Fréttir

true

Héldu hlutaveltu til styrktar Krabbameinsfélaginu

Þessar duglegu stúlkur tóku sig til og héldu hlutaveltu fyrir utan Kjörbúðina í Grundarfirði síðasta sunnudag. Þær tóku sig til og gengu í hús til að safna hinum ýmsu hlutum sem þær freistuðu svo að koma í not aftur í samfélaginu og safna fyrir góðu málefni í leiðinni. Allur ágóði af hlutaveltunni rennur til Krabbameinsfélagsins.Lesa meira

true

Þegar allir hötuðu hatara sýnd í Bíóhöllinni

Heimildamyndin A Song Called Hate verður sýnd í Bíóhöllinni á Akranesi fimmtudaginn 11. mars kl. 20:00.  Myndina segir frá Eurovisiongjörningi Hatara og því sem gerðist á bak við tjöldin í Ísrael og Palestínu. Hljómsveitin Hatari hafði starfað í jaðarsenu íslenska menningarlífs frá árinu 2016 og var lítt þekkt. Það breyttist eftirminnilega árið 2019 þegar meðlimir…Lesa meira

true

Vararafstöðvar sanna rækilega gildi sitt

Nýverið greindum við frá því í frétt hér í Skessuhorni að ríkið afhenti Landsbjörgu nokkrar vararafstöðvar sem verða til taks í öllum landshlutum til að bregðast við aðstæðum, svo sem rafmagnsleysi. Slíkum stöðvum hefur nú verið komið til geymslu og notkunar, ef með þarf, í Ólafsvík, Borgarnesi og á Akranesi. Síðastliðinn föstudag varð rafmagnslaust í…Lesa meira

true

Auglýsa starf dýralæknis í Dölum og á Ströndum

Matvælastofnun hefur auglýst eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í Dölum og á Ströndum. Í boði er samningur um stuðningsgreiðslur á þjónustusvæðinu. Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti,…Lesa meira

true

Fyrsti doktorsneminn á sviði dýralækninga við íslenska háskóla

Helga Gunnarsdóttir, dýralæknir hesta, hóf nýverið doktorsnám í hestavísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Helga úrskrifaðist frá Dýralæknaskólanum í Hannover í Þýskalandi árið 2002 og lauk þriggja ára sérfræðinámi í skurðlækningum stórra dýra frá Háskólanum í Ghent í Belgíu árið 2012. Helga hefur alls um 20 ára starfsreynslu við hestalækningar, bæði hér heima og erlendis. Verkefni hennar…Lesa meira

true

Skallagrímur lagði Hrunamenn

Skallagrímur sigraði Hrunamenn, 86-68, í 1. deild karla í körfubolta í leik sem spilaður var í Fjósinu á föstudaginn. Skallagrímur setti tóninn strax í fyrsta leikhluta og var fimm stigum yfir þegar leikhlutanum lauk, 21-16. Í öðrum leikhluta héldu heimamenn áfram að auka forskotið og þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik var staðan 42-33…Lesa meira

true

Stefnir í átök um oddvitasæti Sjálfstæðismanna í NV kjördæmi

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir 2. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og varaformaður flokksins tilkynnti það á bæjarmálafundi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi á laugardaginn að hún ætlaði að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Áður hafði Haraldur Benediktsson oddviti flokksins og fyrsti þingmaður kjördæmisins tilkynnt að hann muni áfram gefa kost á…Lesa meira

true

Naumt tap hjá Víkings í spjaldaleik

Víkingur Ólafsvík heimsótti Grindvíkinga í Lengjubikarnum á sunnudag. Víkingur tapaði leiknum naumlega 2:3 þar sem þrjú rauð spjöld fóru á loft. Grindvíkingar komust í 2:0 í fyrri hálfleik með mörkum þeirra Guðmundar Magnússonar og Viktors Guðbergs Haukssonar. Víkingar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og voru búnir að jafna leikinn fyrir miðjan hálfleikinn með…Lesa meira

true

Ríkið er ríki í ríkinu og án stjórnar

Um fjörutíu umsagnir bárust við frumvarp dómsmálaráðherra um lítil handverksbrugghús meðan það var til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Efnislega snýst frumvarpið um að handsverksbrugghús fái undanþágu frá einkarétti ÁTVR og leyfist að selja bjór út úr húsi á framleiðslustað. Umsagnir eru nánast eins mismunandi og þær eru margar. Allt frá einarðri andstöðu og vísað til…Lesa meira

true

Móta stefnu í MB um menntun fyrir störf framtíðarinnar

Í ársbyrjun 2021 samþykkti Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) að skipa starfshóp sem móta á tillögur fyrir þróun skólans. Markmiðið er að auka sérstöðu og efla ímynd MB, koma til móts við nýjar þarfir í menntun ungs fólks, fjölga nemendum og laða að enn fjölbreyttari hóp nemenda, en auk þess að stuðla að jákvæðari búsetuskilyrðum í…Lesa meira