Fréttir

true

Besti lambhrúturinn frá Haukatungu Syðri II

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var á laugardag en hún var sem fyrr haldin á tveimur stöðum. Fyrri hluti sýningarinnar fór fram á Gaul í Staðarsveit en síðari hlutinn um kvöldið að Haukatungu Syðri II í Kolbeinsstaðarhreppi. Besta kollótta hrútinn átti Dalsmynnisbúið og besta lambhrút sýninganna þau Helga og Ásbjörn í Haukatungu Syðri II, sem og…Lesa meira

true

Norskt sveitarfélag dæmt til að greiða eineltisbætur

Sveitarfélagið Stavanger í Noregi hefur verið dæmt til að greiða 37 ára gamalli konu 1.260 þúsund norskar krónur í miskakosnað vegna skefjalauss eineltis sem konan varð fyrir nær alla sína barna- og framhaldsskólagöngu. Samkvæmt dómnum var eineltið sem hún varð fyrir viðvarandi daglega frá því hún gekk í þriðja bekk. Í kjölfar eineltisins þykir sannað…Lesa meira

true

Íbúðarhúsið á Kolbeinsstöðum brann

Gamla íbúðarhúsið á Kolbeinsstöðum í Kolbeinsstaðarhreppi varð eldi að bráð í nótt. Húsið var mannlaust en ekki hefur verið búið í því um nokkurra mánaða skeið. Hafin var endurbygging þess og var húsið tengt rafmagni. Slökkvilið Borgarbyggðar var ræst út laust eftir klukkan sjö í morgun. Þá hafði eldurinn logað um hríð og er húsið…Lesa meira

true

Oddviti Dögunar kallar eftir sanngjarnara samfélagi

Sigurjón Þórðarson er oddviti Dögunar í Norðvesturkjördæmi. Á sætunum næst á eftir honum sitja Pálmey Gísladóttir, Þórður A Júlíusson, Pétur Guðmundsson og Guðjón Arnar Kristjánsson. Sigurjón er ættaður af Snæfellsnesi en býr í dag á Sauðárkróki þar sem hann er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðvesturlands og í hlutastarfi sem líffræðikennari í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Hann…Lesa meira

true

Slæmt fjarskiptasamband var björgunarsveitarmönnum til trafala

Í fyrrakvöld fékk Björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði útkall vegna ferðamanna sem höfðu fest bíl sinn við vaðið yfir Mjódalsá inn af Langavatnsdal. Þegar þangað var komið beið björgunarsveitarmanna hins vegar aðeins harðlæstur bíllinn en engir ferðamenn. Ákveðið var að kalla eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi, fá þá til að fara inn Grenjadal og hitta…Lesa meira

true

Tillögur sveitarfélaganna um Samgönguáætlun Vesturlands 2017-2029

Á haustþingi SSV í fyrra var þeirri hugmynd skotið á loft að sveitarfélögin á Vesturlandi skyldu setja sér sameiginleg markmið í samgöngumálum, til að geta betur þrýst á framkvæmdavaldið. Settur var á fót vinnuhópur sem fékk það hlutverk að gera heildstæða úttekt í samgöngumálum landshlutans. „Skipaðir í þennan starfshóp voru sjö vörpulegir miðaldra karlar sem…Lesa meira

true

Stoltir nemendur með fjörutíu kílóa uppskeru

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi nýttu sér góða veðrið í lok september til að sinna haustverkum en í vor settu þau niður kartöflur í matjurtargarð skólans. Verkefnið er hluti af átthagafræðinámi skólans en þau létu kartöflurnar spíra í vor og með aðstoð kennara og starfsfólks stungu þau upp garðinn og settu kartöflurnar…Lesa meira

true

Samið við Jón Þór um áframhaldandi þjálfun hjá KFÍA

Knattspyrnufélags ÍA mun áfram njóta krafta Jón Þórs Haukssonar yfirþjálfara yngri flokka og afreksstarfs og sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Jón Þór hefur skrifað undir áframhaldandi samning við Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA). Hann hefur starfað hjá félaginu sem þjálfari undanfarin átta ár, tók við starfi yfirþjálfara haustið 2013 en hann hefur síðan þá einnig verið aðstoðarþjálfari mfl.…Lesa meira

true

Þúsund manns sátu ráðstefnu um björgunarmál í Hörpu

Rétt rúmlega þúsund manns sátu um helgina alþjóðlegu ráðstefnuna Björgun16 sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stóð fyrir í Hörpu í Reykjavík. Fjöldi innlendra- og erlendra sérfræðinga á sviði björgunarmála fluttu um 60 fyrirlestra á ráðstefnunni. Samhliða ráðstefnunni er haldin vörusýning fyrir fagaðila og á sýningasvæðinu utan Hörpu var sett upp ljósmyndasýning sem endurspeglar störf viðbragðsaðila á Íslandi…Lesa meira

true

Spila í Logalandi öll mánudagskvöld

Borgfirskir briddsspilarar eru búnir að dusta rykið af spilastokkunum og farnir að spila vikulega í Logalandi, fyrsta spilakvöldið var 27. september. Þá voru það Sveinbjörn Eyjólfsson og Anna Heiða Baldursdóttir sem skoruðu langmest, eða 72%. Næst var spilað 3. október og þá voru það Jón Einarsson og Ingimundur Jónsson sem skoruðu mest, eða 70%. Mánudaginn…Lesa meira