Fréttir

true

Keilufélag Akraness hefur tekið í notkun nýjan búnað

Síðasta haust tók Keilufélag Akraness í notkun nýjar brautir og búnað og er aðstaða félagsins í dag með besta móti í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu. „Þetta er allt annað fyrir okkur. Gömlu vélarnar voru alveg búnar, þær voru alltaf að stoppa eða bila og þá þurfti að fara bakvið og laga. Það var bæði erfitt…Lesa meira

true

Níu nýir umfram burtflutta á Vesturlandi

Á tímabilinu frá 1. desember 2020 og til 1. mars síðastliðins fjölgaði íbúum á Vesturlandi um níu, sem jafngildir fjölgun um 0,1%. Íbúar eru nú 16.714 í tíu sveitarfélögum. Á fyrrgreindu tímabili fjölgaði íbúum á Akransi um 32, eða 0,4%, í Hvalfjarðarsveit fjölgaði um 13 íbúa eða 2%, í Snæfellsbæ fjölgaði um 3 íbúa eða…Lesa meira

true

Óvíst hvort hægt verður að koma Baldri til hafnar í dag

Eins og greint var frá í frétt Skessuhorns nú síðdegis kom upp vélarbilun í aðalvél flóabátsins Baldurs um um kl. 14:30 í dag þar sem skipið var á siglingu innarlega á Breiðafirði, ekki langt frá hættulegri siglingaleið vegna fjölda skerja. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er ekki víst að takist að koma skipinu til hafnar í dag…Lesa meira

true

Skóflustunga að nýju hverfi í Borgarnesi

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju hverfi í Bjargslandi í Borgarnesi við götu sem fær nafnið Sóleyjarklettur. Verkefnið er í höndum hlutafélagsins Slatti ehf. en það er í jafnri eigu Steypustöðvarinnar, Borgarverks og Trésmiðju Eiríks J Ingólfssonar. Upphaflega samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar í ársbyrjun 2020 að leitað yrði samstarfs við fyrirtækin um hönnun, gatnagerð,…Lesa meira

true

Aðalvél Baldurs bilaði þegar skipið var á siglingu á Breiðafirði

Um miðjan dag kom upp bilun í flóabátnum Baldri þar sem hann var á siglingu á Breiðafirði. Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni voru varðskipið Þór ásamt sjóbjörgunarsveitum Landsbjargar kallaðar út. Þá er þyrla Gæslunnar einnig í viðbragðsstöðu Um borð í skipinu eru 28 manns; 20 farþegar og átta manna áhöfn. Gert var ráð fyrir að rannsóknaskipið…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær fær 25 milljóna styrk til skipulagsgerðar og undirbúnings Fjöreggs

Síðastliðinn þriðjudag var Stykkishólmsbæ veittur styrkur að upphæð tæpar 25 milljónir króna úr Framkvæmdastjóði Ferðamannastaða fyrir heildarskipulag áningarstaðar og útsýnisvæða á Súgandisey. Styrkurinn er veittur til deiliskipulagsgerðar fyrir eyjuna sem mun tryggja heilstæða sýn á þróun hennar. Samhliða skipulagsáætlun verður unnið að útsýnissvæði í Súgandisey í samræmi við vinningstillögur úr samkeppni sem haldin var á…Lesa meira

true

Átján á biðlista eftir að fá leiðsöguhund

Inga Sæland þingkona og formaður Flokks fólksins hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum nr. 160/2008 sem hefur það markmið að tryggja reglulegt framboð blindraleiðsöguhunda og koma í veg fyrir að fólk þurfi að bíða árum saman eftir nauðsynlegri aðstoð. Vegna þess að fjármagn skortir er biðin eftir leiðsöguhundum að jafnaði löng.…Lesa meira

true

Á ofsaakstri um þjóðvegina

Lögreglan á Vesturlandi fylgist grannt með umferð innan sem utan þéttbýlis. Í liðinni viku kemur fram í dagbók lögreglu að menn hafi kitlað pinnana meira en góðu hófi gegnir. Einn ökumaður var þannig stöðvaður á laugardag á 132 kílómetra hraða á Snæfellsnesvegi. Hann hlaut að launum 130 þúsund króna sekt. Á mánudaginn stöðvaði lögregla svo…Lesa meira

true

Viðburður með hófför í jörðinni, hestalykt í loftinu og stuði fyrir alla

Rætt við Magnús Benediktsson framkvæmdastjóra Fjórðungsmóts Vesturlands 2021 Magnús Benediktsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts Vesturlands í hestaíþróttum sem haldið verður í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí í sumar. Maggi er flestum hestamönnum kunnur en hann hefur verið áberandi í hestamennskunni allt frá barnsaldri. Hann starfaði lengi við tamningar og árið 2014 gerðist hann framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Nýr leikskóli á Akranesi í útboð

Akraneskaupstaður auglýsir í Skessuhorni vikunnar og á vef sínum eftir tilboðum í framkvæmdir við uppsteypu og utanhússfrágang við nýjan leikskóla að Asparskógum 25 á Akranesi, en samþykkt var um mitt síðasta ár að hefja undirbúning að byggingu leikskólans á mótum Álfalundar og Asparskóga í Skógahverfinu á Akranesi. Skóflustunga var svo tekin fyrr í vetur við…Lesa meira