Fréttir

true

Handverkshópurinn Bolli opnar eftir endurbætur

Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður verslun Handverkshópsins Bolla í Búðardal opnuð á ný eftir miklar endurbætur á verslunarrýminu. Katrín Lilja Ólafsdóttir er formaður Handverkshópsins Bolla en félagið var stofnað 14. júlí 1994 og telur nú yfir sjötíu félagsmenn. „Það var löngu kominn tími til framkvæmda en við vorum farin að íhuga að skipta út gólfefnum…Lesa meira

true

„Það var í raun tilviljun að ég var staddur á Akranesi þegar prufurnar fóru fram“

Skagamaðurinn Jakob Þór Einarsson var 22 ára gamall prentari þegar honum bauðst óvænt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Óðali feðranna eftir Hrafn Gunnlaugsson. Tveimur árum síðar sótti hann um í Leiklistarskólanum og starfaði sem leikari lengstan hluta starfsferils síns. Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Jakob Þór um feril hans, uppvöxtinn á Akranesi,…Lesa meira

true

Framboðslisti Framsóknar samþykktur

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu, en rafrænu, aukakjördæmisþingi 20. apríl síðastliðinn. Póstkosning um fimm efstu sæti listans fór fram síðla vetrar þar sem röðun í efstu fimm sætin var ákveðin. Listinn í heild er þannig: Nr. 1 Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki – Yfirlögregluþjónn og…Lesa meira

true

Þorskurinn lýkur hrygningu klukkan tíu í dag

Klukkan 10 nú árdegis eiga allir þorskar í sjónum að vera búnir að hrygna, að mati sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Nú mega því bátar róa að nýju eftir hrygningarstopp. Allmargir héldu því til veiða í morgun en sumir tóku jafnvel forskot á sæluna og fóru út um miðnætti í nótt til að tryggja sér stæði þótt ekki…Lesa meira

true

Hafa keypt Hreðavatnsskála og hefja rekstur í sumar

Síðastliðinn föstudag var gengið frá sölu á hinum rótgróna Hreðavatnsskála í Borgarfirði.  Lítil starfsemi hefur verið í húsunum síðustu árin en nú verður breyting þar á. Kaupendur eru ungt par sem býr og starfar í sveitinni, þau Adam Logi og Hera Jóhannsdóttir. Hreðavatnsskáli er á fjögurra hektara eignarlandi en auk veitingaskálans er gistihús á lóðinni,…Lesa meira

true

Basalt hótel rís í Lundarreykjadal

Þau Þórarinn Svavarsson og Hjördís Geirdal, bændur á Tungufelli í Lundarreykjadal, standa í stórræðum þessi misserin. Þau eru að byggja hótel á næstu jörð við Tungufell, Iðunnarstöðum. Hótelið sem hefur fengið nafnið Basalt hótel verður 26 herbergja auk 50 manna veislusalar. Hótelið verður í þremur megin byggingum, tvær herbergjaálmur og veitingasalur. Önnur herbergjaálman og veitingasalurinn…Lesa meira

true

Breyttar reglur um niðurgreiðslur gjalda hjá dagforeldrum á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýlega breytingar á reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum. Foreldrar með lögheimili og fasta búsetu á Akranesi eiga rétt á niðurgreiðslum samkvæmt þessum reglum ef þeir eru með gildan dvalarsamning við dagforeldri. Dagforeldri skal hafa leyfi til daggæslu frá sveitarfélaginu. Rétt til greiðslna eiga foreldrar í sambúð frá níu mánaða…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustunga að fjölbýlishúsi Leigufélags aldraðra á Dalbraut 6

Síðdegis í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýju 31 íbúðar fjölbýlishúsi Leigufélags aldraðra hses. við Dalbraut 6 á Akranesi, á lóðinni þar sem vöruhús ÞÞÞ stóð áður. Það var Bragi Þórðarson heiðursborgari Akraneskaupstaðar sem tók fyrstu stunguna en auk hans bæjarfulltrúar, bæjarstjóri og formaður Leigufélagsins. Í húsinu verður bílakjallari, 22 tveggja herbergja íbúðir og…Lesa meira

true

Aðgerðir á landamærum verða hertar tímabundið

Stjórnvöld kynntu í dag tímabundnar hertar aðgerðir á landamærunum til að sporna við útbreiðslu Covid-19 innanlands. „Markmiðið er að skapa aðstæður sem gera kleift að aflétta sem mest takmörkunum innanlands þrátt fyrir mikla útbreiðslu faraldursins erlendis. Bólusetningu hér á landi miðar vel og eftir því sem hlutfall bólusettra hækkar skapast forsendur til að slaka á…Lesa meira

true

Mjólkursamsalan er nýr styrktaraðili Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur átt í góðu samstarfi við Mjólkursamsöluna undanfarin ár og notið stuðnings í formi vöruúttekta þegar sjálfboðaliðar félagsins sinna tímafrekum útköllum og fjáröflunum. Nú hafa félögin stigið skrefinu lengra og undirritað samstarfssamning, þar með Mjólkursamsalan bætist við öflugan hóp aðalstyrktaraðila og styður með myndarlegum hætti starf mörg þúsund sjálfboðaliða. „Mikið hefur mætt á…Lesa meira