
Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju hverfi í Bjargslandi í Borgarnesi við götu sem fær nafnið Sóleyjarklettur. Verkefnið er í höndum hlutafélagsins Slatti ehf. en það er í jafnri eigu Steypustöðvarinnar, Borgarverks og Trésmiðju Eiríks J Ingólfssonar. Upphaflega samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar í ársbyrjun 2020 að leitað yrði samstarfs við fyrirtækin um hönnun, gatnagerð,…Lesa meira








