Fréttir

true

Sýrlenskur veitingastaður opnaður á Akranesi

Sýrlenski veitingastaðurinn Flamingo Kebab var opnaður við Stillholt 23 á Akranesi um liðna helgi. Þar er hægt að fá samlokur, vefjur, salöt og annan sýrlenskan skyndibita. Það eru þau Heba Ajaraki og Maher Al-Habbal sem eiga og reka Flamingo Kebab en þau koma bæði frá Sýrlandi. Hægt er að finna Flamingo Kebab á Facebook og…Lesa meira

true

Gekk ágætlega að slökkva eldinn

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út um klukkan átta í morgun vegna sinubruna við rætur Akrafjalls. Slökkvistarfi er nú lokið og að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra gekk ágætlega að slökkva eldinn, þrátt fyrir mikinn vind á svæðinu. Ekkert tjón varð af eldinum ef frá er talið tjónið á þeim gróðri sem varð eldinum…Lesa meira

true

Bjarni og Bernie eru mæðrasynir

Myndir af þingmanni öldungadeildar í Bandaríkjahreppi, frá innsetningarathöfn forseta þar í landi, hafa farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarna daga. Einhverjir bentu á líkindi Bernies við Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þeir eru skyldir, eða mæðrasynir. Þarna sitja þeir saman karlarnir.Lesa meira

true

Grikkland of stór biti fyrir íslensku stelpurnar

Grikkland reyndist númeri of stórt fyrir íslenska kvennalandsliðið í körfubolta þegar liðin mættust í A riðli í undankeppni EM í gær. Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn af miklum krafti og hleyptu Grikkjum ekki langt framúr í upphafi leiks. Í lok fyrsta leikhluta voru Grikkir með fimm stiga forystu, 17-22. Í öðrum leikhluta var staðan svipuð, Grikkir…Lesa meira

true

Tæp sjötíu þúsund tonn koma í hlut íslenskra útgerða

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra beið ekki boðanna eftir að Hafrannsóknastofnun mælti með auknum 127.300 tonna veiðum úr loðnustofninum síðdegis í gær og undirritaði í morgun reglugerð um veiðar á loðnu á þessari vertíð. Hún heimilar íslenskum skipum að veiða 69.834 tonn. Taka þarf tillit til gildandi samninga við önnur ríki áður en til úthlutunar á…Lesa meira

true

Ökumönnum láist að kveikja á afturljósum

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi er mjög algengt að ökumenn gæti ekki að því að afturljós bifreiða séu kveikt heldur aki aðeins með dagljósabúnað. Í mörgum nýlegum bifreiðum er búnaði þannig háttað að ekki kviknar sjálfkrafa á afturljósunum. Þetta getur verið stórvarasamt þegar skyggni er lélegt og skapað hættu á aftanáakstri. Sektin fyrir slíkt brot…Lesa meira

true

Sinueldur við rætur Akrafjalls

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út vegna sinubruna við Akrafjall, fyrir ofan þar sem Terra er, rétt eftir klukkan átta í morgun. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra stendur nú slökkvistarf yfir en töluverður vindur er á svæðinu sem breiðir eldinn hratt út.Lesa meira

true

Á öðru hundraðinu með kerru

Í byrjun vikunnar stöðvuðu lögreglumenn á Vesturlandi för ökumanns með kerru í eftirdragi. Reyndist hann hafa ekið á 117 kílómetra hraða auk þess sem kerran var óskráð. Hann var sektaður m 96 þúsund krónur fyrir brotið.Lesa meira

true

Stýrivextir verða áfram óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabankans gaf það út 3. febrúar síðastliðinn að stýrivextir verði áfram óbreyttir. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75%. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá kemur fram að svo virðist sem innlend eftirspurn hafi verið þróttmeiri í fyrra en áður var áætlað og efnahagssamdrátturinn því minni en bankinn spáði í nóvember. Á…Lesa meira

true

Loðnukvótinn tvöfaldaður miðað við síðustu tillögur

Hafrannsóknastofnun hefur nú lagt til að loðnukvóti á vertíðinni 2020/21 verði aukinn í 127.300 tonn. Kemur sú ráðgjöf í stað þeirrar sem gefin var út 24. janúar síðastliðinn. Byggir ráðgjöfin á summu tveggja leiðangra sem fóru fram seinni part janúar og gáfu mat á stærð hrygningarstofns loðnu upp á samtals 650 þúsund tonn. „Dreifing loðnu…Lesa meira