Fréttir

true

Starfsemi fyrirhuguð í hluta húsa á Laugum í Sælingsdal

Fyrirtækið Heilsusköpun ehf. hefur fengið hluta húsakosts á Laugum í Sælingsdal í Dölum á leigu fyrir starfsemi sína. Stefnan er að færa nýtt líf í húsin sem að mestu hafa staðið ónotuð síðustu misserin. Það eru þær Erla Ólafsdóttir og Harpa Einarsdóttir sem standa að Heilsusköpun ehf. og hafa þær að eigin sögn marga skemmtilega…Lesa meira

true

Gunnar Ingiberg býður sig fram fyrir Pírata

Gunnar Ingiberg Guðmundsson, fyrrverandi varaþingmaður Pírata í Norðvesturkjördæmi, gefur kost á sér til að leiða lista Pírata í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Gunnar er uppalinn í Stykkishólmi, er búsettur í Kópavogi og stundar nám við Háskólann í Reykjavík. Hann er menntaður skipstjórnarmaður, rekur eigin smábátaútgerð og hefur hug á því að fylgja eftir sjávarútvegstefnu Pírata.…Lesa meira

true

Samþykkja að meta kostnað við færanlegar leikskólastofur

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var m.a. rætt um viðbrögð við biðlistum eftir leikskólaplássum í Borgarnesi. Tillaga sviðsstjóra fjölskyldusviðs felur í sér að keyptar verði færanlegar kennslustofur við Ugluklett til að bregðast við ástandinu. „Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga til samninga um kaup á færanlegum kennslustofum. Málið verði lagt fyrir byggðarráð að nýju á…Lesa meira

true

Keppni hafin í netöryggi

Netöryggiskeppni Íslands hefst í dag með forkeppni á netinu sem stendur til 15. febrúar. Keppnin er nú haldin í annað sinn en sú fyrsta fór fram í Hörpu í febrúar 2020. Netöryggiskeppninni lýkur með landskeppni í mars en þar verður keppt um þátttökurétt í Netöryggiskeppni Evrópu, European Cyber Security Challenge (ESCS), sem fer fram í…Lesa meira

true

Tvær febrúarúthlutanir Mæðrastyrksnefndar

„Gjafmildi Kaupfélags Skagfirðinga við hjálparstofnanir gerir okkur kleift að úthluta matvælum tvisvar í febrúarmánuði, þriðjudaginn 9. febrúar og miðvikudaginn 24. febrúar frá kl 12-16,“ segir í tilkynningu frá Mæðrastyrksnefnd Akraness. Úthlutunin verður nú í HB Granda húsinu við Bárugötu 8-10. Umsækjendur geta sótt um í síma 859-3000 og í 859-3200 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com Símatími…Lesa meira

true

Stutt í að Vesturland verði án veirunnar

Hér innanlands var ekkert smit Covid-19 greint í gær, en tíu greindust á landamærunum. Nú eru 41 í einangrun með sjúkdóminn hér á landi og 22 eru í sóttkví. Hér á Vesturlandi er staðan sú, samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Vesturlandi, að einn er í einangrun á starfssvæði HVE í Borgarnesi, og einn í sóttkví á…Lesa meira

true

Mokveiði hjá línubátunum

Mjög góð aflabrögð voru í öll veiðarfæri um helgina hjá bátum sem gera út frá höfnum í Snæfellsbæ. Sem dæmi landaði Hafdís SK, sem er beitningarvélarbátur, í gærkvöldi 25 tonnum eftir eina lögn. Á Arnarstapa var landað um helgina 135 tonnum af sex línubátum sem mokfiskuðu og var nóg um að vera á hafnasvæðinu þar,…Lesa meira

true

Baulunni lokað tímabundið

Versluninni og veitingastaðnum Baulunni í Borgarfirði var nú um mánaðamótin lokað tímabundið. Skeljungur keypti staðinn í byrjun síðasta árs og var markmiðið með kaupunum að þétta stöðvanet Orkunnar um landið, eins og fram kom í tilkynningu. Að sögn Karenar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra einstaklingssviðs hjá Skeljungi, er stefnt að opnun staðarins að nýju með vorinu þegar umferð…Lesa meira

true

Kristín stigahæsti keppandinn á Reykjavíkurleikunum

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona sigraði í kvennaflokki í klassískum kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum sem fram fóru um helgina. Keppni fór fram í Sporthúsinu í Kópavogi en var að þessu sinni innanlandsmót en erlendir keppendur urðu að hætta við þátttöku vegna Covid-19. Kristín náði góðum árangri á mótinu og varð stigahæsti keppandi mótsins. Átta af níu lyftum hennar…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn töpuðu báðum leikjum vikunnar

Nóg var að gera hjá Skallagrímsmönnum um helgina en liðið mætti Sindra á föstudaginn og Vestra í gær í 1. deild karla í körfubolta. Skallagrímur tapaði stórt, 92-64, þegar liðið sóttir Sindra á heim á Höfn. Borgnesingar eltu heimamenn allan leikinn og strax eftir fimm mínútur skildu leiðir þegar heimamenn voru komnir sex stigum yfir,…Lesa meira