Fréttir

true

Bílvelta við Hvalfjarðargöng

Í síðustu viku var bíl velt útaf veginum sunnan við hringtorgið við Hvalfjarðargöng að norðanverðu. Ökumaður og farþegi voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi. Annar aðilinn var síðan fluttur til Reykjavíkur. Að sögn lögreglu er grunur um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og er málið til rannsóknar. Þess má geta að bíllinn var enn…Lesa meira

true

Viðgerðir á heilsugæslustöð HVE í Ólafsvík

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir framkvæmdir við heilsugæslustöð HVE í Ólafsvík. Skipt hefur verið um og lengt þak ásamt því að þakkanti er breytt þannig að hann er lengdur og klæddur með áli. Settar verða nýjar rennur og skipt um þá glugga sem þarf ásamt því að húsið sjálft verður málað. Undanfarin ár hefur orðið…Lesa meira

true

UMFG fær húsnæði undir rafíþróttadeildina

Ungmennafélag Grundarfjarðar fékk á dögunum afhent húsnæði til afnota fyrir nýstofnaða rafíþróttadeild félagins. Húsnæðið er í eigu Grundarfjarðarbæjar og er stefnt á að taka það í notkun á næstu vikum. Ungmennafélag Grundarfjarðar hóf vinnu við stofnun rafíþróttadeildar snemma á síðasta ári og nú er sú vinna langt komin. Búið er að kaupa tölvubúnað, fá húsnæði…Lesa meira

true

Í dag eru fimmtíu ár frá því Brákarhlíð hóf starfsemi

Í dag eru 50 ár liðin frá vígsludegi Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi, nú Brákahlíð. Afmælisins og starfseminni voru gerð ítarleg skil í afmælisblaði sem Brákarhlíð gaf út í október síðastliðnum í samstarfi við Skessuhorn. Ekki verður um nein teljandi hátíðarhöld að ræða í dag í tilefni þessa merka áfanga en stefnt er að því að…Lesa meira

true

Tveir í einangrun og enginn í sóttkví

Á síðustu dögum hafa einungis örfáir verið greindur með Covid-19 innanlands og eru landsmenn samkvæmt því að standa sig frábærlega í sóttvörnum. Nýgengi innanlandssmita er nú 6,8 af 100 þúsund íbúum og fáar þjóðir heims í svo góðum málum. Nú eru 43 nú í einangrun á landinu vegna kórónuveirunnar, 28 í sóttkví og 17 liggja…Lesa meira

true

Íslenska kvennalandsliðið mætt til Slóveníu

Íslenska kvennalandsliðið í körfu hélt í gær af stað i ferðalag til að taka þátt í leikjum undankeppni Evrópumótsins í Ljubljana í Slóveníu. Vegna takmarkaðra möguleika í flugsamgöngum hélt hópurinn af stað í gær og flaug með Icelandair til Amsterdam og dvaldi á flugvallarhóteli þar í góðu yfirlæti í nótt. Hópurinn fór svo í morgun…Lesa meira

true

Sýnt beint frá leik Skallagríms og Vestra klukkan 16 í dag

Karlalið Skallagríms í körfubolta tekur á móti Vestra í 1. deildinni í Borgarnesi í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00. Eins og alkunna er mega áhorfendur ekki sækja leiki vegna samkomutakmarkana. Kvikmyndafjelag Borgarfjarðar sýnir því beint frá leiknum og er slóðin: Einnig er hægt að finna streymið með því að leita að „Kvikborg“ á Youtube (bæði…Lesa meira

true

Leikir Kára og ÍA sýndir á ÍATV um helgina

Þrátt fyrir að hafa sinnt mörgum skemmtilegum verkefnum síðustu vikur kveðast ÍATV menn hafa saknað fótboltans eins og fjölmargir fleiri. Í kvöld byrjar fótboltinn aftur að rúlla og munu forsvarsmenn ÍATV ekki láta það fara framhjá sér, áhorfendum og þeim til ánægju. Sent verður út frá Akraneshöll í kvöld þegar Knattspyrnufélagið Kári tekur á móti…Lesa meira

true

Sýrlenskur veitingastaður opnaður á Akranesi

Greint hefur verið frá því á Facebook að búið sé að opna nýjan veitingastað á Akranesi. Ber hann nafnið Flamingu Kebab og er við Stillholt 23. „Kebab Restaurant Takeaway, Vegetarian, Healthy, Grill, middle east food, fast food,“ segir í kynningu.Lesa meira

true

Bjarni ákveður að hefja sölumeðferð Íslandsbanka

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að hefja sölumeðferð á hlutum í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í bréfi sem ráðherra sendi Bankasýslu ríkisins í dag. Tilkynning þar að lútandi barst fjölmiðlum nú síðdegis. „Greinargerð fjármála- og efnahagsráðuneytisins um söluna var lögð fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og einnig send Seðlabanka Íslands til…Lesa meira