Fréttir

true

Eldgos er hafið í Fagradalsfjalli á Reykjanesi

Eldgos er nú hafið við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Fólk nærri gossvæðinu hefur séð ljósbjarma. Myndavélar á svæðinu sýna greinilegan ljósbjarma. Uppfært: “Almannavarnir biðla til fólks að fara ekki nærri gosupptökum og vera ekki á ferðinni á svæðinu. Það er mikilvægt að halda svæðinu öruggu. Vísindamenn eru að störfum að meta stöðuna. Drónaflug á svæðinu er…Lesa meira

true

Netöryggiskeppni haldin um helgina

Netöryggiskeppni Íslands hófst með forkeppni á netinu í febrúar og nú er komið að landskeppninni sem haldin verður nú um helgina. Í keppninni takast ungmenni á aldrinum 16-25 ára á við flókin verkefni sem byggjast á raunverulegum viðfangsefnum á sviði netöryggis. Keppnin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og þá var hún í Hörpu,…Lesa meira

true

Þorskur um allan sjó við Akranes

Mjög góð aflabrögð hafa verið síðustu daga hjá bátum sem gera út frá Akranesi. Ebbi AK-37 hefur róið síðustu fimm daga og er aflinn í fimm túrum orðinn yfir 36 tonn, að uppistöðu þorskur. Í samtali við Skessuhorn sagði Eymar Einarsson, eigandi og skipstjóri Ebba, að það væri þorskur um allan sjó. Þorskurinn væri vænn…Lesa meira

true

Bæjarblöðum landsins fækkar um eitt

Olga Björt Þórðardóttir, eigandi og ritstjóri bæjarblaðsins Hafnfirðings, hefur ákveðið að hætta rekstri blaðsins, að minnsta kosti um tíma. Í tilkynningu sem hún ritaði á vef sinn kemur fram að hún hafi ákveðið eftir miklar vangaveltur að gera hlé á rekstri og útgáfu Hafnfirðings. „Rekstrarforsendur eins og þær eru í dag eru því miður afar…Lesa meira

true

Lögreglan æfir skotfimi á Ölduhrygg

Lögreglan á Vesturlandi hefur fengið bráðabirgðaleyfi frá sveitarfélaginu Borgarbyggð til að stunda skotæfingar og skotpróf á Ölduhrygg við Snæfellsnesveg. Samkvæmt viðbúnaðarskipulagi lögreglu gerir ríkislögreglustjóri kröfu um að lögreglumenn fái reglulega þjálfun í skotfimi og standist árleg skotvopnapróf. Aðstaða til æfinga lögreglu hefur á liðnum árum farið fram í sal Skotfélags Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Niðurstaða úr prófkjöri Framsóknar kunngerð annað kvöld

Póstkosningu Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi, vegna myndunar framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar, lauk síðastliðinn föstudag. Atkvæði eru enn að berast í pósti, en talið verður á Reykjum í Hrútafirði á morgun og niðurstaða ætti að liggja fyrir annað kvöld, að sögn Valgarðs Hilmarssonar formanns kjörstjórnar. 1.995 voru á kjörskrá í prófkjörinu. Valgarður segir að nákvæm kjörsókn liggi…Lesa meira

true

Gagnvirkri hraðahindrun komið fyrir í Ólafsvík

Snemma næsta sumar er gert ráð fyrir að komin verði svokölluð gagnvirk hraðahindrun við Ennisbraut í Ólafsvík. Frá þessu er greint á heimasíðu Snæfellsbæjar. Sveitarfélagið ætlar í samvinnu við Vegagerðina að setja hraðahindranir sem eru þannig að hleri er settur í veginn og ef bíl er ekið yfir leyfilegum hámkarkshraða fellur hlerinn niður um nokkra…Lesa meira

true

Borgarbyggð auglýsir menningarstyrki

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn. Tilgangur hans er að efla menningu í sveitarfélaginu og er sérstök rækt lögð á grasrót í menningarlífi; einstaklinga og félagasamtök. „Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu.…Lesa meira

true

Stjörnum prýddur Reykjanesskagi

Heldur hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi eftir því sem liðið hefur á vikuna. Eins og kunnugt er hófst þessi langa hrina miðvikudaginn 24. febrúar með skjálfta upp á 5,7 stig. Næststærsti skjálftinn á þessu tímabili varð síðastliðinn sunnudag klukkan 14:15 og mældist hann 5,4 stig og átti upptök sín rúma tvo kílómetra vestur af…Lesa meira

true

Voru sannarlega tilbúin í líf með barni með auka litning

Næstkomandi sunnudag er alþjóðlegur dagur einstaklinga með Downs-heilkenni „Hann er mikil félagsvera, glaðlyndur, glettinn, jákvæður og mjög harður af sér,“ segir Inga Guðrún Kristjánsdóttir um Styrkár Gauta Hallgrímsson son sinn. Styrkár er fæddur haustið 2017 og vissu þau Inga Guðrún og Hallgrímur Halldórsson, foreldrar Styrkárs, ekki að hann væri með Downs-heilkenni fyrir fæðingu. Næstkomandi sunnudag,…Lesa meira