Fréttir

true

Skagakonur töpuðu naumlega

Skagakonur mættu stöllum sínum úr Víkingi Reykjavík í Lengjubikarnum í fótbolta á föstudagskvöld, í leik sem fam fór í Akraneshöllinni. Leiknum lauk með naumum sigri Víkings 3:2. Víkingur leiddi 2:0 í hálfleik með mörkum þeirra Nadíu Atladóttur og Dagnýjar Rúnar Pétursdóttur og fátt benti til annars en að öruggur sigur Víkings væri í höfn þegar…Lesa meira

true

Kristján Þór ráðinn framkvæmdastjóri Landsbjargar

Kristján Þór Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá og með 1. apríl næstkomandi. „Kristján hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum þar sem hann sat í framkvæmdastjórn Valitors á árunum 2008 til ársins 2019, fyrst sem framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar og síðar alþjóðasviðs félagsins eða þar til hann tók við sem framkvæmdastjóri Valitor á Íslandi…Lesa meira

true

Óhapp við flutning hræja til brennslu

Síðastliðinn fimmtudag kom upp atvik við flutning á riðusmituðum úrgangi sem flytja átti til brennslu í Kölku á Suðurnesjum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að mikill þrýstingur af völdum gasmyndunar úr úrganginum hafi myndast í einum gámnum á meðan á flutningi stóð. Þetta hafi orðið til þess að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig og…Lesa meira

true

Kári tapaði fyrir Tindastóli

Knattspyrnufélagið Kári hélt í Skagafjörðinn í gær og atti kappi við Tindastól á Sauðárkróki í Lengjubikar karla. Káramenn byrjuðu leikinn vel og Andri Júlíusson kom þeim yfir strax á 17. mínútu. Enn vænkaðist hagur Kára þegar einum leikmanni Tindastóls var vikið að leikvelli um miðjan fyrri hálfleikinn. En skjótt skipast veður í lofti. Því síðustu…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn samþykktu prófkjör

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt kjördæmaþing í streymi síðastliðinn laugardag. Þar var samþykkt með tveimur þriðju hluta greiddra atkvæða tillaga stjórnar um að halda prófkjör meðal flokksmanna í júní. Prófkjörið verður í tvo daga, eða miðvikudaginn 16. og laugardaginn 19. júní. Verður kosið um fjögur efstu sætin á framboðslistanum. Eins og fram hefur komið hafa sitjandi…Lesa meira

true

Gylfi Þór gefur kost á sér fyrir Samfylkinguna

Gylfi Þór Gíslason á Ísafirði hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 1. til 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í haust. Gylfi Þór er 57 ára og starfar sem lögregluvarðstjóri á Vestfjörðum.Lesa meira

true

Stefán Vagn og Lilja Rannveig sigurvegarar í póstkosningu Framsóknar

Talningu atkvæða í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðulandskjördæmi vestra lauk í kvöld. Tíu manns gáfu kost á sér. Kosið var um fimm efstu sæti listans fyrir komandi alþingiskosningar. Á kjörskrá voru 1995. Kosningaþátttaka var 58% Þau sem hlutu kosningu voru: Stefán Vagn Stefánsson hlaut 580 atkvæði í fyrsta sæti Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hlaut 439 atkvæði í…Lesa meira

true

Magnús D Norðdahl leiðir lista Pírata

Prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi lauk síðdegis í dag. Kosningin var rafræn og greiddu 400 manns atkvæði. Sex frambjóðendur sóttust eftir efstu sætunum. Magnús Davíð Norðdahl Gunnar Ingiberg Guðmundsson Katrín Sif Sigurgeirsdóttir Pétur Óli Þorvaldsson Sigríður Elsa Álfhildardóttir Ragnheiður Steina ÓlafsdóttirLesa meira

true

Gosið í Fagradalsfjalli

Eldgos hófst í gærkvöldi kl. 20:45 við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Gosið er lítið en gossprungan er um 500-1000 m að lengd. Hraunið sem nú er að verða til er  innan við einn ferkílómetri að stærð. Gosið og hraunflæði frá eldstöðvunum er ekki talið ógna byggð og ekki hefur mælst loftmengun frá því í byggðakjörnunum Grindavík…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í Garða- og Saurbæjarprestakalli yfir páskahátíðina

Starf kirkjunnar er komið af stað að nýju eftir tilslakanir á samkomutakmörkunum. Páskahátíðin er framundan og verður hún með hefbundnu sniði í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Fermingar hefjast næstkomandi sunnudag á Akranesi þar sem fjölskyldur geta fylgt fermingarbörnum til kirkju. „Fermingarnar verða með venjulegu sniði en án altarisgöngu,“ segir sr. Þráinn Haraldsson sóknarprestur í samtali við…Lesa meira