
Á haustfundi Hrossaræktarsambands Vesturlands voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir kynbótastarf og ræktun. Fremstu verðlaun hvers árs er þó viðurkenning fyrir Hrossaræktarbú Vesturlands. Að þessu sinni er það Skipaskagi, bú hjónanna Sigurveigar Stefánsdóttur og Jóns Árnasonar á Litlu-Fellsöxl. Tvisvar áður hefur búið hlotið þennan heiður en það voru árin 2008 og 2010. Í Skessuhorni í dag…Lesa meira








