Fréttir

true

Litadýrð í sólarupprás morgunsins

Engu líkara var en himininn logaði nú í morgun þegar skammdegissólin var að hefja sig á loft. Meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í þessu við Langasand á Akranesi. Í suðri má m.a. sjá bólstrana sem stíga upp frá Hellisheiðarvirkjun. Vafalítið er þessi litadýrð vegna kalda og raka loftsins og endurkasts sólarljóssins í ískristöllum, en…Lesa meira

true

Undraðist að humar veiddist nánast uppí kartöflugarðinum hans

Tilraunaveiðar með humargildrur á Ingu P SH ganga vonum framar á Breiðafirði. Auðsjáanlega er humar að finna víða á svæðinu á miðunum við Snæfellsnes. Fyrst voru gildrurnar lagðar ellefu mílur vestur að Öndverðarnesi og var afli með ágætum en veður hamlagði þó veiðum. Í síðustu viku voru gildrurnar svo færðar á svokallað Jökuldýpi sem er…Lesa meira

true

Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar með ýmis verkefni á aðventunni

Í mörg horn er að líta hjá Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar fyrir jólin en töluvert efni er væntanlegt til birtingar frá félaginu á aðventunni. Næsta laugardag, 28. nóvember, sendir félagið út tónleika með Jónínu Ernu og félögum af tilefni aldarafmælis Sigfúsar Halldórssonar. Þá verður send úr guðsþjónusta fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember, úr Borgarneskirkju. „Þetta eru…Lesa meira

true

Gerir tilraunir með íslenskan leir í Leirbakaríiu

Í lágreistu húsnæði á Suðurgötunni á Akranesi, þar sem Brauða- og kökugerðin var áður til húsa, hefur Leirbakaríið komið sér vel fyrir. Það er rekið af leirlistarkonunum Kolbrúnu Sigurðardóttur og Maríu Kristínu Óskarsdóttur. Þær stöllur vinna þar að hönnun sinni og listsköpun. Leirbakaríið rekur leirvinnustofu þar sem boðið er upp á námskeið, hópeflisheimsóknir og ýmsar…Lesa meira

true

Framkvæmdir við þjóðgarðsmiðstöð og íbúðakjarna í Snæfellsbæ

Framkvæmdir við byggingu þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi og íbúðakjarna fyrir fatlaða í Ólafsvík ganga vel. Húsheild er verktaki í báðum þessum stórframkvæmdum. Á Hellissandi hafa framkvæmdir gengið vel. Búið er að steypa sökkla og langt komið að keyra í grunninn og ætti á næstunni að vera hægt að undirbúa það að steypa plötu. Gert er ráð…Lesa meira

true

Grafalvarlegt þegar keðja neyðarþjónustu rofnar

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirvofandi tímabils þar sem engar björgunarþyrlur munu vera tiltækar á landinu: „Þrátt fyrir að Ísland sé lítil eyja eru samgöngur hér sérstaklega yfir vetrarmánuðina oft erfiðar og tímafrekar. Ef bráð veikindi eða slys bera að höndum er mikilvægt að keðja neyðarþjónustu heilbrigðiskerfisins utan spítala…Lesa meira

true

Stórliðin berjast um að fá Ísak Bergmann í sínar raðir

Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson lék sinn fyrsta landsleik fyrir A landslið karla í knattspyrnu á miðvikudaginn í síðustu viku þegar liðið mætti Englandi á Wembley. Ísak kom inn á 88. mínútu fyrir Birki Bjarnason og lék síðustu mínútur leiksins. Ísak er sjötti yngsti A landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu karla en hann var 17 ára, 7…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir annað kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um allt vestanvert landið, m.a. fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa, frá klukkan 19:00 á morgun, miðvikudag. Spáð er suðaustan 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu, einkum á fjallvegum. Veðrinu fylgir að akstursskilyrði versna.Lesa meira

true

Daði Már tímabundið í starf aðstoðarrektors LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskóli Íslands undirrituðu í gær samning um að dr. Daði Már Kristófersson, prófessor við Hagfræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, gegni starfi aðstoðarrektors við Landbúnaðarháskóla Íslands tímabundið út þetta skólaár. Daði Már mun sinna starfinu í 50% starfshlutfalli og áfram gegna 50% starfsskyldum sem prófessor við Hagfræðideild. „Það er mikill fengur fyrir Landbúnaðarháskóla…Lesa meira

true

Níu greindust með kórónuveiruna í gær

Níu voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og af þeim voru fimm í sóttkví. Aðeins hefur fjölgað í sóttkví milli daga en nú eru 246 í sóttkví í landinu en í gær voru það 220 manns. 186 eru nú í einangrun vegna veirunnar en í gær voru…Lesa meira