Fréttir

true

Norræna bókasafnavikan og Dagur íslenskrar tungu í Snorrastofu

Boðið verður til fjölbreyttrar dagskrár á vegum Snorrastofu í þessari viku sem Samband norrænu félaganna hafa valið til að kynna bókmenntir og frásagnarhefð á Norðurlöndum og nágrenni, Norrænu bókasafnavikunni. Svo heppilega vill til að Dagur íslenskrar tungu fellur í þessa viku nú sem oftar og spillir það ekki áhrifamætti þessa framtaks. Ef efni vikunnar er…Lesa meira

true

Andlát: Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður

Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður er látinn, 86 ára að aldri. Páll fæddist í Vestmannaeyjum 25. júlí 1930. Hann einbeitti sér að heimildamyndum og þótti afar hæfur á sínu sviði og einn af merkari kvikmyndagerðarmönnum hér á landi. Páls er minnst á Eyjar.net. Þar segir að hann hafi lært bókmenntir, líffræði og myndlist erlendis og lagt einnig…Lesa meira

true

Fresta launahækkunum sveitarstjórnarfulltrúa

Laun kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum taka mið af þingfararkaupi, en eins og kunnugt er tók Kjararáð ákvörðun um að hækka laun æðstu embættismanna og þingmanna um 20-44%. Sú ákvörðun var tekin á kjördag, 29. október sl. og hefur vakið mikla umræðu í þjóðfélaginu. Nú hafa bæði sveitarstjórn Borgarbyggðar og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar tekið ákvörðun um að…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Glæstir taktar sáust á Árgangamóti

Líkt og áður var líf og fjör á Árgangamóti ÍA sem haldið var í Akraneshöllinni á laugardaginn. Til leiks voru skráð 25 lið, 19 karlalið og sex kvennalið. Af meðfylgjandi myndum að dæma höfðu menn engu gleymt. Góðir taktar sáust og menn lögðu mikið á sig, jafnvel meira en stirðir vöðvar og liðir þoldu. Hins…Lesa meira

true

Eiríksjökull umvafinn stórbrotnum skýjum

Snorri Jóhannesson á Augastöðum í Borgarfirði náði í birtingu í morgun ljósmynd af afar óvenjulegu skýjafari. Myndin er tekin neðan við bæinn Stóra-Ás. Engu líkara var en risastór hattur hefði verið lagður öfugur ofan á jökulkollinn. Hávaða rok var þegar myndin var tekin; austan og suðaustan vindur.Lesa meira

true

Skyttur á utanvegarakstri í þjóðgarði – þrefalt brot samtímis

Tveir menn voru tilkynntir fyrir utanvegaakstur í utanverðum þjóðgarði Snæfellsjökuls í gær og náði tilkynnandinn ljósmyndum af akstri viðkomandi jeppa. Í frétt frá Lögreglunni á Vesturlandi segir að þegar lögreglan hafi stöðvað mennina á Snæfellsnesvegi hafi fljótlega vaknað grunur um að þeir hefðu verið á rjúpnaveiðum og það í þjóðgarði þar sem öll meðferð skotvopna…Lesa meira

true

Erfiðar ákvarðanir framundan ef ekki koma aukin framlög

Rektorar allra íslensku háskólanna sendu nýverið verðandi ríkisstjórn og nýkjörnum þingmönnum áskorun um að hækka framlög til háskólanna að lágmarki um tvo milljarða króna árlega á næstu árum. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, segir undirfjármögnun háskólakerfisins hafa bitnað á Háskólanum á Bifröst eins og öðrum háskólum. „Á sama tíma og sjálft skólastarfið hefur verið…Lesa meira

true

Búið að opna fyrir umferð undir Hafnarfjalli

Vegurinn undir Hafnarfjalli hefur verið opnaður fyrir umferð að nýju, en honum var lokað vegna hvassviðris í morgun. Þá var stöðugur vindur ASA 28 m/sek og sló upp í 50 m/s í hviðum þegar hvassast var, milli kl. 7 og 11 nú í morgun. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi nú laust fyrir hádegi kemur…Lesa meira

true

Sveitarstjórn hverfur frá hugmyndum um færslu hringvegar um Borgarnes

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í gær var til umræðu Samgönguáætlun Vesturlands fyrir 2017-2029, einkum er varðar fyrirhugaða hjáleið á þjóðvegi 1 um Borgarnes. Gert hefur verið ráð fyrir færslu þjóðvegarins í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Um árabil hefur verið rætt um þann möguleika að færa þjóðveginn út fyrir þéttbýlið, en um það hafa verið skiptar skoðanir.…Lesa meira