Fréttir

true

Félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu

Dalabyggð auglýsir félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu en þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar. Þar segir að rekstur í Árbliki sé spennandi verkefni fyrir hugmyndaríkan og nýjungagjarnan einstakling og frábært tækifæri fyrir núverandi íbúa eða þann sem vill breyta til og búa í vinalegu sveitarfélagi sem er margrómað fyrir kyrrð og náttúrufegurð. Tegund rekstrar/þjónustu…Lesa meira

true

Drop in brúðkaup fyrir þá sem vilja muna daginn

Garða- og Saurbæjarprestakall ætlar í febrúar að bjóða upp á svokölluð „drop in“ brúðkaup í Akraneskirkju, nánar tiltekið þriðjudaginn 22. febrúar 2022. „Eruð þið búin að stefna að brúðkaupi, en aldrei orðið af því, kannski út af covid eða bara einhverju allt öðru? Þann 22.02.2022 verður boðið upp á drop in brúðkaup í Akraneskirkju, einföld…Lesa meira

true

Tvær nýjar hljóðbækur frá MTH útgáfu á Akranesi

Í vikubyrjun komu út á hljóðbók skáldsögurnar „Minningar elds“ og „Ár bréfberans“ eftir Kristján Kristjánsson rithöfund. Geta hlustendur nálgast þær á Storytel en það er Kristján Franklín Magnús sem les. Minningar elds kom út árið 1989 og er fyrsta skáldsagan sem Kristján sendi frá sér. Segir frá sérkennilegri vináttu tveggja manna, Axels og Orra, þar…Lesa meira

true

Varnaræfingin Norður-Víkingur í Hvalfirði í apríl

Varnaræfingin Norður Víkingur verður haldin dagana 2.-14. apríl næstkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem æfingin hefur verið haldin síðan árið 2011. Um er að ræða tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna en einn helsti hápunktur æfingarinnar verður æfing landtöku landgönguliða bandaríska sjóhersins af sjó. Þótti besti staðurinn fyrir þann hluta æfingarinnar vera Miðsandur í…Lesa meira

true

Nýtt met í smitum innanlands – 309 í einangrun á Vesturlandi

Í gær var sett nýtt met í innanlandssmitum þegar 1.567 voru greindir með kórónuveiruna, en 43 til viðbótar voru greindir á landamærunum. 35 liggja á sjúkrahúsi með veiruna og þar af eru þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél. Þá lést kona á níræðisaldri af völdum Covid-19 í gær og hafa nú 46 látist…Lesa meira

true

Þjálfaramálin hjá ÍA skýrast mjög fljótlega

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍA, lét óvænt af störfum í gær og tók boði Knattspyrnusambands Íslands um starf aðstoðarlandsliðsþjálfara A landsliðs karla. Þetta kom fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA þar sem kom fram að á næstu dögum yrði ákveðið hver tæki við af Jóhannesi Karli. Á meðan mun þjálfarateymi…Lesa meira

true

Afurðahæstu kúabúin á landinu

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur nú birt niðurstöðu skýrsluhalds kúabúa í landinu fyrir 2021. Nythæsta kýr landsins á síðasta ári var Skör nr. 1003 á bænum Hvammi í Ölfusi. Skör mjólkaði 13.760 kíló. Hæsta meðalnyt búa var á Búrfelli í Svarfaðardal hjá þeim Guðrúnu Marinósdóttur og Gunnari Þór Þórissyni. Nytin eftir hverja árskú hjá þeim var 8.908…Lesa meira

true

Fyrsti aðkomubáturinn landaði áttatíu tonnum

Fyrsti aðkomubáturinn landaði í Ólafsvík í gærmorgun og var það línubáturinn Valdimar GK sem er í eigu Þorbjarnar í Grindavík. Aflinn var 80 tonn og sáu starfsmenn Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar um að landa úr bátnum, auk þess að sjá um að koma kosti og beitu um borð. Aflinn var svo fluttur með flutningabílum til vinnslu í…Lesa meira

true

Starfshópur um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum

Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur falið Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra að leiða starfshóp um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum og kynbundnu ofbeldi og áreiti. Aðrir í starfshópnum eru Guðfinnur Sigurvinsson verkefnastjóri, Hildur Sunna Pálmadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Eygló Harðardóttir hjá embætti ríkislögreglustjóra. Skal hópurinn styðja við uppbyggingu á samstarfi lögreglu og samstarfsaðila gegn ofbeldi og afleiðingum…Lesa meira