Fréttir

true

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum rúllar af stað á föstudaginn

Vesturlandsdeildinni hestaíþróttum hefst næstkomandi föstudag í Faxaborg í Borgarnesi með keppni í fjórgangi klukkan 19:00. Mótið varð endasleppt í fyrra vegna Covid-19, en þá var einmitt keppt í fjórgangi, áður en stöðva varð mótið vegna sóttvarnareglna. Áhorfendum gefst ekki kostur á að fylgjast með mótinu í Faxaborg í Borgarnesi að þessu sinni, en því verður…Lesa meira

true

„Tek við spennandi og krefjandi verkefni“

Eggert Herbertsson kosinn formaður Knattspyrnufélags ÍA Á aðalfundi Knattspyrnufélags ÍA síðastliðinn fimmtudag voru þrír nýir stjórnarmenn kosnir inn í níu manna stjórn félagsins. Magnús Guðmundsson lét af formennsku eftir sjö ára setu og við keflinu tók Eggert Herbertsson, fimmtugur einarður áhugamaður um knattspyrnu. Auk hans komu ný í stjórn Brandur Sigurjónsson og Lára Dóra Valdimarsdóttir…Lesa meira

true

Háskóladagurinn stafrænn að þessu sinni

Hægt verður að kynna sér allt háskólanám í landinu á netinu laugardaginn 27. febrúar Háskóladagurinn fer fram laugardaginn 27. febrúar milli kl. 12 og 16 en þá gefst öllum sem hyggja á háskólanám kjörið tækifæri að kynna sér allt grunnnám allra háskóla á landinu. Í ár verður Háskóladagurinn alfarið á netinu vegna samkomutakmarkana sem tengjast…Lesa meira

true

Árveknisátak Einstakra barna hefst í dag

Í dag hefst árvekni- og fjáröflunarátak Einstakra barna undir slagorðinu „Fyrir utan rammann.” Átakinu er ætlað að auka samfélagslegan skilning á stöðu barna með sjaldgæfa sjúkdóma og er kastaranum beint að foreldrum og fjölskyldum þessara barna. Hátt í  500 íslensk börn/ungmenni glíma við ofur sjaldgæfa sjúkdóma og félagasamtökin Einstök Börn fá engan opinberan stuðning til…Lesa meira

true

Tap hjá Víkingi Ólafsvík gegn KA

Karlalið Víkings Ólafsvík lék sinn annan leik í Lengjubikarnum í Akraneshöllinni á laugardaginn, nú gegn KA. Víkingar töpuðu stórt fyrir úrvalsdeildarliðinu, með fimm mörkum gegn engu.  Staðan í hálfleik var 0:1 með marki Nökkva Þeys Þórissonar. En í upphafi síðari hálfleiks bætti Ásgeir Sigurgeirsson öðru marki við. Eftir um klukkutíma leik varð Alex Bergmann Arnarsson…Lesa meira

true

Bólusetningardagatal vegna Covid-19

Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við sóttvarnalækni hefur útbúið bólusetningardagatal vegna Covid-19, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi. Dagatalinu er ætlað að gefa fólki vísbendingu um hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í einstökum forgangshópum. Dagatalið er birt með fyrirvara, enda að hluta til um áætlun að ræða sem mun taka…Lesa meira

true

Góður sigur Borgnesinga á föstudaginn

Skallagrímur hafði betur gegn Fjölni þegar liðin mættust í Fjósinu í 1. deild karla í körfubolta á föstudaginn. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en rétt áður en fyrsti leikhluti kláraðist náðu Fjölnismenn fjögurra stiga forystu, 17-13. Í byrjun annars leikhluta komst Fjölnir níu stigum yfir en þá ýttu Borgneingar á bensíngjöfina og gáfu…Lesa meira

true

Á morgunverðarfundi Vegagerðarinnar verður fjallað um vetrarþjónustu

Vegagerðin verður með morgunfund í streymi í fyrramálið þar sem fjallað verður um vetrarþjónustu á þjóðvegum landsins frá ýmsum hliðum. Fundurinn er þriðjudaginn 23. febrúar nk. kl. 09:00 – 10:15. “Stöðugt er kallað eftir aukinni þjónustu við vegakerfið að vetri. Atvinnusókn á landsbyggðinni hefur breyst og fólk sækir í auknum mæli vinnu milli bæjarfélaga. Þessi…Lesa meira

true

Hólmarar töpuðu naumlega

Fyrsti sigur KR í vetur kom í gær þegar liðið sigraði Snæfell í Domino‘s deild kvenna í körfubolta, 78-74. KR konur mættu sterkar til leiks og skoruðu níu stig gegn engu fyrstu þrjár mínútur leiksins. Þá vöknuðu Hólmarar en náðu þó ekki að jafna metin í fyrsta leikhluta og staðan 22-15 fyrir KR þegar leikhlutanum…Lesa meira

true

Valskonur voru of erfiðar fyrir Borgnesinga

Valskonur sigruðu Skallagrím örugglega þegar liðin mættust í Borgarnesi í gær, sunnudag. Gestirnir tóku stjórnina strax í fyrsta leikhluta og voru búnir að ná góðri 12 stiga forystu í lok leikhlutans, 24-12. Borgnesingar fundu engin ráð gegn sterku liði Valskvenna sem var enn með þægilega tólf stiga forystu í hálfleik, 44-32. Eftir hléið héldu gestirnir…Lesa meira