Fréttir

true

Víðtæk rafmagnsbilun

Í gærkvöldi varð rafmagnslaust á stórum hluta Vesturlands, m.a. Borgarfirði, Snæfellsnesi og Akranesi, auk hluta Húnavatnssýslna. Misjafnt var hversu lengi íbúar voru án rafmagns, en það var allt frá nokkrum mínútum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit til nokkurra klukkutíma. Bilunin var rakin til skálakeðju í tengivirki á Vatnshömrum í Andakíl, en hún er hluti af…Lesa meira

true

Komugjöld á heilsugæslustöðvar lækka

Almenn komugjöld í heilsugæslu lækkuðu úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar síðastliðinn og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Fellt verður niður sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð en þeir eru skráðir hjá. Heilsugæslan um allt land tekur um áramót við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi. Gjald fyrir…Lesa meira

true

Skattbreytingar á árinu 2021

Um áramót tóku gildi ýmsar skattabreytingar er snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Áhrif þeirra eru metin til samtals 18 ma.kr. lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Auk þess nema tímabundnir skattastyrkir í VSK til stuðnings vistvænum samgöngum og framkvæmdum við íbúðarhúsnæði o.fl. alls 13 ma.kr. á árinu. Hér að neðan verður fjallað um helstu efnisatriði…Lesa meira

true

ÍATV tilnefndi leikmenn ársins á Akranesi

ÍATV hefur tilkynnt val sérfræðinga sinna á knattspyrnumönnum ársins hjá knattspyrnufélögum ÍA og Kára árið 2020. Leikmaður ársins hjá Pepsi Max-deildarliði ÍA er Stefán Teitur Þórðarson. Stefán lék samtals 19 leiki í deild og bikar og skoraði 9 mörk. Eftir að hafa leikið hátt í 100 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim 24 mörk…Lesa meira

true

Banvæn mistök í íslenska heilbrigðiskerfinu

Banvæn mistök í íslenska heilbrigðiskerfinu er heiti bókar Auðbjargar Reynisdóttur hjúkrunarfræðings þar sem hún segir frá skelfilegri reynslu en sonur hennar, Jóel Gautur, lést á barnadeild Hringsins liðlega ársgamall. Bók Auðbjargar byggir á sjúkraskrám og dagbókum en í henni er rætt um fagleg og ófagleg viðbrögð við alvarlegum mistökum í meðferð sjúklinga. En einnig hvernig…Lesa meira

true

Fyrsti aflinn á nýju ári lofar góðu

Netabáturinn Ólafur Bjarnason SH kom að landi í Ólafsvík um klukkan 14:30 á laugardaginn og landaði fyrsta afla ársins í Snæfellsbæ. Aflinn var 11,5 tonn að sögn Orra Magnússonar stýrimanns og fékkst hann í 63 net. „Þetta er allt bolta þorskur,“ sagði Orri brosmildur og bætti við að þetta hafi verið góð byrjun á nýju…Lesa meira

true

Víða rafmagnstruflanir

Rafmagnstruflun eru í kvöld í gangi í dreifikerfi rafmagns víða á Vesturlandi. Samkvæmt tilkynningu frá Rarik er verið að vinna í að byggja upp kerfið eftir útslátt nú fyrir skömmu. Meðal annars er rafmagnslaust í Borgarnesi, Borgarfirði og á Snæfellsnesi. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má…Lesa meira

true

Bóknámsnemar FVA verða í fjarkennslu þessa vikuna

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefst verknám og fagbóklegt og starfsbraut í staðnámi frá og með miðvikudeginum 6. janúar, en aðrir áfangar verða í fjarkennslu fyrstu þrjá dagana í upphafi vorannar, þ.e. dagana 6.-8. janúar. Staðnám í öllum áföngum í skólanum hefst svo mánudaginn 11. janúar. Eftirfarandi gildir í FVA frá 1. -12. janúar: Mánudagurinn…Lesa meira

true

Fækkar í sóttkví á Vesturlandi

Samkvæmt tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi eftir hádegið í dag hefur fækkað í hópi þeirra sem eru í einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Þeir eru nú alls tveir, báðir á Akranesi. Auk þeirra eru þrír í sóttkví á Akranesi og einn í Grundarfirði. Önnur svæði eru án veirunnar.Lesa meira

true

Einstök áramótakveðja frá Grundarfirði

Í tilefni áramótanna tók Grundarfjarðarbær sig til og lét setja saman myndband þar sem flutt er lag Einars Bárðarsonar við texta Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra. Það er svo skreytt með einstökum myndum og myndböndum sem Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns hefur tekið á árinu og sett saman. Auk hans áttu myndir þau þess Brynjar Kristmundsson og…Lesa meira