Fréttir

true

Afléttu sérstökum þungatakmörkunum eftir einn dag

Vegagerðin aflétti í gær sérstökum þungatakmörgunum sem settar voru á föstudag á Þjóðvegi 1, milli Borgarness og Varmahlíðar í Skagafirði aukVestfjarðarvegar (60), milli Dalsmynnis og Reykhólasveitar. Vart varð blæðinga í malbiki og því var brugðist við með þessum hætti.Lesa meira

true

Katrín Sif vill leiða lista Pírata

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands, vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er 45 ára hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, gift Aðalsteini Ingólfssyni og samtals eiga þau átta börn. Katrín Sif starfar nú sem ljósmóðir í mæðravernd og sinnir heimafæðingaþjónustu. Í tilkynningu kemur fram að Katrín Sif velur að bjóða sig fram…Lesa meira

true

Nú er hægt að kaupa dorgveiðileyfi í Úlfsvatni

Á fundi stjórnar Veiðifélags Arnarvatnsheiðar fyrr í vikunni var samþykkt að bjóða upp á leyfi til dorgveiða í Úlfsvatni. Stöngin mun kosta fimm þúsund krónur og eru menn beðnir um að setja sig í samband við Snorra Jóhannesson veiðivörð (s. 892-5052) til að fá upplýsingar um færð og annað sem nauðsynlegt er að vita ef…Lesa meira

true

Vara við slitlagsskemmdum

Vegagerðin varar við slitlagsskemmdum á Þjóðvegi eitt, á milli Borgarness og Varmahlíðar í Skagafirði og á Vestfjarðarvegi 60, frá Dalsmynni að Reykhólasveit. Hefur ásþungi á þessum vegum verið lækkaður niður í sjö tonn frá hádegi í dag, 5. febrúar. Á vef Ríkisútvarpsins er greint frá því að tjörublæðingar eru bæði á vestanverðum Svínadal í Dölum…Lesa meira

true

Ættfræðibækur á bókamarkaði

Bókakaffið í Ármúla 42 í Reykjavík leggur nú sérstaka áherslu á ættfræðibækur. „Við erum með lagersölu á fjölmörgum vinsælum niðjatölum og auk þess mikið úrval notaðra ættfræðibóka og fágætra smárita um ættfræði. Alltaf er eitthvað nýtt á boðstólum í hverri viku og hér gildir hið fornkveðna að fyrstur kemur, fyrstur fær. Ættfræðimarkaðurinn stendur út febrúar.…Lesa meira

true

UMFG fær húsnæði undir rafíþróttadeildina

Ungmennafélag Grundarfjarðar fékk á dögunum afhent húsnæði til afnota fyrir nýstofnaða rafíþróttadeild félagins. Húsnæðið er í eigu Grundarfjarðarbæjar og er stefnt á að taka það í notkun á næstu vikum. Ungmennafélag Grundarfjarðar hóf vinnu við stofnun rafíþróttadeildar snemma á síðasta ári og nú er sú vinna langt komin. Búið er að kaupa tölvubúnað, fá húsnæði…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustunga að nýjum leikskóla í Skógarhverfi á Akranesi

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum leikskóla í Skógarhverfi á Akranesi í dag. Þar er um að ræða sex deilda leikskóla með möguleika á stækkun í átta deildir. Hönnuðir leikskólans eru Batteríið arkitektar, Landslag og Verkís. Tvær deildir og vinnurými kennara og aðstaða verður á annarri hæð og útileikrými á hluta af þakinu. Skábraut af…Lesa meira

true

Þyrla í lágflugi yfir Norðurárdalnum

Ábúendur á Glitstöðum í Norðurárdal hrukku upp um miðja nótt aðfararnótt þriðjudags þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir í lágflugi, lægra en venja er til, svo drundi í húsum. Þarna var TF-EIR á ferð en þyrlan hafði verið kölluð út til að sækja veikan einstakling. Þyrlan fór til móts við sjúkrabíl og lenti nærri Fornahvammi,…Lesa meira

true

Velta á fasteignamarkaði ekki verið meiri síðan fyrir hrun

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2020 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna á Vesturlandi sem skiptu um eigendur á árinu 2020 var 705 og hafa ekki verið líflegri viðskipti með fasteignir síðan fyrir hrun, eða árið 2007. Flestar seldar eignir á Vesturlandi voru í fjölbýli, eða 302. Seldar sérbýliseignir…Lesa meira

true

Slaka á samkomutakmörkunum á mánudaginn

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um tilslakanir á samkomutakmörkunum. Tillögurnar taka gildi á mánudaginn, 8. febrúar, og gilda til og með 3. mars. Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en undantekningar verða rýmri en áður. Enn gilda reglur um tveggja metra reglu og grímuskyldu. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanþegin…Lesa meira