Fréttir

true

Vestlendingar í æfingahópi yngri landsliða

Ellefu Vestlendingar hafa verið valdir í æfingahópa yngri landsliða á körfuknattleik. Í æfingahópi fyrir U15 ára landslið kvenna eru fimm stúlkur úr Skallagrími, þær Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir, Díana Björg Guðmundsdóttir, Kolfinna Dís Kristjánsdóttir, Valborg Elva Bragadóttir og Victoría Lind Kolbrúnardóttir. Í æfingahópi fyrir U16 ára landslið kvenna eru Heiður Karlsdóttir og Lisbeth Inga Kristófersdóttir úr…Lesa meira

true

Heildarafli var rúm ein milljón tonna á síðasta ári

Hagstofan birtir fyrir helgina bráðabirgðatölur um heildarafla ársins 2020 við Íslandsstrendur. Heildaraflinn var 1.021.000 tonn og dregst saman um 3% frá 2019. Uppsjávarafli er nær óbreyttur milli áranna 2019 og 2020, um 530 þúsund tonn. Ríflega helmingur aflans, kolmunni 244 þúsund tonn, makríll 152 þúsund tonn og síld 134 þúsund tonn. Loðnuafli var hins vegar…Lesa meira

true

Guðjón ók mest á liðnu ári

Í liðinni viku kom það í ljós að Guðjón S Brjánsson alþingismaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi var sá þingmaður sem ók mest á síðasta ári í störfum sínum fyrir Alþingi. Felldi hann þar með úr sessi ókrýndan konung þjóðveganna; Ásmund nokkurn Friðriksson Sjálfstæðismann. „Já, það er líklega engum blöðum um það að fletta að ég hef…Lesa meira

true

Skallagrímur hafði betur í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur hafði betur gegn Snæfelli í hörkuspennandi leik í Domino‘s deild kvenna í gær. Liðin mættust í Borgarnesi og strax var ljóst að bæði ætluðu þau sér sigur. Fysti leikhluti var hnífjafn og lauk í stöðunni 18-18. Í öðrum leikhluta byrjaði Skallagrímur að skilja sig frá Snæfelli og leiddi með 14 stigum í hálfleik, 46-32.…Lesa meira

true

Kerlingin er nú höfðinu styttri

Við Kerlingarskarð á Snæfellsnesi liggur fyrrum þjóðleið sem tengir suður- og norðurhluta Snæfellsness, en eftir að vegurinn um Vatnaleið var opnaður 2001 hefur gamla þjóðveginum ekki verið haldið við og umferð því lítil um svæðið. Efst á Kerlingarskarði er steintröll sem kallast Kerlingin. Svo virðist sem Kerlingin sé nú höfðinu styttri, ef marka má mynd…Lesa meira

true

Í dag er Föstudagurinn DIMMI

Í dag verður Föstudagurinn DIMMI haldinn í fimmta skiptið í Borgarbyggð. Hvert ár hefur haft sitt sérstaka þema en megin tilgangurinn er að efla raunveruleg tengsl og samskipti, órafmögnuð og á eigin skinni. Að þessu sinni er viðburðurinn færður í sóttvarnarbúning og fólk hvatt til að gæta að sóttvarnareglum. Áskorunin er að halda í upplifunina…Lesa meira

true

Þykir einkavæðing Íslandsbanka óskynsamleg á óvissutímum

Sérfræðingahópur verkalýðshreyfingarinnar hefur skilað af sér greinargerð um áhrif Covid-19 og meðal annars áform fjármálaráðherra og forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar um sölu ríkisins á Íslandsbanka. „Röksemdir og skýringar skortir fyrir þeirri ákvörðun að hefja söluferli vegna Íslandsbanka á miklum óvissutímum. Enn er óljóst hversu stóran hlut stendur til að selja og ekki er skýrt til hvaða verkefna…Lesa meira

true

Tæplega hálf milljón ferðamanna árið 2020

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 480 þúsund árið 2020 sem er um 1,5 milljón færri en árið 2019. Þetta er samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 75,9%. Leita þarf tíu ár aftur í tímann til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega frá landinu. Sjö af hverjum tíu…Lesa meira

true

Skimunarskylda á landamærum frá og með deginum í dag

Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí. Þá verða tekin varfærin skref til afléttingar sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað…Lesa meira

true

Mikil aukning í útflutningi fiskeldisafurða

Sameiginlegt útflutningsverðmæti eldis- og landbúnaðarafurða í desember nam 4,8 milljörðum króna samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru nýverið. Það er 75% aukning í krónum talið frá desember 2019 en um 58% aukning í erlendri mynt. Þar sem um er að ræða fyrstu bráðabirgðatölur um vöruskipti í desember, liggur ekki fyrir sundurliðun á…Lesa meira