
Rafmagnslaust varð í nótt í Ólafsvík og á Hellissandi. Bilun varð á flutningslínu Landsnets á Fróðarheiði. Varaafl var keyrt þar til viðgerð lauk á níunda tímanum í morgun.Lesa meira

Rafmagnslaust varð í nótt í Ólafsvík og á Hellissandi. Bilun varð á flutningslínu Landsnets á Fróðarheiði. Varaafl var keyrt þar til viðgerð lauk á níunda tímanum í morgun.Lesa meira

Snorri Jóhannesson á Augastöðum í Borgarfirði náði í birtingu í morgun ljósmynd af afar óvenjulegu skýjafari. Myndin er tekin neðan við bæinn Stóra-Ás. Engu líkara var en risastór hattur hefði verið lagður öfugur ofan á jökulkollinn. Hávaða rok var þegar myndin var tekin; austan og suðaustan vindur.Lesa meira

Tveir menn voru tilkynntir fyrir utanvegaakstur í utanverðum þjóðgarði Snæfellsjökuls í gær og náði tilkynnandinn ljósmyndum af akstri viðkomandi jeppa. Í frétt frá Lögreglunni á Vesturlandi segir að þegar lögreglan hafi stöðvað mennina á Snæfellsnesvegi hafi fljótlega vaknað grunur um að þeir hefðu verið á rjúpnaveiðum og það í þjóðgarði þar sem öll meðferð skotvopna…Lesa meira

Rektorar allra íslensku háskólanna sendu nýverið verðandi ríkisstjórn og nýkjörnum þingmönnum áskorun um að hækka framlög til háskólanna að lágmarki um tvo milljarða króna árlega á næstu árum. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, segir undirfjármögnun háskólakerfisins hafa bitnað á Háskólanum á Bifröst eins og öðrum háskólum. „Á sama tíma og sjálft skólastarfið hefur verið…Lesa meira

Vegurinn undir Hafnarfjalli hefur verið opnaður fyrir umferð að nýju, en honum var lokað vegna hvassviðris í morgun. Þá var stöðugur vindur ASA 28 m/sek og sló upp í 50 m/s í hviðum þegar hvassast var, milli kl. 7 og 11 nú í morgun. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi nú laust fyrir hádegi kemur…Lesa meira

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í gær var til umræðu Samgönguáætlun Vesturlands fyrir 2017-2029, einkum er varðar fyrirhugaða hjáleið á þjóðvegi 1 um Borgarnes. Gert hefur verið ráð fyrir færslu þjóðvegarins í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Um árabil hefur verið rætt um þann möguleika að færa þjóðveginn út fyrir þéttbýlið, en um það hafa verið skiptar skoðanir.…Lesa meira

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur staðfest þá ákvörðun umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar sveitarfélagsins frá 2. nóvember síðastliðnum að hafna fyrirliggjandi tilboðum í sameiginlega sorphirðu fyrir Borgarbyggð og Akranes. Tvö tilboð bárust eftir útboð og voru þau bæði um 40% yfir kostnaðaráætlun. Þar bauð Íslenska gámafélagið 780 milljónir króna en Gámaþjónusta Vesturlands 795 milljónir. Kostnaðaráætlun í verkið hljóðaði…Lesa meira

Botnlið Snæfells ferðaðist norður á Sauðárkrók í gær og mætti liði Tindastóls í sjöttu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Ungt lið Snæfells hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er vetri og að lokum fór svo að Tindastóll vann stórsigur, 100-57. Í stuttu máli sáu Snæfellingar aldrei til sólar í leiknum. Heimamenn tóku öll…Lesa meira

Löngu boðað verkfall sjómanna á fiskiskipaflotanum hófst klukkan 23 í gærkvöldi eftir að slitnað hafði upp úr viðræðum þeirra og SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Reynt var til þrautar að ná samningum, en um klukkan 21:30 í gær þótti sýnt að ekki yrði af því. Viðræður aðila strönduðu á mönnunarmálum í fiskiskiptaflotanum, eða hluta flotans.…Lesa meira

Búið er að loka veginum við Hafnarfjalli vegna veðurs. Þar eru núna ASA 28 metrar á sekúndu og slær upp í 50 metra í hviðum. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi. Í dag er spáð suðaustan stormi eða roki um tíma. Reikna má með snörpum hviðum allt að 40 m/s á milli klukkan…Lesa meira