Fréttir

true

Leikdeild rekur áfram Lyngbrekku

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að framlengja leigusamningi við Leikdeild Umf. Skallagríms um félagsheimilið Lyngbrekku. Nýr samningur gildir til ársloka 2022. Þá var samþykkt að veita leikdeildinni sambærilegan styrk og rekstraraðilar samkomuhússins við Þverárrétt fá nú, þannig að styrkur Borgarbyggðar til reksturs félagsheimilisins hækkar um 150.000 krónur hvort ár. Loks var samþykkt…Lesa meira

true

Framlengja afslátt af lóða- og gatnagerðargjöldum

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að framlengja út þetta ár afslætti sem veittur var árið 2020 af lóða- og gatnagerðargjöldum í sveitarfélaginu. Byggðarráð hafði lagt fyrir sveitarstjórn tillögu þess efnis að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum og 100% afslátt af lóðagjöldum vegna íbúðar- og atvinnuhúsalóða og var það samþykkt.Lesa meira

true

Landhelgisgæslan, forsetaembættið og heilbrigðiskerfið skora hæst

Ný könnun Gallup sýnir að 77% landsmanna bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins og hefur það ekki mælst meira í þau 20 ár sem mælingarnar taka til. Í samanburði við aðrar stofnanir og embætti er heilbrigðiskerfið í þriðja sæti þeirra sem njóta mest trausts, á eftir Landhelgisgæslunni og embætti forseta Íslands. Traust fólks til heilbrigðiskerfisins er…Lesa meira

true

Blæðingar í bundnu slitlagi – hvað er til ráða?

Á morgun klukkan 9:00 hefst fundur í morgunfundaröð Vegagerðarinnar vorið 2021. Þar verður fjallað um svokallaðar blæðingar sem geta orðið í vegklæðingu og malbiki. Rætt verður um mismunandi tegundir blæðinga, ástæður þeirra og viðbrögð Vegagerðarinnar þegar þær koma upp. Þátttakendur fá einnig sjónarmið flutningageirans varðandi áhrif blæðinga á hann. Fundurinn verður haldinn í streymi þriðjudaginn…Lesa meira

true

Vestfjarðastofa harmar bága stöðu samgangna á sunnanverðum Vestfjörðum

„Stjórn Vestfjarðastofu lýsir þungum áhyggjum af stöðu samgangna á sunnanverðum Vestfjörðum vegna ítrekaða bilana ferjunnar Baldurs. Stjórn Vestfjarðastofu hvetur Alþingi, ráðherra samgöngumála og Vegagerðina til að grípa hratt til bráðaaðgerða til að minnka þann skaða sem atvinnulíf og samfélag svæðisins verður fyrir þegar samgöngur bregðast,“ segir í ályktun sem Vestfjarðastofa hefur sent fjölmiðlum vegna samgangna…Lesa meira

true

Tap hjá Snæfelli eftir góðan fyrri hálfleik

Snæfell tapaði óvænt þegar liðið sótti Keflavík heim í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gær, 85-80. Snæfell hafði yfirhöndina í upphafsfjórðungnum og og leiddi með 17 stigum þegar annar leikhluti hófst. Snæfell hélt áfram að leiða í upphafi annars leikhluta en Keflvíkingar náðu að saxa á forskotið rétt fyrir hléið og aðeins fimm stig…Lesa meira

true

Keppni í Snæfellingsmótaröðinni

Annað mót Snæfellingsmótaraðarinnar í hestaíþróttum var haldið á sunnudaginn í blíðskaparveðri í Stykkishólmi. Keppt var í þrígangi (tölt, brokk, fet) og var þátttaka félaga góð. Keppt var í fjórum flokkum; þ.e. barnaflokki, unglingaflokki, minna vanir og meira vanir og að sjálfsögðu var pollaflokkur þar sem þátttakendur voru fimm. Niðurstöður úrslita úr mótinu voru eftirfarandi: Barnaflokkur:…Lesa meira

true

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar framundan

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram miðvikudaginn 24. mars í húsnæði Brims við Bárugötu 8-10 á milli klukkan 12:30 og 17:00. Umsækjendur geta hringt í síma 859-3000 eða 859-3200 dagana 16., 17. og 18. mars á milli kl. 11 og 13 eða sótt um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com. Þeir sem skráðu sig í báðar úthlutanirnar síðast þurfa…Lesa meira

true

Borgnesingar sigruðu eftir hörkuleik á Selfossi

Skallagrímur hafði betur gegn Selfossi, 68-73, í hörkuspennandi leik í 1. deild karla í körfubolta á Selfossi á föstudaginn. Skallagrímsmenn áttu fyrstu stig leiksins en á fimmtu mínútu tóku Selfyssingar forystuna, héldu henni út upphafsfjórðunginn og leiddu með átt stigum, 22-14, þegar annar leikhluti hófst. Selfyssingar héldu áfram að leiða í leiknum fyrstu mínútur annars…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í Lengjubikarnum

Skagamenn og Keflvíkingur léku á laugardaginn hreinan úrslitaleik hvort liðið myndi fylgja Stjörnunni áfram í 8-liða úrslit Lengjubikarsins úr þeirra riðli. Bæði lið voru fyrir leikinn jöfn að stigum með 7 stig hvort. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni og byrjuðu heimamenn mun betur í leiknum, en Skagamenn unnu sig inn í leikinn og áttu ágæta…Lesa meira