Jón Gunnarsson og Sigríður Björk Guðjónsdóttir.

Starfshópur um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur falið Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra að leiða starfshóp um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum og kynbundnu ofbeldi og áreiti. Aðrir í starfshópnum eru Guðfinnur Sigurvinsson verkefnastjóri, Hildur Sunna Pálmadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Eygló Harðardóttir hjá embætti ríkislögreglustjóra. Skal hópurinn styðja við uppbyggingu á samstarfi lögreglu og samstarfsaðila gegn ofbeldi og afleiðingum þess, þar á meðal í formlegri þjónustu við þolendur kynferðisbrota. Starfshópurinn mun einnig standa fyrir almennri vitundarvakningu um kynbundið ofbeldi í samfélaginu.\r\n\r\nKærum til lögreglu vegna kynferðisbrota fjölgaði um 24% frá 2020 til 2021. Heimilisofbeldismál af hendi maka eða fyrrum maka síðustu tvö árin hafa aldrei verið fleiri samkvæmt málaskrá lögreglunnar, eða í kringum 750 bæði árin. Áhrifaríkustu aðferðirnar í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi eru virkar forvarnir, vitundarvakning og þróun á þverfaglegri samvinnu lögreglu við aðra lykilaðila. Lögð er áhersla á slíkt í hinum ýmsu aðgerðaáætlunum stjórnvalda gegn ofbeldi og í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar fyrir yfirstandandi kjörtímabil.\r\n\r\nÍ vinnu hópsins verður hugað sérstaklega að viðkvæmum hópum fólks sem reynslan hefur sýnt að eru í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi. Lagt er fyrir starfshópinn að gæta að samræmi við tillögur aðgerðaáætlana stjórnvalda í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og skal starfshópurinn leggja áherslu á viðtækt samráð innan þess sviðs.",
  "innerBlocks": []
}
Starfshópur um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum - Skessuhorn