Fréttir

true

Gleðifundur framundan í Reykholtsdal

Hið síunga, en 108 ára Ungmennafélag Reykdæla, stendur fyrir Gleðifundi í félagsheimilinu sínu Logalandi næstkomandi laugardag, 26. nóvember. Á dagskrá eru hefðbundin gleðifundarstörf, gamanmál og gleði, en eftir það verður slegið upp dansleik þar sem hljómsveitin Meginstreymi leikur fyrir dansi.  Húsið verður opnað klukkan 20:30 en skemmtunin hefst klukkustund síðar. Aldurstakmark á dansleik er 16…Lesa meira

true

Sakfelldur fyrir líkamsárás

Maður var í Héraðsdómi Vesturlands í byrjun mánaðarins sakfelldur fyrir líkamsárás. Honum var gefið að sök að hafa, aðfaranótt 27. desember 2015 við veitingahúsið Gamla Kaupfélagið á Akranesi, slegið mann hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að hann féll í götuna. Hlaut fórnarlambið við það höfuðhögg, varð rænulítill stutta stund og bólgnaði á vinstri kinn,…Lesa meira

true

Logi og Heiðar setja ný viðmið við spilaborðið

Á mánudagskvöldið var fjórða kvöld aðaltvímennings Briddsfélags Borgarfjarðar en alls er spilað á fimm kvöldum. Ungstirnin Logi og Heiðar mættu afar einbeittir til leiks og byrjuðu á því að knésetja þá sem mótið leiddu. Áfram hélt djöfulgangurinn í peyjunum allt kvöldið og þegar pakkað var saman kom i ljós að þeir voru komnir á toppinn…Lesa meira

true

Segir innflutning á hráu kjöti ógn við matvælaöryggi

Í kjölfar dóms héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp fyrir helgi í máli Ferskra kjötvara ehf. gegn íslenska ríkinu, ítreka Bændasamtökin afstöðu sína að nauðsynlegt sé að viðhalda innflutningsbanni á hráu, ófrosnu kjöti. „Um árabil hafa bændur haldið fram rökum sem mæla gegn innflutningi á hráu kjöti af heilsufarsástæðum. Við innleiðingu matvælalöggjafar ESB var þetta…Lesa meira

true

Kennarar á Akranesi fjölmenntu á samstöðufund

Grunnskólakennarar á Akrnanesi héldu í dag sameiginlegan fund á Jaðarsbökkum. Umræðuefnið var kjaramál og staða viðræðna Félags grunnskólakennara við sveitarfélögin. Fundurinn samþykkti ályktun, sem send verður Kennarasambandi Íslands, stjórn FG og bæjaryfirvöldum á Akranesi. Hún hljóðar svo: „Kennarar í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla lögðu niður störf í dag klukkan 13:30 og fjölmenntu á samstöðufund til að…Lesa meira

true

Hugur í Miðhraunsbændum þrátt fyrir áfallið

Sigurður Hreinsson og Bryndís Guðmundsdóttir á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi eru afar þakklát slökkviliðsmönnum fyrir vasklega framgöngu á vettvangi brunans í gærmorgun. „Þeir stóðu sig eins og hetjur og vil ég koma á framfæri kæru þakklæti til allra slökkviliðsmanna og annarra sem komu að aðstoð við okkur,” sagði Sigurður í samtali við blaðamann Skessuhorns…Lesa meira

true

Gert klárt fyrir aðventuna sem brátt gengur í garð

Aðventan nálgast óðfluga og á næstu dögum verða ljósin tendruð á jólatrjám í sveitarfélögum víðast hvar á Vesturlandi. Í Snæfellsbæ verða að vanda sett upp jólatré í tveimur þéttbýliskjörnum, á Hellissandi og í Ólafsvík. Verða ljósin tendruð á þeim trjám næstkomandi sunnudag. Búið er að sækja trén en það var fyrirtækið B. Vigfússon ehf. sem…Lesa meira

true

Metþátttaka á öðru klifurmóti vetrarins

Annað mót vetrarins, þar sem þátttakendur frá Klifurfélagi Akraness tóku þátt, var haldið í Klifurhúsinu í Reykjavík á sunnudaginn. Fjölmargir ungir klifrarar mættu til þátttöku og voru að um 90 klifrarar sem tóku þátt. Nálægt 20 klifrarar frá ÍA á aldrinum 6-16 ára mættu til leiks og var gaman að sjá svona mörg ÍA merki…Lesa meira

true

Víkingur á toppi riðilsins í Futsal

Fyrri umferð í Íslandsmeistaramótinu í Futsal fór fram í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Víkingur Ólafsvík keppir í D-riðli en þeir urðu Íslandsmeistarar á síðasta ári. Með Víkingi í D-riðli eru Stál-Úlfur, Augnablik og Snæfell. Víkingur er í efsta sæti riðilsins með níu stig eftir umferðina. Unnu þeir alla sína leiki, skoruðu 16 mörk og feng…Lesa meira

true

Ágúst Júlíusson varð tvöfaldur Íslandsmeistari um helgina

Sundfólk úr Sundfélagi Akraness gerði gott mót á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem fram fór um helgina. Alls kepptu níu sundmenn frá félaginu á mótinu og sneru þrír þeirra heim með verðlaunapeninga. Ágúst Júlíusson varð Íslandsmeistari í bæði 50 og 100 metra flugsundi. Hann setti nýtt Akranesmet og var undir lágmarkinu sem þarf til…Lesa meira