Fréttir

true

Afhenda öllum sveitarfélögum hraðhleðslustöðvar

Fyrirtækið Orkustöðin ehf. mun fyrir árslok afhenda öllum sveitarfélögum landsins hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. Er það liður í átaki fyrirtækisins til að bæta aðgengi eigenda rafmagnsbíla að hleðslustöðvum og hvetja á þann hátt til notkunar rafmagnsbíla. Um miðjan þennan mánuð var nokkrum sveitarfélögum á Vesturlandi afhentar slíkar stöðvar, meðal annars í Borgarbyggð. Á fundi byggðarráðs í…Lesa meira

true

Ungt fólk sér fjölda tækifæra í heimabyggð

Nýverið boðaði svæðisskipulagsnefnd fyrir landssvæði Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar til opins fundar í húsnæði Alta við Ármúla í Reykjavík. Bar fundurinn yfirskriftina „Heimahagarnir og hamingjan“ og var sérstaklega ætlaður ungu fólki, 30 ára og yngri, sem kemur frá sveitarfélögunum þremur en er búsett á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess. Skipulagsráðgjafar Alta kynntu vinnu við gerð…Lesa meira

true

Spenna fram á síðasta spil

Aðaltvímenningskeppni Briddsfélags Borgarfjarðar lauk í gær. Fimmtán pör tóku þátt á mótinu og dreifðist keppnin á fimm kvöldum. Sjaldan í sögu félagsins hefur spennan verið jafn mikil, en úrslit réðust ekki fyrr en í lokaspili. Úrslit urðu þau að Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson höfðu sigur, með 56,2% skori, hársbreidd á undan þeim Jóni Einarssyni…Lesa meira

true

Fordæma slæman aðbúnað varphænsna hjá Brúneggjum

Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var fjallað um málefni eggjaframleiðandans Brúneggja ehf. sem reka bú á Kjalarnesi og í Borgarfirði. Þar kom meðal annars fram að fyrirtækið hefur ekki sinnt aðfinnslum Matvælastofnunar með fullnægjandi hætti vegna athugasemda um aðbúnað dýra. Skort hefur á viðeigandi ráðstafanir til að mæta kröfum sem gerðar eru til eggjaframleiðenda. Auk…Lesa meira

true

Landsmót 50+ verður í Hveragerði

Forsvarsmenn Hveragerðisbæjar, Ungmennafélags Íslands og HSK hafa skrifað undir samning þess efnis að Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hveragerði næsta sumar, nánar til tekið helgina 23.-25. júní. Gert er ráð fyrir miklum fjölda þátttakenda á mótið. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið hugsað fyrir þátttakendur á aldrinum 50 ára og eldri. Boðið…Lesa meira

true

Daði og Marta í 8. sæti á heimsmeistaramótinu

Vestlensku dansararnir Daði Freyr Guðjónsson og Marta Carrasco tóku þátt á heimsmeistaramótinu í 10 dönsum sem haldið var í Linz í Austurríki síðastliðinn laugardag 19. nóvember síðastliðinn. Marta og Daði kepptu í flokki fullorðinna og stóðu sig með stakri prýði. Parið dansaði til úrslita í fjórum Latin dönsum ásamt sex öðrum pörum og hafnaði í…Lesa meira

true

Þökulagt í lok nóvember

Það lá vel á félögunum Eymari og Togga þegar þeir voru að þökuleggja við hafnarsvæðið í Ólafsvík í gær. Hitinn var um fjórar gráðurnar og milt í veðri. Ekki er ofsagt að þökulagning er óalgeng þegar aðventan er gengin í garð. Veðrir í haust hefur hins vegar verið með besta móti og nánast froslaust það…Lesa meira

true

Jólasamkeppni Skessuhorns meðal grunnskólanema

Skessuhorn gengst nú tólfta árið í röð fyrir samkeppni meðal grunnskólabarna á Vesturlandi í gerð jólamynda. Líkt og undanfarin ár verður keppnin í þremur flokkum, en breytt í hópi elstu nemenda grunnskóla. Í fyrsta lagi býðst öllum börnum á aldrinum 6-9 ára (1. – 4. bekkur) að senda inn teiknaðar og litaðar myndir (A4) þar…Lesa meira

true

Norðurál tíundi hæsti skattgreiðandinn

Landsbankinn greiddi mest allra lögaðila í skatt á síðasta ári, eða um 12,3 milljarða króna, og ríkissjóður kemur þar næst á eftir með 11,2 milljarða króna. Norðurál á Grundartanga er í tíunda sæti yfir hæstu skattgreiðendur liðins árs, með rúma tvo milljarða í skatta. Inni í þeirri tölu eru ekki greiðslur til sveitarfélaga, svo sem…Lesa meira

true

Fjórir kórar sameinast á jólatónleikum á Akranesi

Karlakórinn Svanir, Grundartangakórinn, Kór Saurbæjarprestakalls og Kvennakórinn Ymur héldu á aðventunni í fyrra sameiginlega jólatónleika sem heppnuðust prýðilega. Færri komust að en vildu. Nú hafa kórarnir ákveðið að endurtaka leikinn. Blásið verður til jólatónleika fimmtudaginn 8. desember klukkan 20 í Tónbergi á Akranesi. „Þetta var hugmynd sem Jóna Björg Kristinsdóttir formaður Kvennakórsins Yms fékk. Í…Lesa meira