Fréttir

true

Þorsteinn Már er Íþróttamaður Grundarfjarðar

Margt var um að vera í Grundarfirði í gær, á fyrsta sunnudegi í aðventu. Markaður var í Samkomuhúsinu þar sem fólk sýndi og seldi ýmsan varning. Veittar voru viðurkenningar í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar. Í fyrsta og öðru sæti urðu myndir eftir Salbjörgu Nóadóttur. Þriðju verðlaun hlaut Sigríður Dilja Guðmundsdóttir. Loks var veitt viðurkenning eftir kjör á…Lesa meira

true

Skagamenn unnu dramatískan sigur á Hamri

Skagamenn gerðu góða ferð suður í Hveragerði síðastliðinn föstudag þegar þeir mættu Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók við kaflaskiptur síðari hálfleikur hjá leikmönnum ÍA en það kom ekki að sök. Skagamönnum tókst að tryggja sér dramatískan eins stigs sigur, 75-76 á lokasekúndum leiksins og þar með annan sigurinn…Lesa meira

true

Eigendur Víðgelmis hljóta Nýsköpunarverðlaun SSV

Á Degi nýsköpunar sem haldinn var í Landnámssetrinu í Borgarnesi síðastliðinn miðvikudag voru veitt Nýsköpunarverðlaun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Verðlaunin eru, eins og nafnið gefur til kynna, veitt af SSV en um árabil var það hluti af starfi samtakanna að halda nýsköpunardag og veita nýsköpunarverðlaun. Sú hefð hefur nú verið endurvakin. Verðlaunahafinn var valinn af…Lesa meira

true

Saga Akraness seld á menningarstofnunum bæjarins

Bæjarráð Akraness samþykkti nýverið tillögu bæjarstjóra um heimild til að selja ritið Sögu Akraness á menningarstofnunum bæjarins. Akraneskaupstaður eignaðist 250 sett af ritinu þegar fyrirtækið Uppheimar varð gjaldþrota. Fyrir lagerinn greiddi Akraneskaupstaður 500 þúsund krónur en ásamt Sögu Akraness fékk bæjarfélagið einnig töluvert magn af Árbók Akraness. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri vonast til að bæjarbúar vilji…Lesa meira

true

Gjaldskrárbreytingar framundan hjá Veitum

Um áramótin munu Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lækka gjöld fyrir raforkudreifingu og kalt vatn, en hækka verð á heitu vatni og fráveitu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að jafnaði muni vatns,- rafmagns- og fráveitukosnaður lækka fyrir íbúðarhúsnæði í Reykjavík um 4.100 krónur á ári. Þar kemur hins vegar ekki fram hvernig samanlögð breyting allra…Lesa meira

true

Jólaljósin tendruð á Akratorgi

Margt var um manninn á Akratorgi á Akranesi síðdegis í gær þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu við hátíðlega athöfn. Skólakór Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði frá uppruna trésins og aðstoðaði systkinin Wiktoriu Fiszer 8 ára og Przemyslaw Fiszer 12 ára við að…Lesa meira

true

Hvimleiðar vegablæðingar á Holtavörðuheiði

Vegagerðin vekur athygli á því að blæðing er á slitlagi á vegarköflum um Holtavörðuheiði, allt frá Norðurárdal í Borgarfirði og í Hrútafjörð. Þetta getur valdið því að tjara safnast í hjólskálar bíla, en einnig á boddýhluti, raflagnir, fjöðrunarbúnað og hjólbarða. Flutningabílstjórar sem lenda í tjörumengun af þessu tagi hafa í fjölmiðlum bent á að best…Lesa meira

true

Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir

Út er komin ný rafbók eftir Braga Þórðarson rithöfund og útgefanda á Akranesi og nefnist hún Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir. Þetta er 21. bók höfundar um fólk og mannlíf á Akranesi og í Borgarfirði. Bókaútgáfan emma.is er útgefandi bókarinnar. Bókin er eingöngu fáanleg sem rafbók og seld á á netinu á Amazon.com,…Lesa meira

true

Grindvíkingar stungu Snæfell af í síðari hálfleik

Botnlið Snæfells mætti Grindavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og unnu að lokum 36 stiga sigur, 108-72. Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir náðu tólf stiga forskoti um hann miðjan áður en heimamenn…Lesa meira

true

Stjörnuhrap í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti toppliði Stjörnunnar í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn léku afar vel allan leikinn bæði í vörn og sókn, börðumst um hvern bolta og unnu að lokum frækinn sigur á firnasterku liði Stjörnunnar, 78-73. Skallagrímur hafði yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en forysta þeirra var þó aldrei meiri en…Lesa meira