Fréttir

true

Skagamenn fá framherja úr Fylki

Knattspyrnumaðurinn Hákon Ingi Jónsson, framherji úr Fylki, hefur gengið til liðs við Skagamenn. Hákon Ingi gerði þriggja ára samning við ÍA. Hann hefur leikið allan sinn knattspyrnuferil með Fylki utan eitt ár, sem var árið 2016 en þá lék hann með HK sem þá var undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Hákon Ingi skoraði þá 13…Lesa meira

true

Lögbýlaskrá hér aðgengileg á rafrænu formi

Lögbýlaskrá fyrir árið 2020 er komin út en hún er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingarbók og fasteignaskrá. Útgáfan er á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en samkvæmt jarðalögum er ráðuneytinu heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrárinnar. Frá árinu 2010 hefur Þjóðskrá Íslands haft það hlutverk að gefa…Lesa meira

true

Snorrastaðir afurðahæsta búið og Sól í Ásgarði nythæsta kýrin

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu, sem hefur starfssvæði á sunnanverðu Snæfellsnesi, Mýrum og Borgarfirði norðan Skarðsheiðar, var haldinn mánudaginn 15. mars í félagsheimilinu Lyngbrekku. Á dagsskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, en að auki fékk félagið nokkra gesti á fundinn. Félögum voru veittar viðurkenningar fyrir afurðahæstu kýr, afurðahæstu bú og hæst dæmdu kýr fyrir árið 2020.   Afurðahæstu kúabúin…Lesa meira

true

Flúðu frá Sýrlandi og hafa nú opnað veitingastað á Akranesi

Hjónin Maher Al Habbal og Heba Al Jaraki neyddust til að flýja heimaland sitt í Sýrlandi ásamt dætrum sínum tveimur; Söru og Maríu. Nú hafa þau opnað sýrlenskan kebab veitingastað, Flamingo Kebab, við Stillholt 23 á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns hitti þau fyrir helgi og ræddi við Hebu á meðan Maher var á fullu við eldamennsku…Lesa meira

true

Fjáröflunarskemmtun í Lyngbrekku á föstudaginn

Leikdeild Umf. Skallagríms verður með fjáröflunarskemmtun í félagsheimilinu Lyngbrekku næstkomandi föstudag klukkan 20:30. Þar verður boðið upp á fimm stutta leikþætti sem eru frá 5-20 mínútur að lengd. „Svo munum við spila og syngja nokkur lög og það koma flottir krakkar og sýna dansatriði,“ segir Hafsteinn Þórisson, einn af skipuleggjendum viðburðarins í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Umferðarslys á Akranesi fyrr í dag

Umferðarslys varð á Akranesi í dag þar sem 11 ára gamall drengur á reiðhjóli varð undir vörubifreið. Lögreglan á Vesturlandi greinir frá frá því að samkvæmt læknum er drengurinn sem betur fer ekki mikið slasaður og ekki í lífshættu. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild HVE á Akranesi. Rannsókn lögreglu á umferðarslysinu er í…Lesa meira

true

Stormviðvörun við Breiðafjörð

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris við Breiðafjörð frá því síðdegis á morgun og fram á nóttina. Spáð er sunnan stormi 20 – 25 m/s á Snæfellsnesi. Búast má við mjög snörpum vindhviðum, staðbundið yfir 30 m/s. „Varasamt er fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferð [sem og…Lesa meira

true

Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum innanlands taka gildi á fimmtudaginn

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi fimmtudaginn 18. mars. Byggja þær í meginatriðum á tillögum sóttvarnalæknis. Þær fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði. Þá eru einnig gerðar ríkari kröfur til sóttvarnaráðstafana þar sem boðið er upp á hlaðborð. Gildistími reglugerðar um…Lesa meira

true

Vel heppnað Bárumót haldið í gær

Síðastliðinn mánudag fór fram Bárumót í sundi í Bjarnalaug á Akranesi. Bárumót er árlegt innanfélagsmót þar sem krakkar á aldrinum 8-12 ára taka þátt. Smá breytingar voru á fyrirkomulagi mótins í ár þar sem Bjarnalaug uppfyllir ekki skilyrði svo foreldrar gætu komið og horft á. Þrátt fyrir það skemmtu krakkarnir sér vel, syntu flott og…Lesa meira

true

Undirbúa gerð húsaskilta í Borgarnesi

Á döfinni hjá Hollvinasamtökum Borgarness er hönnun húsaskilta sem eiga að segja sögu bæjarins að hluta til. Hugmyndin er að skiltin fái að prýða hús í bænum sem eru yfir 100 ára gömul í samráði við húseigendur. Hús sem hafa náð þessum merka aldri eru um eða yfir 15 talsins. Meðal þeirra má nefna Kaupfélagshúsið…Lesa meira