
Veðurstofa Íslands hefur gefið út skýrslu um jökulhlaupið sem varð úr Hafrafellslóni í vestanverðum Langjökli 17. ágúst 2020. Lón þetta hefur verið að myndast frá síðustu aldamótum vegna hörfunar jökulsins. Hlaupið úr lóninu leitaði sér fyrst farvegs í Svartá undir Hafrafelli, við vesturjaðar Langjökuls og þaðan út í Hvítá. Íbúar í uppsveitum Borgarfjarðar urðu varir…Lesa meira








