólarnir sinna,“ segir í yfirlýsingu frá rektorum allra íslensku háskólanna. „Háskólar í nágrannaríkjum okkar fá tvöfalt hærri framlög á hvern nemanda og endurspeglar það raunverulegan kostnað háskólastarfs. Til þess að ná meðaltali framlaga í OECD-ríkjunum…Lesa meira

true

Jólaverslun fór af stað með krafti

Samkvæmt könnun Rannsóknaseturs verslunarinnar fór jólaverslunin í nóvember af stað með meiri krafti en áður. „Black Friday virðist hafa haft hvetjandi áhrif á verslun. Þannig jókst sala á stórum raf- og heimilistækjum um fjórðung frá sama mánuði í fyrra og aukning í sölu minni raftækja, eins og sjónvörpum, var um 15%. Húsgagnaverslun var einnig blómleg…Lesa meira

true

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar afgreidd með tekjuafgangi

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 ásamt þriggja ára áætlun áranna 2018-2020 á fundi sínum 13. desember síðastliðinn. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að á árinu 2017 verði rekstrarniðurstaða samstæðu A og B hluta jákvæð um 35,5 milljónir króna. Svipuð rekstrarniðurstaða er fyrir þrjú árin þar á eftir samkvæmt áætlun. Áætlað er að…Lesa meira

true

Prestsbústaður lagfærður og talinn íbúðarhæfur

Í Skessuhorni nýverið var frétt þess efnis að biskup hafi í byrjun þessa mánaðar tilkynnt sóknarnefndum í Staðastaðarprestakalli um þá ákvörðun sína að aflétta búsetuskyldu sóknarprests á kirkjustaðnum Staðastað. Séra Þorvaldur Víðisson biskupsritari segir að ákvörðunin feli í sér að sóknarprestur geti nú um sinn ákveðið hvar búseta hans verður. Hluti sóknarbarna í Staðastaðarsókn á…Lesa meira

true

Kólnar í veðri og éljagangur framundan

Vegagerðin vill koma því á framfæri að spáð er afgerandi breytingum í veðri til morguns. Él verða í dag á sunnanverðum Vestfjörðum og kólnar almennt séð talsvert til morguns. Í fyrramálið má reikna með að snjór eða hálka verði á flestum vegum um vestanvert landið.Lesa meira

true

Engispretta á ferðinni í Borgarnesi

Starfsmenn Borgarverks í Borgarnesi hafa nú í vörslu sinni sex sentimetra langa engisprettu sem barst til landsins og upp í Borgarnes með varahlutasendingu frá Suður-Kóreu. Hafliði Gunnarsson vélamaður hjá fyrirtækinu segir í samtali við Skessuhorn að engispretta þessi hafi komið skríðandi á móti starfsmönnum þegar umbúðir voru teknar utan af beltakeðju. „Þetta er ótrúlega lífsseigt…Lesa meira

true

Valdís á pari eftir fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hóf leik í dag á lokaúrtökumótinu í Mónakó fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET mótaröðina. Á kylfingi.is segir að hún hafi leikið hringinn á 72 höggum eða pari vallar og sé nú jöfn í 32. sæti. „Hún fékk tvo fugla og tvo skolla á mjög stöðugum og…Lesa meira