Fréttir

true

Elfa Margrét, Margrét Björt og Hjördís Tinna flytja Jólabæn einstæðingsins

Sextándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Mæðgurnar Elfa Margrét Ingvadóttir og dætur hennar, Margrét Björt og Hjördís Tinna Pálmadætur sem fluttu lagið Jólabæn einstæðingsins. Gísli á Uppsölum samdi fyrstu tvö versin í laginu og Ómar Ragnarson bætti við því þriðja og samdi þetta fallega lag. Gunnar Gunnarsson,…Lesa meira

true

Jólablaðið komið í dreifingu

Hið árlega Jólablað Skessuhorns er nú komið út. Það hefur meðal annars að geyma um þrjátíu stór viðtöl, heimilislegar kveðjur úr héraði, fréttaannál ársins og ekki síst myndagátu og krossgátu sem lesendur geta glímt við framyfir hátíðir. Blaðið er 112 síður að þessu sinni og bókstaflega stappfullt af efni. Við á ritstjórninni teljum þetta ódýrustu…Lesa meira

true

Beint streymi nú á eftir frá fyrstu úthlutun Matvælasjóðs

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi í dag, 16. desember kl. 09:30. Alls bárust 263 umsóknir um styrki. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn var stofnaður í apríl, en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu…Lesa meira

true

Spá að halli sveitarfélaga verði 17,7 milljarðar

Starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga áætlar að afkoma A hluta sveitarsjóða verði neikvæð sem nemur 17,7 milljörðum króna í ár. Það er um 2,2 milljörðum betri afkoma en starfshópurinn áætlaði í skýrslu í ágúst sl. en þá stefndi í 19,9 milljarða halla samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. „Nýjustu tölur bendi til þess að samdráttur í tekjum…Lesa meira

true

Pottaskefill að mæta

Fimmti jólasveinninn til byggða er hann Pottaskefill. Hér er kvæða Jóhannesar úr Kötlum flutt honum til heiðurs í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar: https://youtu.be/yh7hfAlKz9QLesa meira

true

Jólasveinarnir alveg í rusli

Jólasveinarnir tínast nú til byggða einn af öðrum. Kunnastir eru þeir þrettán sem koma einn af öðrum til byggða eftir því sem líður á jólamánuðinn og færa börnum góðgæti og fleira í skóinn. Færri vita að jólasveinarnir eru mun fleiri, svo margir að enginn veit raunverulegan fjölda þeirra. Raunar voru á árum áður alls kyns…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við ferðum milli Borgarness og Akureyrar

Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við verulegum bikblæðingum á veginum frá Borgarfirði og allt norður í Skagafjörð og eru vegfarendur beðnir að hægja ferðina þegar þeir mæta öðrum bílum vegna hættu á steinkasti. „Við hvetjum fólk sem er á leið á milli Borgarness og Akureyrar að fresta för sinni ef…Lesa meira

true

Björgunarmiðstöð rís úr jörðu – söfnun á nýju ári

Hús Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi er nú að taka á sig mynd og þokast upp úr jörðinni. Í haust hefur verið unnið að því að steypa sökkuleiningar og aðrar undirstöður hússins. Síðustu dagana hafa síðan starfsmenn Steypustöðvarinnar (áður Loftorku) í Borgarnesi unnið að því að koma fyrir undirstöðum undir burðarsúlur og í framhaldinu verða sökkuleiningar…Lesa meira

true

Þrír voru greindir með veiruna í gær

Þrír voru greindir innanlands með kórónuveiruna í gær skv. uppfærðum tölum á covid.is. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví. 142 eru nú í einangrun á landinu vegna veirunnar og 293 í sóttkví. 33 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af eru þrír á gjörgæslu. Á Vesturlandi eru nú fjórir í einangrun vegna kórónuveirunnar,…Lesa meira

true

Starfshópur skipaður um eflingu kynfræðslu

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað starfshóp um eflingu kynfræðslu í skólum. „Í kjölfar umræðu í samfélaginu og ábendinga frá nemendum boðaði ráðherra til fundar á dögunum með aðilum sem hafa með virkum hætti látið sig málefnið varða,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Starfshópurinn á að koma með tillögur að aðgerðum sem fyrst. Hann mun starfa…Lesa meira