Fréttir

true

Unnið í kappi við tímann að hreinsa burt sement

Unnið hefur verið sleitulaust í allan dag að hreinsun húsa og bíla sem urðu fyrir sementi sem barst frá sílóum Sementsverksmiðjunnar eftir umhverfisslysið sem varð í nótt og morgun. Slökkvilið, starfsmenn Gísla Jónssonar ehf og fleiri unnu að hreinsistarfinu en vinna þurfti hratt enda erfiðara að ná sementinu af eftir því sem lengra líður frá…Lesa meira

true

Mikil útbreiðsla fuglaflensu í Evrópu

Að undanförnu hefur fuglaflensa farið eins og eldur um sinu í Evrópu. „Matvælastofnun fylgist stöðugt með þróun faraldursins og metur áhættu fyrir Ísland. Stofnunin hvetur fuglaeigendur að huga ávallt vel að smitvörnum og búa sig undir þann möguleika að fyrirskipaðar verði sérstakar smitvarnaráðstafanir,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni. Flest fuglaflensutilfelli sem greinst hafa í Evrópu…Lesa meira

true

Soffía Dagbjört er nýr gæða- og mannauðsstjóri

Soffía Dagbjört Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu gæða- og mannauðsstjóra Borgarbyggðar, en frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins. Soffía Dagbjört hefur lokið BA gráðu í félagsráðgjöf og mastersgráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsmál. Hún hefur undanfarið starfað sem deildarstjóri í einkageiranum en þar áður vann hún hjá Reykjavíkurborg.Lesa meira

true

Leki kom að Deildartunguæð

Á sunnudagskvöld kom leki að Deildartunguæð en lögnin flytur eins og kunnugt er heitt vatn frá Deildartungu til Borgarness, Akraness og nærsveita. Talið er að bilunin tengist rafmagnstruflunum sem urðu í dreifikerfi Rarik á Vesturlandi og hófust um kl. 22:00 á sunnudagskvöldið, en þær höfðu þau áhrif að allar dælustöðvar hitaveitunnar á Vesturlandi stöðvuðust. Bilunin…Lesa meira

true

Listagjafir voru afhentar á Vesturlandi

Með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti bauð Listahátíð í Reykjavík fólki á landsbyggðinni upp á Listagjöf, en áður hafði slík gjöf eingöngu verið afhent á höfuðborgarsvæðinu. Listagjöfin var svo afhent á landsbyggðinni helgina 19. og 20. desember síðastliðinn. Á Vesturlandi, allt að Hólmavík, voru 47 listagjafir afhentar. Flestar gjafirnar voru afhentar í Borgarnesi, Akranesi og…Lesa meira

true

Aflamet hjá línubátnum Kristni HU

Línubáturinn Kristinn HU, sem er gerður út frá Skagaströnd og Ólafsvík, gerði það gott í desember. Skipverjar komu með 288 tonn að landi og aflaverðmætið var 109 milljónir króna. Þorsteinn Bárðarson, annar tveggja skipstjóra á Kristni og útgerðarmaður, segir þetta metmánuð í sögu útgerðarinnar sem var stofnuð árið 1997. Hann segir að aldrei áður hafi…Lesa meira

true

TM lokaði umboðsskrifstofu sinni á Akranesi

TM lokaði um áramótin umboðsskrifstofu sinni á Akranesi. Ingþór Bergmann Þórhallsson eigandi Omnis verslunar, og fyrrum umboðsmaður TM á Akranesi, greindi frá þessari ákvörðun tryggingafélagins á gamlársdag. „Þróunin hjá fyrirtækjum af þessu tagi er og verður í þessa átt. Viðskiptavinir eru færðir smám saman í stafræna þjónustu og persónuleg tengsl og velvild víkur fyrir stöðluðum…Lesa meira

true

Brugðist við rakamyndun í skólahúsi

Byggðarráð Borgarbyggðar hélt aukafund 22. desember síðastliðinn þar sem eina mál á dagskrá var framhald umræðna um viðbrögð við raka sem greinst hefur í elsta hluta skólahúss Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Rakamyndun er staðfest í minnisblaði sem verkfræðistofan Efla vann fyrir sveitarfélagið. Byggðarráð samþykkti á fundinum að gengið verði í þær aðgerðir sem snúa að…Lesa meira

true

Tveir í einangrun á Akranesi

Samkvæmt nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi er fjöldi smitaðra og í einangrun í landshlutanum óbreytt frá því í gær. Tveir eru í einangrun með Covid-19 á Akranesi. Þar eru sömuleiðis þrír í sóttkví og einn að auki í Grundarfirði. Að öðru leyti er landshlutinn laus við veiruna.Lesa meira