Fréttir

true

Baldur kominn til hafnar

Nú fyrir skömmu ýtti dráttarbáturinn Fönix flóabátnum Baldri síðustu metrana að bryggju í Stykkishólmi. Þar með er afstaðin sú vá sem ríkt hefur síðustu 26 tíma, þar sem 28 manns voru í vélarvana skipinu á Breiðafirði í slæmu veðri. Varðskipið Þór er utan við Stykkishólm, en það tók við drætti á Baldri af rannsóknaskiptinu Árna…Lesa meira

true

Þingmenn kjördæmisins færðu í tal bilaðan Baldur

Fimm þingmenn Norðvesturkjördæmis lýstu á Alþingi í morgun yfir áhyggjum sínum af stöðu samgangna á Vestfjörðum vegna bilunar á einu vél Beiðafjarðarferjunnar Baldurs. Þingmennirnir fimm bentu allir á mikilvægi siglinga yfir Breiðafjörð sem hluta af samgöngum við sunnanverða Vestfirði. Þá sögðu þeir að tryggja þurfi öruggar siglingar yfir fjörðinn með nýrri ferju þar sem núverandi…Lesa meira

true

„Skrítnasti föstudagur ever – nauðug á sjó“

Guðný Sigurðardóttir, farþegi sem verið hefur í hinni vélarvana Breiðafjarðarferju Baldri síðan á hádegi í gær, setti áðan inn harðorða, opna færslu á Facebook síðu sína. Ferjan Baldur varð sem kunnugt er vélarvana á leið sinni yfir Breiðafjörð í gærdag. Baldur er nú dreginn af varðskipinu Þór áleiðis til Stykkishólms á rúmlega þriggja sjómílna hraða…Lesa meira

true

Hætta tímabundið að nota AstraZeneca bóluefnið

Bólusetning með bóluefni frá sænsk-breska lyfjafyrirtækinu AstraZeneca hefur tímabundið verið stöðvuð hér á landi. Frá þessu greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 í gær. Tengist þessi ákvörðun hugsanlegum tengslum milli bóluefnisins og blóðtappa. Fréttir hafa borist frá nokkrum löndum í Evrópu um að blóðtappar hafi orðið hjá fólki í kjölfar bólusetningar með þessu…Lesa meira

true

Stuðningsgreiðslur til bænda vegna áhrifa Covid-19

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra hefur lokið við útfærslu á ráðstöfun fjármuna til sauðfjár- og nautgripabænda til að mæta áhrifum Covid-19 á íslenskan landbúnað. Meðal aðgerða var aukinn stuðningur við bændur. Við afgreiðslu fjárlaga 2021 var samþykkt að verja 970 milljónum króna til að koma til móts við skaðleg áhrif Covid-19 á íslenska bændur. Í nefndaráliti…Lesa meira

true

Til stendur að koma Baldri að bryggju á eftir

Flóabáturinn Baldur lónar enn á Breiðafirði skammt utan við Stykkishólm. Skipið varð vélarvana á miðri siglingarleið frá Brjánslæk til Stykkishólms klukkan 14:30 í gær. Í fyrstu var varpað ankerum til að koma í veg fyrir rek undan stífum norðaustan vindi en eftir að öflug skip voru komin á svæðið var Baldur dreginn í áttina að…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu á lokasprettinum

Skallagrímskonur biðu lægri hlut gegn Fjölni, 98-90, þegar liðin mættust í Grafarvoginum í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Bæði lið mættu sterk til leiks og Skallagrímskonur náðu í fyrstu stig leiksins eftir hálfa mínútu þegar Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði þriggja stiga körfu. Borgnesingar áttu góðan upphafsleikhluta og voru komnar með tólf stig gegn…Lesa meira

true

Breiðablik hafði betur gegn Snæfelli

Snæfell sótti Breiðablik heim í Smárann í 12. umferð Domino‘s deildar kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Heimakonur náðu yfirhöndinni strax í fyrsta leikhluta en Hólmarar hleyptu þeim aldrei langt framúr sér og þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik voru aðeins sex stig sem skildu liðin að, 52-64. Lítið breyttist eftir hléið, Blikar leiddu en…Lesa meira

true

Samræmdum könnunarprófum aflýst

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að aflýsa hefðbundnum samræmdum prófum í ensku og stærðfræði, sem ráðgert var að leggja rafrænt fyrir nemendur í 9. bekk í næstu viku. Þessi ákvörðun byggir fyrst og fremst á hagsmunum nemenda og sjónarmiðum skólasamfélagsins. „Annmarkar voru á rafrænni fyrirlögn prófs í íslensku hinn 8. mars og var…Lesa meira

true

Tók fram úr og löggan þurfti að víkja

Í síðustu viku stöðvaði lögregla ökumann fyrir að sýna ekki nægilega varúð við framúrakstur. Þar hafði ökumaðurinn ekið fram úr tveimur bílum með þeim afleiðingum að bílar sem komu á móti þurftu að víkja. Þeirra á meðal var lögreglubíll sem snarlega var snúið við, ökumaðurinn stöðvaður og honum veitt tiltal – ásamt 20 þúsund króna…Lesa meira