Fréttir

true

Samþykkt að fara í úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar

Alþingi samþykkti í gær að fela ríkisendurskoðanda að gera úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar. Það var Sara Elísa Þórðardóttir, þingmaður Pírata, sem fór fram á úttektina sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Ríkisendurskoðandi mun því ráðast í fjárhags- og stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni og skila skýrslu að þeirri vinnu lokinni. Í beiðninni eru tilgreindir nokkrir þættir…Lesa meira

true

Sala Neyðarkallsins í byrjun febrúar

Sölu á Neyðarkalli björgunarsveitanna var eins og kunnugt er frestað í nóvember vegna Covid. Nú hefur verið ákveðið að salan fari fram dagana 3.-7. febrúar. Að þessu sinni er Neyðarkallinn með björgunarhund sér við hlið. Landsbjörg biðlar til fólks að taka björgunarsveitafólki vel, en búast má við að það komi sér fyrir í verslanamiðstöðum og…Lesa meira

true

Svavar Gestsson fyrrum ráðherra er látinn

Svavar Gestsson fv. alþingismaður, ráðherra og sendiherra er látinn, 76 ára að aldri. Svavar var fæddur 26. júní 1944 á Guðnabakka í Borgarfirði, elstur átta systkina, barna hjónanna Guðrúnar Valdimarsdóttur og Gests Sveinssonar. Svavar var fyrst kosinn á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið árið 1978 og sat á þingi í 21 ár. Áður starfaði hann m.a. sem…Lesa meira

true

Formleg opnun Hnoðrabóls á nýjum stað

Síðastliðinn föstudag fór fram formleg opnun leikskólans Hnoðrabóls í nýju húsnæði á Kleppjárnsreykjum. Forsvarmenn Borgarbyggðar kíktu í heimsókn og færðu starfsfólki og nemendum rósir í tilefni þess að starfsemin er nú alfarið flutt frá Grímsstöðum þar sem skólinn hefur verið rekinn undanfarin þrjátíu ár. Leikskólinn Hnoðraból var upphaflega stofnaður 1982 af áhugasömum foreldrum í uppsveitum…Lesa meira

true

Efnilegt knattspyrnufólk valið í U-16 æfingahóp

Þrjár ungar og efnilegar knattspyrnukonur af Vesturlandi hafa verið valdar til úrtaksæfinga U16 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu. Þær eru Lilja Björk Unnarsdóttir og Ylfa Laxdal Unnarsdóttir frá ÍA og Eyrún Embla Hjartardóttir frá Víkingi Ó. Þá hefur Logi Mar Hjaltested frá ÍA hefur verið valinn til úrtaksæfinga U16 ára landsliðs karla í knattspyrnu. Æfingarnar…Lesa meira

true

Mæla loðnugöngu austan við landið

Nú um helgina var haldið aftur til mælinga á stærð loðnustofnsins á uppsjávarveiðskipunum Ásgrími Halldórssyni SF og Polar Amaroq. Líkt og í fyrri mælingum eru þrír sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar í hvoru skipi. Bjarni Ólafsson AK er jafnframt með í verkefninu með það hlutverk að afmarka dreifingu loðnunnar til að flýta fyrir mælingum. Aðdragandi mælinganna er sá…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími eftir jafnan leik

Skallagrímur tók á móti Hamri frá Hveragerði í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn í Borgarnesi. Leikurinn, sem var nokkuð jafn, endaði með sex stiga sigri gestanna, 93-87. Fyrsti leihluti fór rólega af stað en á sjöundu mínútu náðu Skallagrímsmenn aðeins forskoti og voru þeir með sjö stiga forystu í lok leikhlutans, 26-19. Snemma…Lesa meira

true

Jarðskjálftinn truflaði loftmyndaskanna Landmælinga

Í Kvarðanum, nýju fréttabréfi Landmælinga Íslands segir m.a. frá því að jarðskjálftinn sem varð á Reykjanesi 20. október síðastlinn hafi haft óvænt áhrif. „Jörð hristist hraustlega á Akranesi í jarðskjálftanum þann 20. október síðastliðinn. Að öllu jöfnu hafa slíkar jarðskorpuhreyfingar mest áhrif á grunnmælikerfi landsins en að þessu sinni virðist sem nýlegur loftmyndaskanni stofnunarinnar hafi…Lesa meira

true

Borgarbyggð opnar í dag nýtt þjónustuver

Nýtt þjónustuver tekur til starfa í Borgarbyggð í dag. Í sveitarfélaginu var ráðist í rýnivinnu og ferlagreiningu á stjórnsýslunni á síðasta ári og voru í kjölfarið innleiddar skipulagsbreytingar til að efla starfsemina. Nýtt svið var stofnað innan sveitarfélagsins, sem nefnist stjórnsýslu- og þjónustusvið. Þar verður áhersla lögð á að auka faglega stjórnsýslu, skilvirkni og þjónustu…Lesa meira

true

Verkfræðiráðgjöf vegna uppbyggingar á Jaðarsbökkum í útboð

Ríkiskaup óska á vef sínum eftir tilboði í alla verkfræðiráðgjöf vegna verkefnisins „Jaðarsbakkar, uppbygging íþróttamannvirkja á Akranesi.“ Í auglýsingunni segir m.a að um sé að ræða steinsteypt íþróttahús með fría lofthæð yfir 7 metra. Kjallari er undir húsinu og þar eru búningsherbergi, aðstaða kennara, þjálfara, dómara o.fl. ásamt stoðrýmum og geymslum. Samtals er mannvirkið ríflega…Lesa meira