Fréttir

true

Veita byggingarleyfi en ætla síðar að leysa skort á bílastæðum

Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Borgarbyggðar síðastliðinn föstudag var tekin fyrir og samþykkt umsókn Húsa og lóða ehf. vegna væntanlegra bygginga við Borgarbraut 57 til 59 í Borgarnesi. Þar er sótt um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús fyrir 60 ára og eldri, þjónustukjarna og hótel samkvæmt aðaluppdráttum Sigursteins Sigurðssonar arkitekts hjá Gjafa ehf. Í fundargerð segir að fyrirhugaðar framkvæmdir…Lesa meira

true

Annatími í sveitum landsins

Göngur og réttir standa nú sem hæst í sveitum landsins. Í Skessuhorni vikunnar er kíkt í nokkrar réttir og myndskreytta frásögn má finna á einni opnu í blaðinu. Þótt árstímanum fylgi að sauðfjárbændur uppskeri laun erfiðisins fylgja óvenjulega blendnar tilfinningar þessu hausti. Boðuð verðlækkun fyrir afurðaverð heggur þungt í fjárhag bænda. Litið var inn á bændafund sem…Lesa meira

true

Sláturhús Vesturlands verður opnað í Borgarnesi í byrjun október

Sláturhús Vesturlands verður opnað í Stóru-Brákarey í Borgarnesi í byrjun næsta mánaðar. Það er félag í eigu Guðjóns Kristjánssonar og bræðranna Jóns, Kristins og Snorra Þorbergssonar sem stendur að opnun sláturhússins í húsnæði félagsins. Þar verður hægt að slátra 350 lömbum, 125 svínum eða 35 stórgripum á dag. Fyrstu gripunum verður slátrað í tilraunaslátrun föstudaginn…Lesa meira

true

Ráðuneytisstjóri hótar þingmanni æru- og eignamissi

Haraldur Benediktsson alþingismaður og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis hefur sent fjölmiðlum bréf þar sem hann rekur samskipti sín við Guðmund Árnason ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Haraldur segir: „Síðastliðið föstudagskvöld um kl. 20.00 hringdi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, í heimasíma minn. Vegna alvarleika símtalsins hef ég leitað til umboðsmanns Alþingis eftir leiðbeiningum, upplýst forseta Alþingis um efni símtalsins og…Lesa meira

true

Spyr hvenær bólan spryngur

“Nú þegar hagvöxturinn er farinn að verða neysludrifinn á nýjan leik og ekkert lát er á launahækkunum umfram það sem atvinnulífið í raun rís undir er hægt að byrja að telja niður í að bólan springi,” skrifar Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst í grein í Skessuhorni. Í grein sinni vekur Vilhjálmur máls á því að verðhækkun…Lesa meira

true

Hellirigning og rok í kvöld

Í kvöld hvessir mjög á Vestfjörðum og við Breiðafjörð samhliða úrkomu. Þessari fyrstu hauslægð fylgir stormur þar sem vindhraði getur orðið 25 m á sekúndu. Landsbjörg hvetur fólk á þessu svæði til að huga að lausum munum, hreinsa frá niðurföllum og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Á sunnanverðu Snæfellsnesi má gera ráð fyrir sterkum vindhviðum…Lesa meira

true

Létu greipar sópa á Snæfellsnesi

Þrír menn af erlendum uppruna voru stöðvaðir af lögreglu í Borgarnesi að kvöldi síðastliðins laugardags, eftir að sést hafði til þeirra í þjófnaðarleiðangri á Snæfellsnesi. Í Ólafsvík höfðu mennirnir m.a. náð að stela kerru, tölvu og veiðigræjum úr heimahúsi og gps staðsetningartæki, talið vera ættað úr fiskveiðibáti. Voru mennirnir handteknir og vistaðir í fangageymslum þar…Lesa meira

true

Kjarasamningarnir höfðu mikil áhrif á rekstur fyrirtækja

Í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja sinna kemur fram að síðustu kjarasamningar hafi haft mikil áhrif á rekstur ríflega 80% fyrirtækjanna, óháð því hvort þau starfa á útflutningsmarkaði eða heimamarkaði. Af fyrirtækjunum gripu 43% til almennrar hagræðingar í rekstri og 18% sögðu upp fólki vegna áhrifa kjarasamninganna. Algengast var að fækkunin næmi 1-4 starfsmönnum,…Lesa meira

true

Grunnskólanemendur þreyta fyrstu rafrænu könnunarprófin

Tímamót verða í íslensku skólastarfi þegar samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir á rafrænu formi í þessari viku og þeirri næstu. Dagana 22. og 23. september munu nemendur í 7. bekk grunnskóla þreyta rafræn próf og í næstu viku, 29. og 30. september, er röðin komin að nemendum í 4. bekk. „Rafræn…Lesa meira

true

Leit lokið – lík mannsins fundið

„Leitinni að Guðmundi L Sverrissyni, sem staðið hefur yfir frá því í gærmorgun, er lokið. Guðmundur fannst látinn í flæðarmálinu í Örlygshöfn nú rétt fyrir hádegið í dag,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum. Rannsókn á tildrögum andlátsins er í höndum lögreglunnar sem segir ekki tímabært að gefa út frekari upplýsingar um málið. „Lögreglan…Lesa meira