
Það var mikið fjör í morgun á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði. Þá voru hin árlegu litlu jól haldin en þó með aðeins óhefðbundnara sniði. Fögnuðurinn var haldinn utandyra að þessu sinni og voru nemendur leikskólans því klæddir eftir veðri frekar en í sínu fínasta pússi eins og oftast áður. Jólasveinninn mætti á forláta sexhjóli enda…Lesa meira








