
Tónlistarmaðurinn Draugr er huldumaður á Vesturlandi sem byrjaður er að gefa út tónlist. Í samtali við Skessuhorn segir Draugr ástæðu nafnleyndarinnar vera þá að tónlistin eigi ekki að snúast um einstaklinginn heldur tónlistina sjálfa. ,,Einkenni minnar tónlistar er drungalegur hljómur sem leynist í lögunum ásamt því að ég bæti við léttum og björtum tónum til…Lesa meira








