Fréttir

true

Margir að flýta sér

Talvert var um hraðakstur í vikunni um og yfir verslunarmannahelgina. Seinni part föstudags var ökumaður tekinn á 136 kílómetra hraða á móts við Hafursfell á Snæfellsnesi og fékk yfir hundrað þúsund krónur í sekt sem hann greiddi á staðnum en um var að ræða erlendan ferðamann. Sama dag var annar erlendur ferðamaður tekinn á 127…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð haldin hátíðleg á morgun

Á morgun,  laugardaginn 6. ágúst, fer hin árlega Hvanneyrarhátíð fram.  Á hátíðinni sem hefst klukkan 13 verður ýmislegt á dagskrá, m.a. fjölbreytt afþreying fyrir börn, keppni í dráttarvélarakstri, boðið verður upp á fjósaferðir og fleira skemmtilegt. Kaffisala verður á staðnum á vegum Kvenfélagsins og opið verður í húsakynnum Landbúnaðarsafnsins. Fergusonfélagið kemur svo einnig í heimsókn…Lesa meira

true

Gasmengun gæti orðið á Vesturlandi í dag

Hlutfall brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti á Vesturlandi getur hækkað og loftgæði versnað vegna eldgossins í Merardölum. Á vefsíðu Veðurstofunnar er gasdreifingarspá þar sem hægt er að sjá hvernig gasið dreifir sér á hverjum klukkutíma og áhrifasvæði gass á næstu sex klukkutímum og á næstu 24 klukkutímum. Þar sést að í dag mun gasmengun leggja yfir Akranes,…Lesa meira

true

Útför Braga Þórðarsonar fer fram í dag

Bragi Þórðarson, fyrrverandi bókaútgefandi, rithöfundur og framkvæmdastjóri á Akranesi lést 25. júlí síðastliðinn, 89 ára að aldri. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju klukkan 13 í dag. Bragi fæddist á Akranesi 24. júní 1933. Foreldrar hans voru Þórður Ásmundsson verkamaður frá Fellsaxlarkoti í Skilmannahreppi og Sigríður Hallsdóttir frá Stóra-Fljóti í Biskupstungum. Var Bragi þriðji í…Lesa meira

true

Naumt tap Kára gegn Dalvík/Reyni

Leikmenn Kára gerðu sér ferð norður í gær þegar þeir mættu liði Dalvíkur/Reynis í 3. deild karla í knattspyrnu á Dalvíkurvelli og urðu að sætta sig við tap, 2-1. Þetta var fyrsti leikur Kára undir stjórn hins nýja þjálfara, Wout Droste, sem tók við liðinu í vikunni. Eftir rúman hálftíma leik kom Kolbeinn Tumi Sveinsson…Lesa meira

true

Kristín Eir og Þórgunnur Íslandsmeistarar í fimi

Öðrum degi Íslandsmóts barna og unglinga endaði með keppni í fimi í gærkvöldi en fimikeppnin fór fram í reiðhöllinni Faxaborg í Borganesi. Kristín Eir Hauksdóttir sigraði í barnaflokki á Þyt frá Skáney fyrir hestamannafélagið Borgfirðing og Þórgunnur Þórarinsdóttir sigraði í unglingaflokki á Hnjúk frá Saurbæ fyrir hestamannafélagið Skagfirðing.   FIMIKEPPNI – BARNAFLOKKUR – Verðlaunahafar Sæti  …Lesa meira

true

Matthías og Tign Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði

Matthías Sigurðsson og Tign frá Fornusöndum sigruðu gæðingaskeið í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga sem haldið er í Borgarnesi þessa dagana en Matthías keppir fyrir hestamannafélagið Fák. Dalir verktakar ehf. styrktu þessa grein og Kaupfélag Borgfirðinga gaf gjafabréf til sigurvegara. Farandbikar LH fyrir gæðingaskeið var gefinn af Hestamannafélaginu Sleipni. Verðlaunasæti: Matthías Sigurðsson, Tign frá…Lesa meira

true

Festir mun leiða vinnu við skipulag í Brákarey

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 28. júlí síðastliðinn kom fram að Fasteignaþróunarfélagið Festir og JVST arkitektar hafa lýst yfir áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í Brákarey í Borgarnesi í samstarfi við sveitarstjórn. Ráðið tók erindinu vel. Framhald mála verður með þeim hætti að sveitarstjóri leggur fram drög að samningi við þessa aðila með…Lesa meira

true

Vestlendingar andvígir gjaldtöku í veggöng

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, tilkynnti í júlí fyrirhugaða breytingu á gjaldtöku í veggöngum. Ráðuneytið stefnir á að hefja gjaldtöku í öllum göngum landsins til að kosta framkvæmdir á Fjarðarheiðargöngum sem verða þá lengstu göng Íslands. Breytingin mun taka gildi á næsta eða þarnæsta ári. Masíkna framkvæmdi rannsókn á vilja landsmanna til að borga í veggöng…Lesa meira

true

Eldgosið nýtur sín frá Akranesi

Eldgosið sem hófst í gær á Reykjanesi í Merardölum nýtur sín í fjarlægð frá á Akranesi en meðfylgjandi mynd tók blaðamaður í hádegisgöngu á Langasandi fyrr í dag. Gosið er að sögn sérfræðinga allt að fimm sinnum kröftugra en síðasta gos, einnig tífalt stærra og er hraunflæðið um 32 rúmmetrar á sekúndu. Fólk er byrjað…Lesa meira