Fréttir

true

Endurbætur á vínbúðinni í Ólafsvík

Í gær var Vínbúðin í Ólafsvík opnuð að nýju eftir breytingar innanhúss. Verslunin fékk nýtt útlit, skipt var um gólfefni og ljós ásamt því að hún var skipulögð upp á nýtt; settar upp nýjar innréttingar og merkingar bættar. Þá var sett upp nýtt ljósaskilti utan á húsið. Gekk vinnan hratt og vel fyrir sig og…Lesa meira

true

Þyngd þarf ekki að segja til um heilbrigði

Rósa Soffía Haraldsdóttir er í hópi bloggara sem halda úti síðunni Lady.is. Á blogginu og á Instagram reikning sínum @rosasoffia hefur hún verið dugleg að tala um allt það sem brennur á henni hverju sinni, eitt af því er heilsa, bæði andleg og líkamleg. Fyrir rúmri viku setti hún inn færslu á Instagram þar sem…Lesa meira

true

Handboltalandsliðið fer með tvö stig í milliriðil

Landslið karla í handbolta leikur nú á Heimsmeistaramóti í Egyptalandi. Liðið lék þrjá leiki í riðlakeppninni undanfarna viku; tapaði einum en vann tvo. Fyrst mættu strákarnir Portúgal og hófu þeir leikinn af miklum krafti en það dugði ekki til. Í síðari hálfleik var of margt sem gekk ekki upp hjá liðinu og Portúgal tók bæði…Lesa meira

true

Áhrif atvinnuleysis vega stærst í minnstu sveitarfélögunum

Í síðustu viku kom út nýr Hagvísir Vesturlands og ber hann titilinn „Fjármál sveitarfélaga: Atvinnuleysi og tekjur.“ Viðfangsefni þessa Hagvísis er að leita vísbendinga fyrir áhrifum atvinnuleysis á tekjur sveitarfélaga á Vesturlandi. „Núverandi kreppa var hvatinn að þessari vinnu. Hvert og eitt sveitarfélag á Vesturlandi var skoðað sérstaklega og stuðst við tölur Sambands íslenskra sveitarfélaga…Lesa meira

true

Efla aðstoðar Sementsverksmiðjuna að meta tjón

Sementsverksmiðjan ehf. hefur fengið verkfræðistofuna Eflu til að meta raunveruleg áhrif óhapps í einu af sílóum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi aðfarnótt 5. janúar sl. á umhverfi og loftgæði. Óhappið leiddi til þess að sementsryk barst um nágrenni verksmiðjunnar. „Verkefni Eflu felst m.a. í því að fara yfir ferla fyrirtækisins og aðgerðir í kjölfar óhappsins en Sementsverksmiðjan…Lesa meira

true

Styrkja verslun á strjálbýlustu svæðum

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um þrjá verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar. Að þessu sinni var 12 milljónum króna úthlutað til verslunar í strjálbýli fyrir árið 2021. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum. Verkefnin sem hljóta styrk eru Hríseyjarbúðin, Kauptún Vopnafirði og verslun á Reykhólum. Til Reykhóla rennur…Lesa meira

true

Markvisst unnið gegn einelti í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Grunnskóli Snæfellsbæjar er einn af þeim skólum sem vinnur samkvæmt eineltisáætlun Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Bæði nemendur og starfsfólk vinna samkvæmt áætluninni og er markmið hennar að skapa umhverfi í skólanum þar sem einelti fær ekki þrifist og byggir á fáum meginreglum sem að skila árangri samkvæmt rannsóknum. Meðal þess sem nemendur og…Lesa meira

true

Teitur Björn sækist eftir þingsæti

Teitur Björn Einarsson, lögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi; „gefur kost á sér fyrir næstu þingkosningar þar sem hann mun sækjast eftir þingsæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu,“ eins og hann orðar það sjálfur á Facebook. Sjálfstæðisflokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu; þau Harald Benediktsson 1. þingmann kjördæmisins og Þórdísi Kolbrúnu R Gylfadóttur ferðamála,- nýsköpunar-…Lesa meira

true

Nýtt skipurit Akraneskaupstaðar tók gildi um áramót

Nýtt stjórnskipulag Akraneskaupstaðar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 15. desember og tók gildi 1. janúar síðastliðinn. „Markmið breytinganna er að auka og bæta innri og ytri þjónustu Akraneskaupstaðar, auka skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins með upplýsingatækni, skýrari verkferlum, stjórnun og öflugu starfsumhverfi,“ segir í tilkynningu. Samhliða breytingunum hefur verið gengið frá ráðningu í fjögur störf hjá…Lesa meira

true

Ásmundur Friðriksson er áfram konungur þjóðveganna

Í liðinni viku birti skrifstofa Alþingis rangar upplýsingar um aksturskostnað þingmanna á síðasta ári og fór frétt þess efnis á flug í fjölmiðlum, þar á meðal á vef Skessuhorns og í Kjarnanum. Samkvæmt upplýsingum Alþingis átti Guðjón S Brjánsson alþingismaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi að hafa verið sá þingmaður sem ók mest á síðasta ári í…Lesa meira