Fréttir

true

Tap hjá Skallagrímskörlum á Ísafirði

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn Vestra þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið, 102-85. Leikið var á Ísafirði. Lið Vestra var sterkara liðið á vellinum allan tímann. Snemma í upphafsfjórðungnum voru heimamenn búnir að ná forskotinu og voru komnir níu stigum yfir gestina áður en leikhlutinn rann út. Í öðrum…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagrímskvenna í Vesturbænum

Skallagrímskonur unnu góðan útisigur á KR þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn, 80-88. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku Borgnesingar stjórnina í sínar hendur og sigruðu í leiknum. KR konur voru með forystuna fyrstu mínútur leiksins en áttu svo tæplega þrjár stigalausar mínútur sem Borgnesingar nýttu vel og komust sjö stigum…Lesa meira

true

Kári mætir Skallagrími í Mjólkurbikarnum

Skallagrímur úr Borgarnesi sigraði Snæfell úr Stykkishólmi örugglega 5:1 í Mjólkubikarleik í knattspyrnu í gær. Spilað var í Ólafsvík. Skallagrímur mætir því Kára í Vesturlandsslag í næstu umferð í leik sem fram fer í Akraneshöllinni. Kári slapp auðveldlega í gegnum 64 liða úrslitin þar sem Vængir Júpíters drógu sig úr keppni áður en leikurinn átti…Lesa meira

true

Stærsta bólusetningarvikan fram að þessu

Í þessari viku munu um 23.000 einstaklingar fá fyrri bólusetningu við Covid-19 með bóluefni Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Í heildina verða gefnir um 25.000 skammtar. Þetta verður því stærsta vikan í bólusetningum hér á landi vegna veirunnar frá upphafi. Í vikulokin höfðu 80.721 einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt bóluefnis, eða um 29% af…Lesa meira

true

Velflest hjúkrunarheimili landsins rekin með halla

Verkefnastjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að greina rekstrarkostnað hjúkrunarheimila í landinu hefur skilað ráðherra skýrslu sinni. Greiningin byggist einkum á svörum rekstraraðila um reksturinn, kostnaðar- og tekjuliði, þjónustuna sem veitt er, notendur þjónustunnar, auk ýmissa fleiri breyta sem áhrif hafa á reksturinn. Greiningin nær yfir gögn frá árinu 2017 og fram á mitt ár 2020.…Lesa meira

true

Tíu milljarðar í tekjufallsstyrki

Ríkissjóður hafði nú undir lok síðustu viku greitt út hátt í tíu milljarða króna í tekjufallsstyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,3 milljarðar til viðbótar hafa verið greiddir í viðspyrnustyrki. Skattinum, sem fer með framkvæmd úrræðanna, hafa borist um 4.700 umsóknir og er…Lesa meira

true

Kára dæmdur sigur í Mjólkurbikarleik

Knattspyrnufélaginu Kára var dæmdur 3:0 sigur þegar andstæðingar þeirra í 64-liða úrslitum, Vængir Júpiters, ákváðu að draga lið sitt úr keppni. Það verður því Vesturlandsslagur í 32-liða úrslitum keppninnar þegar Kári mætir sigurvegurunum úr viðureign Snæfells og Skallagríms. Leikurinn mun fara fram í Akraneshöllinni sunnudaginn 2. maí nk.Lesa meira

true

Meðalíbúðin kostar nú tólfföld lágmarkslaun

„Ekkert lát er á hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og ekki verða greind teikn um að þeirri þróun verði snúið við á næstunni,“ segir í frétt frá sviði stefnumótunar og greiningar hjá Alþýðusambandi Íslands, en þar er reglulega fjallað um þróun húsnæðismarkaðar hér á landi. „Þrátt fyrir talsverða hækkun launa hefur verð á húsnæði farið vaxandi…Lesa meira

true

Bjarni Jónsson er sigurvegari í forvali VG

Síðdegis í dag lá fyrir niðurstaða í forvali hjá Vinstri hreyfingunni grænu framboði í Norðvesturkjördæmi. Valið var í fimm efstu sætin á framboðslista hreyfingarinnar fyrir kosningarnar í haust. Á kjörskrá voru 1.454 og nýtt 72% kosningarétt sinn. Í fyrsta sæti varð Bjarni Jónsson varaþingmaður og fiskifræðingur á Sauðárkóki. Felldi hann því Lilju Rafneyju Magnúsdóttur sem…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík skoraði 18 mörk í Mjólkurbikarleik

Það voru ótrúlegar tölu sem litu dagsins ljós í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu í Ólafsvík í gær. Þá sigraði lið Víkings Ó lið Gullfálkans frá Reykjavík með markatölunni 18:0, hvorki meira né minna. Þetta var því leikur kattarins að músinni. Það voru þeir Kareem Isiaka og Harley Willard sem skoruðu sex mörk hvor. Þorleifur Úlfarsson…Lesa meira