Fréttir

true

Ætla að kostnaðarmeta nauðsynlegar lagfæringar í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að fela sveitarstjóra að afla tilboða í úttekt á gamla sláturhúsinu í Brákarey og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs. Eins og fram kom í fréttum í síðustu viku var umferð og notkun í húsunum Brákarbraut 25 og 27 bönnuð frá og með laugardeginum 13. febrúar vegna alvarlegra…Lesa meira

true

Lentu í snjóflóði í norðurhlíðum Skessuhorns

Síðdegis í gær voru björgunarsveitir Landsbjargar í Borgarfirði og á Akranesi kallaðar út til verkefnis í norðurhlíðum Skessuhorns í Borgarfirði. Tilkynning hafði borist Neyðarlínunni frá tveimur mönnum sem lent höfðu í snjóflóði í fjallinu um nónbil. Mennirnir náðu sjálfir að tilkynna um stöðu sína eftir að þeir komust úr flóðinu. Annar þeirra hafði tognað á…Lesa meira

true

Eigendur Norðanfisks kaupa Eðalfisk í Borgarnesi

Eigendur Eðalfisks ehf. í Borgarnesi hafa gengið að kauptilboði Brimilshólma ehf. í allt hlutafé félagsins. Tilboðið er háð tilteknum fyrirvörum af hálfu beggja aðila og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Gert er ráð fyrir að niðurstaða úr henni liggi fyrir á næstu vikum. Eðalfiskur ehf. er 34 ára fyrirtæki sem stofnað var í Borgarnesi þar sem það hefur…Lesa meira

true

Prufukeyrðu nýja raforkuframleiðslu í Reykholti

Í Reykholti í Borgarfirði hefur fyrirtækið Varmaorka undanfarin misseri unnið við uppsetningu véla og tækjabúnaðar sem framleiða mun rafmagn úr yfirhita á heitu vatni. Fyrirtækið er í nánu samstarfi við sænska fyrirtækið Climeon AB sem býður upp á sérhæfðar tæknilausnir fyrir nýtingu lág- og meðalhita til framleiðslu raforku. Verkefnið hefur nú verið í undirbúningi í…Lesa meira

true

Fékk verðlaun í eldvarnagetraun LSS

Fyrr í vikunni voru á Akranesi afhent verðlaun í eldvarnagetraun sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna stóð fyrir í lok síðasta árs. Það var Keanna Rós Garðarsdóttir, nemandi í Brekkubæjarskóla, sem hafði heppnina með sér en nafn hennar var dregið úr hópi svarenda. Verðlaun voru afhent til sigurvegarans að lokinni rýmingaræfingu í Brekkubæjarskóla.Lesa meira

true

Fyrsta útsending ÍATV frá fimleikahúsinu á morgun

Á morgun, laugardaginn 20. febrúar, standa forsvarsmenn ÍATV vaktina frá morgni til kvölds í nýja Fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Þar fer þá fram GK-mót í hópfimleikum á vegum Fimleikasambands Íslands og Fimleikafélags Akraness. Þetta verður fyrsta mótið sem haldið er í húsinu og því sögulegur viðburður í íþróttasögu Akraness. Útsending hefst klukkan 10:30 í…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs stofnað á næstunni

Unnið er að stofnun ferðafélags í Borgarfirði. Stofnun félagsins er sprottin upp úr áhuga nokkurra einstaklinga á að auka veg og virðingu svokallaðrar Vatnaleiðar sem tengir saman Borgarfjörð og Snæfellsnes en hún liggur milli Hlíðarvatns, Hítarvatns, Langavatns og Hreðavatns. Til er kort af leiðinni en markmiðið er að stika hana og lagfæra og byggja upp…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagrímskvenna

Skallagrímur sigraði KR örugglega þegar liðin mættust í Borgarnesi í Domino‘s deild kvenna síðastliðinn miðvikudag, 67-53. Skallagrímskonur náðu yfirhöndinni strax í fyrsta leikhluta og leiddu með átta stigum þegar annar leikhluti hófst, 19-11. Áfram héldu heimakonur að stjórna inni á vellinum og voru í þægilegri ellefu stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, 33-22. Lítið…Lesa meira

true

Kaka ársins komin í sölu í bakaríum

Ljósmæður og starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala tóku á móti fyrstu Köku ársins 2021. Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins. Sigurvegari keppninnar var Garðar Sveinn Tranberg, bakarameistari hjá Bakarameistaranum og er kaka Garðars Góu hraunkaka með karamellumús og ferskju- og ástaraldinfrómas. Sala á kökunni hófst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt…Lesa meira

true

Frumvarp sem leggst gegn blóðmerahaldi

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um velferð dýra. Frumvarpið leggur til að svokallað blóðmerahald verði bannað hér á landi og því verði bannað að taka blóð úr fylfullum hryssum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu. Í greinargerð með…Lesa meira