Fréttir

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Síðastliðinn laugardag var brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Alls útskrifuðust 54 nemendur frá skólanum af sex námsbrautum. 19 útskriftarnemendur luku burtfararprófi í húsasmíði, einn nemandi lauk bæði burtfararprófi í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Sjö luku burtfararprófi úr rafvirkjun, tveir nemendur luku bæði burtfararprófi í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs. 18 luku burtfararprófi af…Lesa meira

true

Jólaklippingin í tæka tíð

Annríkið er oft mikið á aðventunni og í mörgu að snúast. Það þarf að kaupa gjafir, undirbúa jólamatinn og skreyta heimilið svo nokkuð sé nefnt. Eitt af því sem flestir vilja líka helst gera fyrir jólin er að fara í jólaklippinguna. Desembermánuður er því oft annasamur hjá hársnyrtistofum, en jafnframt fylgja því skemmtilegar samtalsstundir. Á…Lesa meira

true

Búið er að opna Kjalarnes

Búið er að opna veginn um Kjalarnes en hann lokaði um hálfþrjúleytið í dag vegna umferðaróhapps. Veður og færð eru enn einkar slæm og fara hviður upp í 38 m/s. Vegagerðin segir reglulega frá ástandi vega á Twitter-síðu sinni en einnig bendum við lesendum á vefinn umferdin.isLesa meira

true

Héraðsdómstólar verða sameinaðir

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur byrjað undirbúning að sameiningu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Forsenda sameiningarinnar að mati ráðherra er sú að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem núverandi dómstólar eru staðsettir. Efla þurfi og styrkja starfstöðvarnar með nýjum verkefnum. Með einum héraðsdómstól, sem hefur aðsetur á höfuðborgarsvæðinu, megi ná fram einfaldari og skilvirkari…Lesa meira

true

Víðtækar vegalokanir vegna veðurs

Allar aðalleiðir á suðvesturhorni landsins eru nú lokaðar vegna veðurs og ófærðar og svipaða sögu er að segja víðar á landinu; á Vesturlandi, Vestfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Fylgdarakstur hefur verið reyndur á Reykjanesbraut en hann hefur gengið brösulega. Veðurútlit er ekki hagstætt og því er ekkert ferðaveður í dag mánudaginn 19. desember. Í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Gríðarlegt fannfergi víða

Um liðna helgi voru öll tiltæk snjóruðningstæki við vinnu í Grundarfirði sem og annarsstaðar á Snæfellsnesi. Snjó hafði kyngt niður víða um land og strax á laugardagsmorgun var færð farin að spillast innanbæjar. Þegar myrkrið var farið að dvína mátti sjá allskonar tæki og tól brúkuð til að fólk kæmist leiðar sinnar. Hvort sem um…Lesa meira

true

Varasamt að vera á ferðinni í dag

Gul viðvörun er í gildi um allt vestan- og suðvestanvert landið í dag og verður fram á morgundaginn. Víða er talsverður skafrenningur og lélegt skyggni með köflum, sem getur valdið ökumönnum erfiðleikum. Við Faxaflóa og Breiðafjörð er norðaustan 15-23 m/s. Hvassast er á Snæfellsnesi og við Hafnarfjall og má búast við vindhviðum að 35 m/s…Lesa meira

true

Skallagrímur með stórsigur á Þór Akureyri

Skallagrímsmenn gerðu sér ferð norður á föstudaginn og léku gegn heimamönnum í Þór í 1. deild karla í körfuknattleik í Höllinni á Akureyri. Það var jafnt á öllum tölum í byrjun leiks en um rúman miðjan fyrsta leikhluta var staðan orðin 14:22 gestunum í vil. Sá munur breyttist lítið fram að lokum hans og staðan…Lesa meira

true

Jólasveinar briddsfélagsins

Lokapunktur á haustönn Bridgefélags Borgarfjarðar er jafnan Jólasveinatvímenningur á föstudegi í aðdraganda jóla. Þá draga spilarar spil úr stokknum og mynda þannig pör. Síðastliðinn föstudag var spilað á sjö borðum. Úrslit urðu þau að Skagamaðurinn Viktor Björnsson ásamt Kristjáni Hallgrímssyni úr Borgarnesi báru sigur úr býtum með talsverðum yfirburðum, eða 62,92% skori. Í öðru sæti…Lesa meira