Fréttir

true

Aukaferð með Baldri á morgun

Búið er að setja á aukaferð með ferjunni Baldri á morgun, fimmtudaginn, 11. mars. Brottför verður kl. 9:00 frá Stykkishólmi í fyrramálið og kl. 12:00 frá Brjánslæk. „Við bendum á að ekki verður stoppað í Flatey í þessari aukaferð,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Báðum Vesturlandleikjunum í körfunni frestað vegna veðurs

Tveimur leikjum sem vera áttu í kvöld hefur verið frestað í Domino’s deild kvenna í körfubolta. Þetta er annars vegar leikur Breiðabliks og Snæfells og hins vegar leikur Fjölnis og Skallagríms. Ófært er um Kjalarnes og ekki ráðlagt að fara hjáleiðir. Viðureign Fjölnis og Skallagríms verður 11. mars kl. 18:30 og leikur Breiðabliks og Snæfells…Lesa meira

true

Frystihúsið opnað á Akranesi á laugardaginn

Frystihúsið, ný ísbúð, kaffihús og sælkerastund, verður opnað við Akratorg á Akranesi næstkomandi laugardag. Í samtali við eigendur staðarins kom fram að hugmyndin væri að stuðla að því að Akranes endurheimti fyrri frægð og stolt sitt yfir gömlu frystihúsum bæjarins og að íbúar þurfi ekki lengur að sækja þau grundvallar mannréttindi sín til Reykjavíkur að…Lesa meira

true

Langur biðtími eftir símaviðtölum við lækna í Borgarbyggð

Mikið álag hefur verið á Heilbirgðisstofnun Vesturlands undanfarið. Biðtími íbúa í Borgarbyggð eftir viðtölum eða símatímum hefur verið langur, en Skessuhorni hafa borist ítrekaðar ábendingar um að fólk hafi þurft að bíða í mánuð eftir að fá símatíma hjá lækni. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, segir þennan langa biðtíma vissulega of langan og skiljanlega…Lesa meira

true

“Mér fannst kallarnir á gráu búningunum flottari”

Borgnesingurinn Hlynur Lind Leifsson er safnari með stóru S-i. Hann safnar munum sem tengjast hernaði Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni. Hlynur býr nú í Hafnarfirði með konu sinni, Erlu Sigurðardóttur, og sonum þeirra þremur; Hinriki Val, Víkingi Ara og Degi Hrafni. Hlynur er fæddur 1976 og uppalin í Borgarnesi. Hann lauk grunnskóla þar og lærði síðan…Lesa meira

true

Kjalarnes og Holtavörðuheiði lokuð

Hálka, snjóþekja og hvassviðri er á fjallvegum og víðar um vestanvert landið. Hálkublettir og mjög blint er á Svínadal í Dölum. Ófært er yfir Holtavörðuheiði. Veginum um Kjalarnes var lokað klukkan 12:15 í dag, um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps sem þar varð. Ökumönnum er bent á hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð, en þar er…Lesa meira

true

Íslendinga þyrstir í að skipta um umhverfi

Mörg hótel í Borgarfirði eru nú að opna að nýju eftir hlé frá í haust. Skessuhorn hafði samband við hótelstjóra fjögurra stórra hótela í héraðinu og spurði um stöðuna. Fram kemur í máli þeirra flestra að landsmenn þyrsti orðið í að breyta til, komast í smá frí í annað umhverfi. Ástæðan er ekki síst sú…Lesa meira

true

Skóflustunga að fyrstu húsbyggingum við Fjóluklett í Borgarnesi

Á morgun, fimmtudag, verður tekin fyrsta skóflustungan að byggingu húsa við nýja götu í Bjargslandi í Borgarnesi. Gatan heitir Sóleyjarklettur og er ofan við höfuðstöðvar kaupfélagsins við Egilsholt, liggur samhliða Stöðulsholti. Borgarverk hefur unnið við gatnagerð og lagnir á svæðinu frá því á síðasta ári. Verkefnið er samstarf þriggja öflugra fyrirtækja í Borgarnesi og er…Lesa meira

true

Jarðvegsframkvæmdir hafnar við stærstu íbúðablokkina á Akranesi

Á mánudaginn hófust framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús sem rísa mun við Asparskóga 18 á Akranesi. Um er að ræða 40 íbúða hús og er byggingaraðili Barium ehf. sem byggir húsið fyrir Ferrum Fasteignafélag. Hönnuður hússins er Runólfur Þ Sigurðsson hjá Al-Hönnun ehf. Að sögn Engilberts Runólfssonar, verkefnastjóra Barium, er byggingartími hússins áætlaður um 16 til…Lesa meira

true

Veturinn er ekki alveg búinn

Eftir mjög gott tíðarfar undanfarnar vikur og mánuði hefur vetur konungur aftur minnt hressilega á sig. Gul viðvörun Veðurstofunnar er í gildi fyrir Vesturland til miðnættis í kvöld. Í viðvörun Veðurstofunnar segir m.a.: “Hvassviðri eða stormur og jafnvel staðbundið rok og hríð á Snæfellsnesi, snjókoma eða skafrenningur. Snarpar vindhviður við fjöll. Varasamt fyrir bíla sem…Lesa meira