Fréttir

true

Fjölbreytt verkefni hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands

Nýtt skólaár er hafið hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Þar er boðið upp á fjölbreytt nám fyrir fullorðna og samstarfsverkefnin eru af ýmsum toga. Að sögn Ingu Dóru Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Símenntunarmiðstöðvarinnar verður að vanda fjölbreytt námsframboð á þessu skólaár. „Verkefnin hjá okkur eru mörg og ólík, svo sem lengra nám, styttri námskeið, raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf, námskeið…Lesa meira

true

Endurbygging Jötunstáls gengur vonum framar

Nú styttist í að starfsemi hefjist af fullum krafti í vélsmiðju Jötunstáls á Akranesi eftir brunann í byrjun síðasta mánaðar. Hreinsunarstarf hófst nokkrum dögum eftir brunann og þessa dagana er unnið hörðum höndum við endurbyggingu vélsmiðjunnar. Birgir Snæland, eigandi og framkvæmdastjóri, sagði í samtali við Skessuhorn fyrir helgi að sú vinna gengi vel. „Það hefur…Lesa meira

true

Bókasafnsdagurinn og kynning á Bókasafni Akraness í dag

Bókasafnsdagurinn er í dag, fimmtudaginn 8. september. Hann nota söfnin til að kynna starfsemi sína fyrir almenningi. Bókasafn Akraness ætlar í ár að bjóða upp á örkynningu á sjálfsafgreiðsluvélinni sem tekin var í notkun í byrjun ársins.  Gestum verður boðið að prófa undir leiðsögn bókavarðar. Einnig verður opnuð sýning Þorvaldar Jónassonar, Svart og hvítt. Sýningin…Lesa meira

true

Frískir búfræðinemar taka að sér ólík verkefni

Nemendur á öðru ári í búfræðideild Landbhúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri taka að sér ýmis verkefni til fjáröflunar fyrir útskriftarferð sína á komandi ári. Nefna þeir sem dæmi aðstoð við mjaltir, afleysingar, mokstur, fjárrag, hænsnatínslu, þrif og bón á bílum og vélum, smölun, slátrun og framvegis. „Við erum með reynslubolta í flestum verkum,“ segja búfræðingar sem…Lesa meira

true

Mælir með að veiða megi 40 þúsund rjúpur

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins 2016 og sendi niðurstöðurnar til umhverfis- og auðlindaráðherra í gær. Stofnunin leggur til að ráðlögð rjúpnaveiði í haust verði 40 þúsund fuglar, en hún var 54 þúsund fuglar á síðasta ári. Stofnunin leggur mikla áherslu á að hvergi verði slakað á í þeirra viðleitni að draga sem mest úr…Lesa meira

true

Hástökkvarar vikunnar

Í blíðunni við höfnina í Grundarfirði í dag var Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns á ferðinni með myndavélina. Sér hann þá sel sem syndir makindalega þvert yfir höfnina. Þegar hann var staddur bakborðsmegin við Helga SH, sem liggur við bryggju, stingur hann sér skyndilega á kaf og uppsker afar sterk viðbrögð makríltorfu sem þar lónaði.…Lesa meira

true

Segir að nýlenduarður sé skattfrjáls eignamyndun á höfuðborgarsvæðinu

Í grein Vilhjálms Egilssonar rektors Háskólans á Bifröst hér í Skessuhorni, og hann kallar Nýlenduarðinn, vekur hann máls á því sem hann kallar nýlendustefnu höfuðborgarsvæðisins vs. landsbyggðinni. Hann segir m.a.: „Nýlendustefnan gagnvart landsbyggðinni birtist í aðgerðum ríkisvaldsins á mörgum sviðum og almennri umræðu og andróðri gagnvart landsbyggðinni. Umræður um sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál eru fyrirferðarmiklar og hafa…Lesa meira

true

Útiloka að einstaklingar af sama kyni skipi tvö efstu sætin

Í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sem hefst á morgun og lýkur á laugardag, eru þrír í framboði, tvær konur og einn karl. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Guðjón Brjánsson gefa einungis kost á sér í 1. sæti listans, en Inga Björk Bjarnadóttir í 1.-2. sætið. Nokkuð hefur verið á reiki hvaða staða gæti komið upp þegar…Lesa meira

true

Sláturleyfishafar verði að gæta hagsmuna dreifbýlis

Ýmsir hafa mótmælt lækkun afurðaverðs til sauðfjárbænda. Meðal annars bændur sjálfir, í gær stjórn Búnaðarsamtaka Vesturlands og nú í dag umhverfis-,skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar. Á fundi sínum í morgun var samþykkt bókun á nefndarfundi þar sem mótmælt er harðlega þeirri lækkun sem boðuð hefur verið á afurðaverði til sauðfjárbænda vegna haustslátrunar 2016. „Hvetur nefndin sláturleyfishafa…Lesa meira

true

Eva Pandora mun leiða lista Pírata í NV

Endurtektarkosningu fyrir röðun Pírata á lista í Norðvesturkjördæmi er lauk nú í hádeginu. Niðurstaða kosningarinnar er sú að Eva Pandora Baldursdóttir skipar fyrsta sæti, Gunnar I. Guðmundsson annað og Gunnar Jökull Karlsson það þriðja. Í endurtektarkosningunni höfðu allir Píratar á landinu atkvæðisrétt, að því gefnu að þeir hafi verið skráðir í flokkinn fyrir 9. júlí…Lesa meira