
Síðdegis í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýju 31 íbúðar fjölbýlishúsi Leigufélags aldraðra hses. við Dalbraut 6 á Akranesi, á lóðinni þar sem vöruhús ÞÞÞ stóð áður. Það var Bragi Þórðarson heiðursborgari Akraneskaupstaðar sem tók fyrstu stunguna en auk hans bæjarfulltrúar, bæjarstjóri og formaður Leigufélagsins. Í húsinu verður bílakjallari, 22 tveggja herbergja íbúðir og…Lesa meira








