Fréttir

true

Úrelt lög felld úr gildi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um brottfall 25 laga á málasviði ráðuneytisins. Lögin, sem lagt er til að felld verði brott, hafa öll lokið hlutverki sínu en eru að formi til enn í gildi. Elstu lögin eru frá árinu 1917. Flest lögin sem felld yrðu úr gildi eru sérlög um bæjarstjórnir í tilteknum…Lesa meira

true

Smíðar stólana Alka, Fullan og Þunnan

Erling Markús Andersen tekur brosandi á móti blaðamanni á verkstæði sínu við Ægisbraut á Akranesi. Á verkstæðinu smíðar Erling bátalíkön en hann hefur smíðað slík líkön í 19 ár. Hann sinnir einnig viðgerðum á bátalíkönum og sýnir blaðamanni líkan af sportbát sem hann fékk til viðgerðar. Líkanið var keypt ósamsett í Bretlandi á stríðsárunum og…Lesa meira

true

Viðræður um aukið samstarf slökkviliða

Opnað var á viðræður milli sveitarfélaganna Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar um aukið samstarf þeirra á sviði eldvarna og slökkviliðsmála í lok síðasta árs. Slíkar hugmyndir höfðu upphaflega komið til tals fyrir um þremur árum. Unnið er að því að safna upplýsingum um mögulegar leiðir til aukins samstarfs og nú eftir áramót hafa verið vikulegir fundir…Lesa meira

true

Fjársýslan með misvísandi upplýsingar til sveitarfélaga

Í því skyni að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveirunnar var gerð breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda á síðasta ári. Breytingin færði launagreiðendum, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna faraldursins, heimild til að fresta allt að þremur gjalddögum skatta, þ.m.t. útsvari, á tímabilinu apríl til desember 2020. Vísbendingar eru um að þessa kerfisbreytingu hafi…Lesa meira

true

Sögumiðstöðin verður ný gerð af samkomuhúsi

„Það er nú gaman að hafa eitthvað svona skemmtilegt að brasa við,“ segir Ingi Hans Jónsson kátur þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í honum. Í árslok 2020 samdi Grundarfjarðarbær við fyrirtækið ILDI ehf., sem er í eigu Inga Hans, um umsjón með hönnun á uppbyggingu í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Þar á að breyta húsnæði Sögumiðstöðvarinnar í…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í dag

Vegna lagfæringar á dreifikerfi verður rafmagnslaust í Eyja- og Miklaholtshreppi, Kolbeinsstaðahreppi, Hnappadal og á Mýrum í dag frá kl. 13:00-13:15 og aftur frá kl: 15:00-15:25. Þá verður rafmagnslaust í Laugagerðisskóla og Kornhlöðu frá kl 13:00-15:15 í dag af sömu sökum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira

true

Keflvíkingar höfðu betur gegn Snæfelli

Snæfell tapaði fyrir Keflvíkingum þegar liðin mættust í Hólminum í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gær. Liðin fylgdust að í jöfnum fyrsta leikhluta og staðan 31-28 í lok leikhlutans. Í öðrum leikhluta fóru gestirnir að skilja sig hægt og örugglega frá heimakonum og leiddu með 13 stigum þegar gengið var til klefa í hálfleiks,…Lesa meira

true

Forval verður hjá VG í Norðvesturkjördæmi

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi verður með forval til að ákveða framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Flokkurinn á nú einn þingmann í kjördæminu; Lilju Rafney Magnúsdóttur á Suðureyri, en varaþingmaður er Bjarni Jónsson á Sauðárkróki. Samkvæmt heimildum Skessuhorns stefna þau bæði á forystu áfram. Kjörstjórn hefur nú auglýst eftir frambjóðendum. Forvalið fer fram með rafrænum hætti…Lesa meira

true

Íslenska körfuboltalandslið karla mætir Slóvenum í dag

Í dag klukkan 16 er komið að fyrri leik Íslands í febrúar-glugganum í forkeppninni að undankeppni HM 2023 í körfu. Leikurinn verður sýndur beint í Ríkissjónvarpinu. Leikið er í Pristhina höfuðborg Kosovó þar sem liðin fjögur í riðlinum; Ísland, Slóvakía, Kosovó og Lúxemborg eru öll saman komin og leika tvo leiki hvert gegn hvert öðru.…Lesa meira

true

Listkennsla fyrir fólk á öllum aldri

Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi býður nú upp á listkennslu fyrir fólk á öllum aldri. Sex til tíu ára nemendur í Borgarnesi fá nú námskið í frístund þriðjudaga og miðvikudaga. „Þetta er mjög vinsælt námskeið. Það eru margir sem hafa þörf fyrir að tjá sig á skapandi hátt og þarna geta þeir gert það,“ segir…Lesa meira